Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1946, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1946, Síða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS r, , '.'I V 89 að þú ættir anríkt“. En það er sú mesta svívirðing, sem hægt er að segja um nokkurn mann. Það er siður þarna að taka ofan fyrir hverjum „jafningja eða æðra manni“, sem maður mætir, stað- næmast og taka í höndina á hverj um jafningja, spyrja um líðan hans og allra venslamanna hans, og kveðja hann síðan með handa- bandi; þetta verðurðu að gera hversu oft sem sú mætir honum á dag. Sá, sem þykist æðri, heilsar á ýmsan hátt; stundum tekur hann kveðju afar vingjarnlega, ef hann þykist ekki lítillækka sig með því, en það rymur að eins í honum þeg ar Indíáni heilsar. Indíánar eru alt af þúaðir, „því að það er engin á- stæða til að sýna þeim minsta vir’ðingarvott“, eins og einn af kunningjum mínum sagjði. Eftir nokkurra mánaða viðkynningu hefði jeg getað sagt hið sama um hann; en það er önnur saga. VIII. Hausaveiðimenn CUENCA tekur Quito fram og fyrsta daginn, sem jeg var þar, skrifaði jeg í vasabókina mína: „Af öllum þeim stöðum, sem jeg þekki á jörðinni, er best loftslag í Cuenca“. Þar er altaf mátulega heitt. Sólskin er þar miklu lengur en myrkur og umhverfið er dá- samlegt, ekki beinlínis vegna fjaila sýnar, heldur 'végna hins mikla gróðurs, sem er í dalnum. Incar kölluðu dalinn Paucarbamba, en það þýðir „blómagrund“. Cuenca gæti verið einhver auðugasta jarð ræktarborg í heimi. En þar er ekki einu sinni gististaður, nema í ein- hverjum óþrifalegum Indíánakofa. Gestur verður því að leita á náðir vina vina sinna. Og að þessu sinni g'afst mjer það vel. Hjá þeim Montesinos-bræðrum fjekk jeg inni óg var þar eins og heima hjá mjer. Þeir eru synir fyrrverandi landstjóra í Azuay-fylki, eru lög- fræðingar og kennarar við háskól ann í Cuenca, mentuðustu menn- irnir um þær slóðir. Annar þeirra kendi frönsku og ensku, en gat hvorugt málið talað. Árið 1899 þþf þessi gæflyndi maður upp- reisn gegjn Franco hershöfðingja, blóðþyrstum hálfnegra, sem þá var stjórnarforseti, og hafði verið fylkisstjóri í Azuay. Uppreisnin misheppnaðist og Montesinos varð að flýja inn í skóga og hafast við mánuðum saman meðal hinna viltu Jivaro Indíána, hinna alræmdu „hausaveiðimanna“. Jeg hafði átt bágt með að trúa því að ástandið í Equador væri jafn slæmt og það kom mjer fyrir sjónir. En Montesinos sagði að það væri miklu verra. Hann fullyrti að lögregjluþjónarnir væru allir glæpamenn; allir þjófar og bófar, sem ekki fengist dæmdir, væru gerðir að lögregluþjónum. Stjórn in hugsar ekkert um Cuenca, eða suðurhlutann af Equador, nema hvað hún heimtar þar inn skatta og gjöld. Alt er þar í niðurníðslu. Póstsamgöngfur eru svo slæmar. að þriðja hver brjef kemur fram að eins, og böglapóst verða þeir sjálfir að sækja til Guayaquil; hann er látinn liggja þar þangað til hann er sóttur. „Vjer þekkjum það að eins af sögusögn“, sagði Montesinos, „að til sje í heiminum lönd þar sem ríkir frelsi og menn- ing“.----- Flestir mentamenn í Cuenca höfðu leigjt sjer sal og yfir dyrum hans stóð með stóru letri: „English Langúage Club“. Þarna söfnuðust þeir saman mörgum sinnum í viku til að tala ensku. En sannleikurinn var nú sá að um mörg ár hafði enginn ensku- mælandi maður verið í Cuenca eða nágrenni hennar. Þeim þótti það því fengur að fá mig og buðu mjer þegar í klúbbinn. Þar sat jeg1 eins og hæstaráð, umkringdur af dokt- orum, því að það er fult af dokt- orum í Cuenca. Menn voru að kreista upp úr sjer heilar og hálf- ar setningar á ensku, þangað til eitthvert gáfnaljós sagði, að þar sem þeir hefðu svo virðulegan gest hjá sjer, þá væri þetta „auka- fundur“ og þá þyrfti ekki að fylgja settum reglum. Það var því eng- in skylda að tala ensku á þessum fundi. Menn tóku undir þetta með fögnuði, og skeltu á skeið á spönsku. Seinna komst jeg að því, að settar reglur gerðu alls ekki ráð fyrir því að enska væri töluð á fundum, nema þegar einhver virðu legur gestur væri viðstaddur. Skamt frá Cuenca, hinum mbg- in við iiálsana. er Jivaros þjóð- flokkurinn, hinir illræmdu hausa veíðimenn hjá efri Amazon. Montesinos þekti þá vel, því að hann hafði dvalist hjá þeim. eins og áður er sagt. Þetta er herskár og viltur þjóðflokkur og' á svo að segja sífelt í ófriði við nágranna sína. Þeir telja hvíta menn jafn- ingja sína og eru gestrisnir við þá, á meðan þeir brjóta ekki neitt af sjer. En hina þrælkuðu Indíána, sem klæðast fötum, fyrirlíta þeir og telja þá ekki menn. Þegar Jivaro Indíáni hefir lagt óvin sinn að velli, er það hans fyrsta verk að sneiða hausinn af líkinu, niður við axlir. Svo spretta þeir á húðina í hnakkanum og flá alt . höfuðleðrið af beinunum, sauma svo saman skurðinn og var irnar. Þá þurka þeir þetta með heit um steinum og hafa til þess ein-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.