Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1941, Síða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1941, Síða 5
IjJSSBÓK MORGUNBLAÐSINS 317 ir. Hafði Snorri kallað til Snorr- ungagoðorðs í hendur honum og tekið trúnaðareiða af Dala- mönnum; kenndi Sturla honum og fjörráð við sig, þá er Vatns- firðingar fóru að honum. Loks hafði Órækja Snorrason gert sig beran að fjandskap við Sturlu cg leitað mjög á vini hans, með- an hann var utan. En mestu mun það hafa valdið, er hanr leitaði á Snorra föðurbróður sinn fyrstan allra, að þar var til mikils ríkis að slægjast, en Sturlu hefir grunað, að ekki mundi skelegglega tekið á móti, ef fast væri á leitað og með megum afla. Þeir feðgar riðu suður til Borgarfjarðar með 1200 manna og komu þar á pálmasunnudag. Var Snorri þá allur á burtu og hafði farið suður að Bessastöðum heldur en hætta til bardaga við Sturlu. Sturla rak utan Órækju og Þor- leif í Görðum Þórðarson, frænda sinn. Sá Snorri þá, að hann átti um sinn ekki uppreisnar von gegn yfirgangi Sturlu; hefir og skilið, hvað fyrir honum vakti og að honum mundi brátt lenda saman við þá, er væru bæði „harðvirkir og ráðugir" og áttu mikið undir sjer. Var þá gott að vera fjarri, og brá Snorri tii utanferðar sumarið 1237. En nú tók ekki betra við. Ekki var friðvænlegra í Noregi en á íslandi. Skúli jarl hafði í upphafi gert tilkall til konung- dóms í Noregi eftir Inga kon- ung, bróður sinn, en fylgismerm Hákonar Hákonarsonar urðu yf- irsterkari. Var það þá ráðið til sátta með þeim, að Hákon kon- ungur gekk að eiga dóttur jarls. En ekki hafði jarl orðið því af- huga, að setjast í konungs sæti, og þótt konungur hefði nú setið að völdum í tvo áratugi, dró nú eem óðast í sundur með þeim. Konungur hafði, skömmu áður er> Snorri kom til* Noregs, gert það til sátta við jarl, að gefa honum hertoga nafnbót. Var því enn heilt að sjá á milii þeirra, en glöggum mönnuni mun hafa skilist, að það væid ekki annað en svikahler og að óveðrið mundi brátt skella á. Snorri var lendur maður þeirra beggja, en nú hallaðist hann að Skúla hertoga og dvaldist lang- dvölum með honum og syni hans. Nú spurðust þau tíðindi af Islandi sumarið 1239, að Gizur og Kolbeinn ungi hefðu felt Sighvat Sturluson og 4 syni hans í orustu á Örlygsstöðum. Þóttu það mikil tíðindi og ill, ekki síst konungi, sem hafði sett Sturlu til þess að vinna land undir sig, og mátti til sanns vegar færa, að Sturla hefði fall- ið í konungs erindum. Snorri varð nú óðfús að hverfa heim aftur og heimta aftur ríki sitt. Tók hann orlof af hertoga, en konungur sendi Snorra orð og bannaði honum og förunautum hans útför á því sumri. Snorri var lendur maður konungs og því skyldur til þess að lúta banni hans. En hann skeytti því engu. ,,Út vil eg“, sagði Snorri. En áð- ur en hann ljet í haf, var hann í boði Skúla hertoga, ,,og var það sögn Arnfinns, að hertog- inn gæfi Snorra jarls nafn, og svo hefir Styrmir hinn fróði rit- að: ártíð Snorra folgsnarjarls. En engi þeirra Islendinganna ljet það á sannast fyrir oss“, segir Sturla Þórðarson. Verður að gera ráð fyrir, er Snorri virti bann konungs vettugi, að hon- um hafi verið orðið kunnugt um þá fyrirætlun hertoga, sem hann framkvæmdi á næsta ári, að hefja uppreisn gegn konungi, og hefir hann talið allar líkur til þess, að hertoginn mundi reynast sigursæll í þeim við- skiftum. Snorri tók nú aftur ríki sitt viðstöðulaust og hafði sig lítt frammi. Spurðist þegar á næsta ári uppreisn Skúla hertoga og líflát hans. Hefir Snorra þótt ráðlegt að hafa hægt um sig, enda átti hann þess engan kost, að halda til jafns við þá Gizur og Kolbein unga, þótt hann hefði viljað. Sumarið 1241 andaðist Hall- veig Ormsdóttir. Synir hennar. en bróðursynir Gizurar, Klæng- ur og Ormur Bjarnarsynir, áttu að taka arf allan eftir hana, helming af eignum Snorra, sam- kvæmt samningi þeirra. Sóttu þeir á fund Snorra til fjárskifta. En þeim kom ekki saman um skiftin, því að Snorri var enn sem fyr fastheldinn á fje og virðist hafa ætlað sjer að sitja yfir hlut þeirra. Þeir bræður sóttu þá Gizur að liðveislu, og var það mál auðsótt. Ári fyr hafði komið út Árni óreiða, sem eitt sinn var tengda- sonur Snorra. Hafði hann út brjef konungs til Gizurar, þar sem konungur bauð, ,,að Gizur skyldi Snorra láta utan fara, hvort er honum þætti ljúft eða leitt, eða drepa hann að öðrum kosti, fyrir það er hann hafði farið út í banni konungs; kall- aði HákonkonungurSnorraland- ráðamann við sig“. Gizur hjelt brjefunum lítt á lofti fyrst í stað. Hefir hann verið óráðinn í því, hvern veg hann skyldi bregðast við boði konungs. Hefir hann þó, eíns og síðar kom fram, verið þess albúinn, að framkvæma vilja konungs; hitt hefir meir vafist fyrir honum, hvort hann skyldi senda Snorra utan eða taka hann umsvifalaust af lífi. Iíyggindin rjeðu jafnan athöfn- um Gizurar, og hyggindiii kendu honum, að ekki væri ráð- le^t, að Snorri næði fundi kon- u.ngs og sættist ef til vill við hann heilum sáttum. Það gat verið hættulegt Gizuri og kom- ið í veg fyrir þær fyrjrætlanir, sem hann hefir haft um völd og íorræði sjer til handa. En það er bert af orðum þeim, sem höfð eru eftir konungi í sögu hans, að hann hefir til þess ætlast, að Snorri væri sendur á sinn fund; hefir hann vitað, að meira gagn gat hann- af honum haft lifandi en dauðum við til- raunir sínar að ná yfirráðum á íslandi. Sumarið 1241 hafði Gizur ráðið, hvað gera skyldi, og hann var öruggur til fram- kvæmda. Um sumarið hittust þeir Kolbeinn ungi á Kili ,,og gerðu ráð sín, þau er síðan komu fram“. Síðan stefndi Gizur að sjer mönnum, voru í flokki hans Klængur og Ormur Bjarnarsyn-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.