Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1946, Side 9
85
t
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
.1 .11 ... .1,. .
Fjallgöngur er mikið iðkuð íþrótt í Sviss. Þœr eru oft erfiðar og áhœttusamar. Myndin
sýnir fjallgöngumcnn flytja slasaðan mann yfir djúpa gjá.
■
Wiim
ílokkur haíi nokkru sinni feng'ið
til kosningabaráttu, sje 1000 frank-
ar. Svissi nokkur, sem dvalist hafði
í Bandaríkjunum, kom heim og ætl
aði nú að nota sjer það sem hann
hafði lært þar í áróðri. Hann lcigði
sjer kosningaskrifstofu, helt ræð-
ur.sýndi af sjer risnu og bar gjaf-
ir á menn. Kjörmennirnir tóku
þessu öllu ofur gjóðlátlega. En þeg-
ar til kom gaf ekki tíundi hver
maður honum atkvæði sitt.
Svissar eru ekki allir af sama
þjóðflokki og þeir tala ekki allir
sömu tungu. Þeir cru og skiftir í
trúarbrögðum og mcnningu. Þeir
eru þýskir, franskir og ítalskir. En
eitt eiga þeir sameiginlega — lýð-
ræðið. Þýski mjolkurbústjórinn í
Appenzell talar ekki sama mál og
franski verksmiðjumaðurinn í Genf
En þeir skilja hvor annan. Hver
landshluti hefir sín einkenni. En
undir einkunnarorðunum: „Einn
fyrir alla og allir fyrir einn“ hafa
þeir þjappað sjer saman í eina þjóð
sem hefir staðið af sjer öll ólög.
Fyrra heimsstríðin reyndi mjög
á þolrif þessa þjóðfjelags frjálsra
manna. Hinir þýskumælandi Sviss-
ar drógu taum Þjóðverja, því að
þeim voru þeir tengdastir, menn-
ingarlega sjeð. Frönsku kantónurn
ar fylgdu Frökkum í anda og voru
rnjög hlyntar bandamönnum. En
þegar á reyndi, þá varð ábyrgðar-
tilfinningin og hollustan við lýð-
veldið þyn'gra á metunum en þýsk
og frönsk frændsemi.
Eftir stríðið voru Svissar ekki
betur staddir. Lýðveldi var þá lít-
ils metið í Evrópu. Kommúnism
inn breiddist frá Kússlandi yfir
Ungverjaland, Þýskaland og ítaffu.
Og svo kom fasisminn og nasism-
inn. Báðar þær stefnur höfðu tals-
verð ítök í Sviss, eins og öðrum
löndum. Ungir svissneskir fasistar
dáðust að framtaksemi og stjórn-
semi einræðisherranna, og þeir
stofnað hið svokallaða Járnskýfa-
bandalag, sem átti að kollvarpa
lýðræðinu.
En lýðræðið átti sjer svo djúp-
ar rætur hjá þjóðinni, að þeir
fengu engu áorkað. Þegar kjós-
andi er sannfærður um það, að
t
i