Lesbók Morgunblaðsins - 26.03.1950, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 26.03.1950, Page 1
12 tölublað. Sunnudagur 26. mars 1950. XXV. árgangur. GLLL í VATNSHiVRIIMIMI Gullborinn að verki í Vatns- mýrinni sumarið 1907. Myndin tek- in eftir póstspjaldi sem Sigfús Eymundsson gaf út. EINN AF höfuðókostum Reykja- víkur fram á þessa öld, var vatns- skortur. Hjer voru tiltölulega fá vatnsból, brunnar og lindir, vatn- ið í þeim lítið og óvíða gott, en alls staðar hætta á að sóttkveikjur kæmist í vatnsbólin og gæti vald- ið farsóttum. Guðmundur Björnson varð hjer- aðslæknir hjer árið 1895. Hann gekk með miklum skörungsskap fram í því að reyna að koma betra lagi á heilbrigðismálin og sjerstak- lega hafði hann mikinn ýmugust á vatnsbólunum. Árið 1903 flutti hann svo opinberan fyrirlestur um vatnsveitu fyrir Reykjavík, hver höfuðnauðsyn það væri frá heil- brigðissjónarmiði að hún kæmi sem fyrst, og hvílíkt hagræði það væri fyrir bæarbúa að fá hreint, renn- andi vatn inn í hús sín. Guðmundi hafði hugkvæmst að hægt mundi að sækja vatn handa Reykvíkingum í Esjubergs-^il og leiða vatnið þaðan í pípum neðan- sjávar yfir Kollafjörð. Ýmsir töldu þetta hreina fásinnu, en bað varð þó til þess, að bæjarstjórn sneri sjer til Mr. Pike Ward í Hafnar- firði og bað hann að afla upplýs- inga um hvort þetta mundi fram- kvæmanlegt. Árangurinn af þeirri málaleitan varð sá, að sumarið eft- ir voru fengnir hingað tveir verk- fræðingar frá verkfræðingafirm- anu Willie & Co. í Englandi, til þess að athuga öll skilyrði hjer til vatnsveitu. Mun þeim hafa þótt tiltækilegast að sækja vatnið inn í Elliðaár. Bærinn átti þá ekki Elliðaárnar og gat því ekki sótt vatn þangað.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.