Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1949, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1949, Blaðsíða 15
LESBÖK MORGUNBLAÐSÍNS 491 AMERISKAR RÚSSI nokkur vildi fá amerískt borgárabrjef. Hann fór á skrán- ingarskrifstofuna í New York og með honum kom annar Rússi, sem lengi hafði verið í Bandaríkjunum. Nú vildi svo illa til að umsækj- andinn kunni mjög lítið í ensku og vissi blátt áfram ekkert um sögu nje stjórnskipun Bandaríkjanna, nje hin helstu lög. Sá, sem yfir- heyrði hann sagði því við fjelaga hans: — Þessi vinur þinn veit blátt áfram ekki nokkurn skapaðan hlut af því, sem hann þarf að vita. Farðu burt með hann og reyndu að útskýra fyrir honum stjórnarskrá Bandaríkjanna og helstu atriði stjórnarfarsins. Það þýðir ekki fyr- ir hann að koma aftur fyr en hann veit eitthvað um þetta. Þeir fóru, en komu aftur eftir hálfa klukkustund. — Hvað er ykkur nú á höndum? — Nú er alt í besta lagi, sagði fylgdarmaðurinri. Jeg hef lesið stjórnarskrána fyrir vin minn, og hann segir að sjer líki hún ágæt- lega. IJNGUR íri var nýkominn til Bandaríkjanna. Hann var einn síns liðs, því að fjölskylda hans hafði tvístrast um allan heim. Skömmu eftir að hann kom til New York, fór hann að skoða dýragarðinn þar og sá þar margt, sem honum þótti furðulegt. En sjerstaklega varð honum starsýnt á stóra kengúru. Seinast sneri hann sjer að umsjón- armanni og spurði: — Hvaða skepna er þetta? Umsjónarmanni varð ekki svara- fátt og hann romsaði upp úr sjer: — Þetta er spendýr, sem bcr unga sína i poka a kviónum, Iifu' aðallega á grasi og rótum, getur KÍMNISÖGUR • stokkið tuttugu fet, er svo sterkt í afturlöppunum að það getur sleg- ið fullorðinn mann í rot og á heima í Ástralíu. — Guð hjálpi mjer, sagði írinn og fór að hágráta. Systir mín er þá gift einum af þeim! UNGUR læknir kom örþreyttur heim seint um kvöld. Hann hafði naumast. sofið dúr í heila viku, og hann sagði við konu sína að ekki mætti vekja sig nema í lífsnauð- syn. Klukkan 2 um nóttina kom kon- an að vekja hann. Hún kallaði, hún ýtti við honum, en ekkert dugði. Seinast rak hún framan í hann kalt og blautt handklæði og þá rumsk- aði hann. Hún sagði að hann yrði að fara á fætur undir eins, frú Smith nágrannakona þeirra heiði fengið aðkenningu af slagi. Hann staulaðist á fætur hálfsofandi, náði í tösku sína og fór til frú Smith. Hann gekk inn í svefnherbergi hennar og þar lá hún, þetta fitu- hlass og átti örðugt um andardrátt. Hann athugaði slagæðina, mældi hana og settist svo á rúmstokkinn, lagði eyrað við bert brjóst hennar og sagði: — Gerið svo vel að telja upp- hátt: einn, tveir, þrír og svo fram- vegis þangað til jeg segi yður til. Svo vissi hann ekkert af sjer fyr cn bjartur sólargeisli fcll beint framan í hann. Og þá heyrði hann kvemnannsrödd, sem taldi: — Niu þusund sjöhundruð og einn, níu þúsund sjö hundruð og tveir... . Á trúboðssamkomu. Ræðumaður \ai að tala um eiliía utskúfun og af brermanói átiuga sknraði hann á áheyrendur að forða sjer undan henni. — Ó, vinir mínir, sagði hann, á dómsdegi mun verða grátur, óp og gnístran tanna. Þá stóð upp gömul kona aftarlega í salnum og sagði: — Jeg hef engar tennur. — Það er sama, svaraði ræðu- maður. Tönnum verður úthlutað. 4/ Íí iW Á V BRIDGE • Þetta spil var nýlega spilað á bridge- kepni í Noregi og varð yfirleitt tap- spil. S. G 10 7 2 H. 9 8 2 T. G-6 4 L. Á 10 9 S. D 6 5 H. D 5 4 T. Á K 9 2 L. 6 5 2 N V A S S. 4 H. K 7 3 T. D 10 8 7 5 L. 8 7 4 3 S. Á K 9 8 3 H. Á G 10 8 T. 3 L. K D G Vestur gaf og þrjár hendur sögðu pass, en S opnaði sögn á einum spaða N svaraði ýmist með grandi eða tveirn- ur spöðum og það endaði altaf með 4 spaða sögn. Hjer skal nú rakið hvernig spilað var á einu borði. V sló út T K og svo sló hann út á6num, en S trompaði. Svo tók S á trompás og trompkóng, en úr því að drotningin kom ekki í, var spilið tap- að. Ekki var nema ein innkoma í borði (L. Á) og þess vegna hlutu A og V áð fá tvo slagi í hjarta. Það var þýðingar- laust að slá út trompi undir drotning- una í þeirri von að koma blindum Scinna inn á gosann, því að V slær auð- vitað út tigli, sem S verður að dreþa með seinasta trompi sinu. En það er hægt að vinna spilið með því að slá út lágtrompi á eftir ásnum og lofa mótspilamönnum að fá slag þegar á drotninguna. Næsta tigulspil er svo drcpið með S K og nú eru tvær innkomur lijá N til þcss að hann gcti spilað hjarta „í gegn“. Með þvi móti tanast ekki nema einn slagur í hiarta.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.