Lesbók Morgunblaðsins - 30.10.1949, Side 16
492
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Um Guðmund dýra.
Sá skaplöstur sótti Guðmund, að
hann elskaði konur fleiri en þá, er hann
átti (Sturl. I.)
Glímugaldur.
Ýmsir trúa því, jafnvel á vorum dög-
um, að hægt sje að verða ósigrandi í
glímu, ef menn kunna töfrabrögð þau,
er glímugaldur kallast. Hann er í því
fólginn, að menn rista tvo galdrastafi
og koma öðrum undir hælinn, en hin-
um undir tærnar á hægra fæti. En ef
maður mætir nú öðrum, sem slyr.gari
er í töfrabrögðum, fellur sá, er minna
kann og annað hvort handleggsbrotnar
eða fótbrotnar í fallinu. (E. Ól.)
Fallegur bær.
í „Bauksvísum“ óskar Hallgrímur
Pjetursson sjer þess að hann ætti fimm
hundraða jörð og fallegan bæ. Lýsir
hann því svo, hvernig bærinn skvldi
vera:
Bygður upp með brattan kjöl
bústaðurinn skyldi sá,
með rauðstrykaðri reisifjöl
og rendum súðum utan á.
Fágaður með fjalagóLf,
fallega hlaðinn alt um kring.
Vinnuhjúin tíu og tólf
að taka vakt á bygðarhring.
Jón prestur Jónsson
helt nú Prestbakka. Það er sagt að
hann hefði ábrýði mikið um konu sína
Valgerði, og kom svo, að hann varð
eigi með heilli sinnu. Það var og mælt,
að Sigurði á Hvalsá þætti Valgerður
góð, kona prests. Var henni og kent
jafn mikið. Tók nú Jón prestur að
hafa útreiðar og heldur Ijet hann
ankannalega. Er það eitt til dæma
talið, að hann keypti hund gráan og
reiddi oft fyrir framan sig. Hefur það
sagt verið, að því spáði hann Valgerði
konu sinni, að eiga mundi hún Sigurð
á Hvalsá og með honum tvenna tví-
bura, en dæi að hinum síðari. — Jón
prestur dó 1835. En svo fór að Sigurð-
ur fekk Valgerðar. Var hann maður
vel að sjer. En svo fór, sem. sagt er
að prestur hafi fyrir spáð, að hún ól
tvenna tvíbura, en dó að hinum síð-
SVIFFLUGFJELAG íslands var stofn ð 1937. Þegar á öðru ári tókst einum
l'jelagsmanna (Kjartani Guðbrandssyni) að halda sjer á flugi í 5 klukkustund-
ir. Svo iiðu fimm ár þangað til slíkt afrek var aftur af hendi leyst, (Agnar
Kofoed-Hansen). Nú hafa 25 fjelagar leyst þessa þraut af hendi og einn mað-
ur (Magnús Guðbrandsson) hefir meira að segja verið á flugi rúmar
15 klukkustundir samfleytt. Hæsta flug er 5600 m. eða 18 þús. fet. — Svif-
flugfjelagið á nú 8 góðar svifflugur, og 3 svifflugur eru til á Akureyri. Flest-
ar hafa þær verið smíðaðar hjer á landi. Hjer á myndinni sjást tveir ungir
flugmenn. sem eru að smíða sjer svif flugu. (Ljósm. Ól. K. Magnússon).
ari, en þau höfðu ei full tvö ár saman
verið. Lá hún á gólfi í 5 dægur og varð
ei vakin, áður læknisdómur kæmi frá
Bjarna presti Eggertssyni, er þá hafði
fengið Kvennabrekku; raknaði hún þá
við. Síðast lagði hún hendur um háls
bónda síns, áður hún andaðist. Og sagt
er að hann kvæði eftir hana ljóð, all-
harmsfullur. (G. Konr.)
Sjáandi hvolpar.
Alla varúð verður að hafa þegar
hvolpar eru valdir til lífs; fyrst er það
að þeir sjeu ekki gotnir sjáandi, því
ef svo er á að drepa þá hið bráðasta.
Annars hverfa þeir í jörð niður begar
þeir eru þriggja nátta, en koma upp
aftur á sama stað að þrem árum liðn-
um, en þá eru þeir orðnir svo voðaleg
ófreskja, að hver sú skepna deyr, sem
verður fyrir augum þeirra. Ef svo illa
fer verður að stilla svo til, að ókind
þessi sjái fyrst sjálfa sig í spegli, er
hún kemur upp, því að það er hennar
bráður bani. Ólafur Davíðsson segir að
syðra sje hvolpar þessir kallaðir moð-
ormar, grafi sig í jörð eftir mánuð og
sje þar langan tíma, sumir segi missiri.
Brynjólfur á Minna-Núpi segir að sjá-
andi hvolpar fæðist því aðeins, að móð-
irin gjóti tíu í einu.
Björn Halldórsson
varð aðstoðarprestur í Sauðlauksdal
1759. Þegar hann húsvitjaði í fyrsta
sinn, grenslaðist hann eftir kunnáttu
sóknarbarna sinna, eins og venja var.
Karl einn gamall var þar í sókninni og
spurði prestur hann hvort hann kynni
nokkurt gott guðsorð. Karl kvaðst
kunna fallega bæn. Prestur spurði
hvernig hún væri og var hún á þessa
leið:
Engillinn mætti mjer
á miðri braut,,
hafði horn í vanga
og stangaði mig sem naut.
Vaki vörður guðs
vel yfir mjer.
Ekki er getið um hvernig presti líkaði
bænin.