Tíminn - 09.11.1966, Blaðsíða 3

Tíminn - 09.11.1966, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 9. nóvember 1966 TÍMINN Bandaríkjamenn halda greini lega mjög mikið upp á kvik myndaleikara. George Murphy Allt virðist nú frekar á upp- leið í Kongó, ef dæma má af því ,að nýlega var fyrsti kven ráðherrann settur inn í emb- ætti. Heitir hún Sophie Lihau og fer með embætti íélagsmála ráðherra. „Aðeins Guð veit hvers vegna við erum gift, ég er svo ein- mana“. Þetta eru orð Brigitte Bardot þrem mánuðum eftir að hún giftist þýzka milljónamær ingnum og „playboynum“ Gunt her Sachs. Ég lifi í minningunni um hveitibrauðsdaga okkar. Þegar við giftum okkur hélt ég að við ættum eftir að vera sam an að eilífu. Þá fór ég til Skot lands til þess að leika í mynd inni“ „Two weeks in septem ber“. Gunther heimsótti mig, en var farinn aftur þremur dög um seinna, með golfkylfur sín ar um öxl. .,Þegar tvær mann eskjur giftast, skyldi maður ætla að þær myndu helga sig hvor annari, en sú hefur alls ekki orðið raunin". B- B. og Gunther hafa ekki sézt síðan í Skotlandi forðum. ♦ Mikil jasshátíð er haldtn um þessar mundir í Vestur Berlín, og hér er kominri til leiks jass- leikarinn Bandaríski Stan Getz ásamt konu sinni. frá Kalíforníu er öldungadejld arþingmaður ríkis síns, og núna er annar frambjóðandi úr röð um kvikmyndaleikara kominn fram, en það er Ronald Regan frægur leikari á sinni tíð. Sést hann hér tala á framboðsfundi. Sölumaður frá Parkersburg USA Woodrow Deorenberger að nafni heldur því fram, að fljúgandi diskur hafi stöðvað bíl hans í nágrenni bæjarins og að hann hafi talað við einn af áhöfninni. Hann segir svo frá að áhafnarmiðlimurinn hafi ver ið venjulegur maður með svart hár og klæddur í hnésíðan frakka . Læknar í Los Angeles velta nú mikið vöngum yfir því hvað það sé, sem hrjáir konu eina þar í borg. Frá höfði konunn ar heyrist stöðugt tikk, svipað að styrkleika og frá venjulegu vasaúri. Heyrist það í tæpal. mesters fjarlægð. Enuþá hafa læknar hliðrað sér við að skýra þetta fyrirbæri. Margrét ríkisarfi Danmerkur og Henri greifi hafa þegið boð hollenzku konungsfjölskýldunn ar um að vera viðstödd brúð- kaup Margrétar prinsessu og Pieter van Vollenhoven, sem halda á í Haag 10. janúar nk. Stórhertoginn af Luxemborg og frú hafa einnig þekkzt boðið. i Nancy Sinatra, ihin fræga ‘söngkona, sem er 26 ára, skildi Við mahn sinn í fyrra, söngvar ann Tommy Sands. Hún sést nú öllum stundum með öðr um söngvara, Tondy Del Mon aco frá Ítalíu og er sagt, að þau séu leynilega trúlofuð. Nancy er dóttir hins heims- fræga söngvara og Leikara Frank Sinatra. 1 Hinn fyrrverandi, þýzki hers höfðingi von Choltizt, lézt í Baden-Baden nýlega, 71 árs að aldri. Hann varð þekktur í heimstyrjöldinni síðari, þegar hann bjargaði París frá algerri eyðileggingu. Hann var hers höfðingi þar til 1944, þegar Hitler skipaði honum að brenna borgina. Von Choltizt neitaði, þar sem hann vissi að styrjöld in var töpuð Þjóðverjum og komst í samband við frönsku neðanjarðarhreyfinguna. Þegar bandaríski landgöngu liðinn Harold Cooke féll í Suð ur-Vítnam í júní s. 1. og kona hans, Pandora fékk greidda 10. 000 dollara líftryggingu hans, virtist svo, sem hin unga kona væri aðeins venjuleg „stríðs- ekkja'. — Þ.e.a.s. þar til nú fyrir nokkrum dögum, að her maðurinn Robert McColm skýrði réttinum í Denver frá því að hann hefði einnig kvænst Pandoru. Og hann bætti því við, að bandaríska ríkislögregl an — FBI — teldi, að nún hefði orðið sér úti um allt að 14- eíginmenn! Pandora — sem starfaði á sínum tíma sem nektardans- mær — neitaði ásökunum Mc Colms, og kvaðst rétt hafa hitt hann, en alls ekki giftst honum. En mótbárur hennar dugðu lítið. Talsmaður yfirvaldanna sagði blaðamönnum er verið var að undirbúa málshöfðun á hendur ekkjunni, að hún hafi haft svo marga eiginmenn, að þeir hefðu verið í vafa um hvaða nafn þeir hefðu átt að nota í ákærunni. Að lokum var Pandora Cooke ákærð fyrir 10 sinnum að hafa gifst í þeim til gangi að svindla fé út úr ríkis stjórninni. Eftir næstum því 10 ára hvíld frá kvikmyndaleik, ætlar Ingrid Bergmann aftur að taka til höndunum- Hennj hefur boðizt aðalhlutverk í njósnamynd, sem ber nafnið „Flótti í Vín“, sem taka á í byrjun næsta árs af Wamer Brothers. Síðasta mynd in sem Ingrid Bergman lék í, var tekin árið 1958 af sama kvikmyndafélagi. i iiriembKermn. Lúðvík Jósefsson var endur kjörinn varaformaður Sósíalista flokksins, og hann er einnig varaformaður Alþýðubandalags ins. Hann gegnir því afarmikil vægu hlutverki í tveimur stjórn málasamtökum, flokki og stjórn málasamtökum, sem kommúnist ar leggja kapp á að telja mönn um trú um, að sé eiginlega sama og flokkur, þó að haim megi ekki heita það, á sem sagt að vera flokkur og þó ekki flokkur, og verði vegna þeirra, sem vígðir eru Stalin að vera rjmsins vegna í peysu frá prjónastofunni Malin. Alþýðubandalagið á að vera kommúnistum skjólgott húð- fat í næðingum og gjósti þeim, sem um þá leikur nú, og yfir- feldskerinn er Lúðvík Jósefs- son. ,,Á varamönnum er vaxandi trú“, orti Jón á Akri einu sinni. Þau orð eiga sannarlega við um Lúðvík Jósefsson um þessar mundir, og spurning, hvort svo mikilvægri persónu hæfði ekki betur nafnið vara- konungur. „Til frekari úrvinnslu#/ En frásögn Þjóðviljans af 15. flokksþingi Sósíalistaflokks ins í gær ber það með sér, að það er engan veginn vandalaust verk að vera yfirfeldskeri í svona háþróuðu pólitisku sam félagi. Það virðist hafa böggl- azt eitthvað fyrir brjóstinu á kommúnistaþinginu að kveða á um hlutverk ofg starfsemi Sósí alistaflokksins. Að minnsta kosti segir Þjóðviljinn svo um afgreiðslu þess máls: „Einar Olgeirsson hafði fram sögu, einnig á kvöldfundinum, fyrir flokksstarfsnefnd. Lagði hún til að dröSum að ályktun um hlutverk og starfsemi Sósíal istaflokksins og framkomnum tilllögum um það mál yrði vísað til miðstjórnarinnar til frekari úrvinnslu. Var sú til- laga nefndarinnar samþykkt ein róma.“ En þótt þessu meginverkefni væri frestað, „var alllangt lið ið á nótt“, segir Þjóðviljinn, er Einar sleit þinginu og menn sungu internationalinn. Hörð mótmæli Útvegsmannafélag Reykjavík ur hefur samþykkt einróma mjög hörð mótmæli gegn fram komnum hugmyndum um að opna lendhelgina fyrir toKur um, og eins gegn frumvarpi stjórnarinnar um veiðarfæra- skatt. Einnig fær sjávarútvegs málaráðherra þunga ádrepu. í samþykktum fundarins segir m. a.: „Fundur í Útvegsmannafé- lagi Reykjavíkur, haldinn 3. nóv. 1966 lýsir undrun og ó- ánægju með vinnubrögð Báta útvegsnefndar og sjávarútvegs- málaráðherra. Telur fundurinn að þó farið yrði eftir tillögu nefndarinnar, þá séu þar al gjörlega ófullnægjandi úrræði til að mæta þeim gengdarlausu hækkunum sem orðið hafa á útgerðarkostnaði. Fundurinn lýsir ennfremur furðu sinni á þvi pukri, sem sjávarútvegs- málaráðherra hefur haft á um meðferð þessa máls. Fundurinn lýsir megnri óánægju sinni með ríkisstjórn, er byrjar ný hafin þingstörf með því að bor- frumvarp til laga '“vur á sjávariu "’>hald á bls. 12 Á VÍÐAVANGI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.