Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1950, Síða 11
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
:x *" 575
Bertrand Russel:
istök
komnmnisiiDans
INÍokkrar athugasemdir við „Guðinn, sem brást'
i GREIN þessi er eftir liinn heims- 1
[ fræga rithöfund og heimspeking
Bertrand Russell, en hann hefur
nýlega verið sæmdur Nobeisverð-
laununum.
Grein Bertrand Russells fjallar
um hina merku bók, „Guðinn,
sem brást“, þar sem sex víðfrægir
andans menn og fyrverandi fylg-
ismenn kommúnismans gera grein
fyrir fráhvarfi sínu. „Guðinn, sem
brást,“ er nýkomin út í íslenskri
þýðingu.
. ---- ■ ■ ■ .■ - ■ ' ■ ■■ ■
Á HINUM myrku dögum fyrri
heimsstyrjaldarinnar birtist rúss-
neska byltingin eins og skyndileg-
ur, gullinn morgunroði á austur-
himni. Bandalag vestrænu þjóð-
anna og harðstjómar keisarans, er
staðið hafði síðan 1907, hafði hvílt
þungt á samvisku allra framsæk-
inna og mannúðlegra hugsandi
manna. Nú virtist loksins sem meta
-skál sögunnar myndi sveigjast í
vil hugsjóna okkar undan ægi-
þunga Rússlánds. Híð blinda og
lygafulla hatur, sem afturhaldið
sýndi Rússlandi þá, gerði það auð-
velt að úrskurða hverja gagnrýni
sem hreinan áróður. Þegar mjer var
það ljóst 1920, að markmið og leið-
ir sovjetstjómarinnar samrýmdust
ekki skoðunum mínum í stjórn-
málum, var jeg fordæmdur af
vinstrisinnuðum vinum mínum
sem níðingur. En smám saman hef-
ur tala þeirra, sem hafnað hafa
kommúnismanum, aukist æ meir.
í hinni stórfróðlegu og merku
bók „Guðinn, sem brást“ hafa sex
mikilsverðustu „trúvillingarnir“,
— Arthur Koestler, Ignazio Silone,
Richard Wright, André Gide, Louis
Fischer og Stephen Spender, —
skýrt frá ástæðunum, erb-sönnun-
arkraft þeirra, — enda þótt þær
sjeu frábrugðnar innbyrðis, — gæti
enginn dregið í efa annar en blind-
ur kenningatrúarmaður. í öllum
bessum tilfellum urðu vonbrigðin
í rjettu hlutfalli við einlægni og
dýpt hinnar upprunalegu trúar.
Maður ætti að reyna að ímynda
sjer Jóhannes skírara, fluttan fyrir
kraftaverk til hirðar Alexanders
páfa sjötta, og hugsa sjer, að hann
hefði orðið að vera vitni að laun-
morðunum við þá hirð og sjá,
hvernig páfinn — í nafni frelsar-
ans, sem Jóhannes boðaði — eggja
son sinn Cesar Borgia til hinna
hryllilegustu glæpa. Svipaðar and-
legar þjáningar hafa þessir sex
höfundar liðið síðustu þrjátíu ár
Auðvitað brutu vcnir þeirra í bág
við alla skvnsemi því að hvorki
Lenin eða Marx gátu flutt boð-
skap, sem stuðlaði verulega að vel-
ferð mannkynsins. Það er ekki
hægt að uppskera þrúgur og þistla
á sama akri, og rit Marx og Len-