Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1945, Síða 1
13. tölublað.
Fimtudag'ur 29. mars 1945
XX árgangur.
I»»told»rpr%ot»niiðj« ti.ft
'onóóon, nrofeóáor:
LUDVIG HARBOE
NOKKRIR ÞÆTTIR AF GÓÐUM GESTI
T.
„FÁTT er frá Dönum, sem gæfan
* oss gaf“,
kvað Þorsteinn Erlingsson á ald-
arafmæli Rasks, 1887, og hneykslaði
vora góðu frændur við Eyrarsund
ákaflega, sem von var. En- sann-
leikurinn er sá, að þegar litið er
á samskipti þessara þjóða fram
eftir öldum, er erfitt að verjast
því, að þessi setning Þorsteins komi
í hugann, hvenær sem sönrtum
dönskum Islandsvini bregður fyrir.
Einn þessara sjaldsjeðu manna
var Ludvig Harboe.
ITann kemur hingað einmitt um
þær mundir er hvað minnst hafði
verið um góðar sendingar að sunn-
an, kemur þegar lífsaflið virðist
vera ða tæmast úr þjóðinni, m. a.
vegna ráðstafana stjórnarvalda.
TI.
AUMT var og ömurlegt, að litast
hjer um bekki á fyrra helmingi 18.
aldar. Og þó átti allt eftir að versna
— nema stjórnarfarið. Það tekur
nú að breytast til meiri góðvildar
og aukins skilnings.
Arið 1739 andaðist Steimí Jóns
son ITólabiskup, nýtur og góðvilj-
aður karl, greindur og skáldmælt-
ur, en ekkert mikilmenni um neitt.
Hann hafði tekið við biskupsdómi
eftir' oflátann Björn Þorleifsson, og
urðji í því efni mikil misskipti, því
að Steinn var lítillátur maður. Um
þær mundir, sem Björn biskup and-
aðist, 1710, var ófviður og höfin