Lesbók Morgunblaðsins - 13.01.1946, Síða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS W \ ím - '*■« * r n
Afferming’.
1844 m., þar af 480 m. bátabryggjur.
Stofnkostnaður hafnarinnar, sem
var fyrst 1 ’/í milj. kr. nemur nú alls
14 V2 milj. kr. Eign í árslok 1944 var
talin 9.7 milj. kr. En skuldir hafnar
sjóðs voru á sama tíma 0.84 milj. kr.
Voru hafnargjöld þó ekki hækkuð
þrátt fyrir dýrtíðina fyrri en í ágúst
1943. —
En á kreppuárunum fyrir stríð
var ísl. skipum gefin eftir hafnar-
gjöld að nokkru leyti, einkum fiski-
skipunum.
Eins og fjárhagur Reykjavíkur-
hafnar sýnir, hefir fjármálastjórn
hennar verið rekinn með mikilli hag-
sýni og gætni. Það þótti í mikið ráð
ist, er höfnin var bygð, og allrar var-
úðar þyrfti að gæta. Hafnarnefnd
armennirnir Tryggvi Gunnarsson og
Jón Þcrrláksson og þáverandi borgar-
stjóri, Páll Einarsson, lögðu grund-
völlinn að hagkvæmum rekstri hafn
arinnar. Knud Zimsen borgarstjóri
og þórarinn Kristjánsson tóku við,
er hin fyrstu hafnarvirki voru full-
gerð. Allir voru menn þessir bjart-
sýnir um hag hafnarinnar í framtíð
inni og gagn það er hún gerði landi
og lýð. Hefir þessari merkustu stofn
un Reykjavíkurbæjar, sem kalla má
lífæð hans verið stjórnað með þeirri
hagsýni, er samfara heilbrigðri bjart-
sýni, jafnan einkennir stefnu og
störf Sjálfstæðismanna.
- Molar -
Biblían var prentuð í fyrsta sinn
á árunum 1450—55.
•
Uruguay er minsta ríki Suður-
Ameríku, 72.153 fermílur að stærð.
Höfuðborgin er Montevideo.
i
*