Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1926, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1926, Qupperneq 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 24. des. ’26. GAMLI BÆRINN Á BERGÞÓRSHVOLI. Frá Bergþórshvoli. ið metin til fjár. Sú, sem átti þar flest sporin, frú Sigríður kona sr. Geirs, dóttir Jóns Pjeturssonar há- yfirdómara, taldi ekki stundirnar eða handtökin, sem hún eyddi í garðinn sinn. Og svo er um þær hinar góðu garðyrkjukonur, heimilismæður, er eyða öllum frístundum sínum til að annast um og hlúa að öllu lífi gró- anda. Jeg kom í þennan garð í sumar. Það var í sólskinsblíðu. Garður- inn var allur í blóma. I svona görð- um finnur maður best til þess, hve garðyrkjan er samgróin starfi hús- mæðranna. — Þar andaði hlýrri kveðju við hvert fótmál frá húsmóð- urinni, er grætt hafði trje og blóm. Og þrösturinn, sem hreiður átti í hæðsta trjenu, söng skært og flátt — jeg lieyrði ekki betur en hann kynni við sig, og ljóðið hans var lofsöngur til lífs og fegurðar. V. St. Í|J|P> SJERA GEIR SiÆMUNDSSON í GARÐI SÍNUM. Mynd sú, sem hjer hirtist, er af gamla bænum að Bergþórshvoli. — Bær þessi er nú rifinn að nokkru leyti og er presturinn sr. Jón Skag- an og fjölskylda hans flutt í nýja húsið, er bygt var í sumar. — Þeir sem ákváðu hússtæðið fyrir hið nýja hús, álitu að það væri nægi- lega langt frá hinu forna bæjar- stæði til þess að brennurústin myndi eigi raskast, þegar grafið yrði fyrir grunni hússins. En þetta fór eigi að öllu leyti sem skyldi, eins og kunnugt er. Öld eftir öld hefir bærinn á Berg- þórshvoli staðið í sama stað og Njálsbærinn. Bygt hefir verið ofan á brennurústina og síðan hver bær- inn af öðrum — enginn veit hve margir. Nú er 2—3 metra moldar- lag ofan á brennurústinni. En nú er hægt að komast að henni. Nú má rífa tóftina af bæ þeim hinum síð- asta, er stóð á Njálsbæjarstæðinu, og myndin er af. Er óskandi að brátt verði hafist handa og moldar- laginu svift af Njálsbæjarrústinni, og alt, sem þar finst, verði varð- veitt og fái sómasamlegan geymslu- stað. Það er skylda þjóðfjelagsins að sjá um, að það verk verði unnið. Er óþarfi að fjölyrða um svo sjálf- sagðan hlut. Mætti það verk stuðla til þess að almenningi yrði meira umhugað um en hingað til að ann- ast um varðveizlu allra fornminja, sem finnast.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.