Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1950, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1950, Síða 13
LESBÓK MORGUNBLABSINS 577 innar urðu að lokum, — hvort sem það var vegna andúðar á rúm- fræði eða ástar á baunum, — and- vígir honum, og hann varð að flýja, Mikilvægara dæmi er mið- aldakirkjan, sem þrátt fyrir það, að hún var bygð á trú mannkærleik- ans, gerði sjer ákaft far um að afla trúarsetningum sínum gildis með jafnandstyggilegum hlutum og rannsóknardómstólunum. Hið púr- ítanska veldi Cromwells var á margan hátt svipað kerfi Lenins. Frá því að hafa í byrjun hylt frelsi og lýðræði, lauk því með því að koma á fót hatursfullri hernaðar- stjórn. Franska byltingin, sem í upphafi bygðist á mannrjettindun- um, framkallaði fyrst einn Robes- pierre og síðan einn Napóleon, en hvorugur sýndi nokkra sjerstaka virðingu fyrir mannrjettindunum. 1 öllum þessum tilfellum skapaðist iiið illa af blindri trú á eitt alls- herjar meðal, — svo blind trú og svo dásamlegt allsherjar meðal, að maður áleit hverja grimd leyfilega í þágu takmarksins. í hverju þessara dæma, eins og i Sovjetrússlandi, má finna .sálfræði* leg mistök. Valdið er ljúft, það verkar eins og eitur, sem menn sækjast meira og meira í, eftír því sem þeir venjast því. Sá sem hefur tekið völdin í sínar hendur, þótt það hafi skeð í hinu göfugasta augnamiði, telur sjer fljótt trú úm, að það sjeu góðar ástæður til þess að sleppa þeim ekki aftur. Þetta skeður því fremur sem valdhafarn- ir álífa sig vera talsmenn gífurlega mikilvægs málstaðar. Þeir skoða. því andstæðinga sína fávísa þver- höfða, og brátt kemur að því, að þeir hata þá. Þeir hugsa um það bil þannig: Hvaðan fær þetta vesæla fólk rjett til þess að vera í vegi fyrir Þúsund ára ríkinu? Ef \dð neyðumst til að ofsækja það, þá er það að vísu mjög leitt, en þar sem heflað er, þar falla spænir. Smám saman verða þessir forvígismenn, eftir að þeir hafa komið á veldi fárra, leystir af hólmi í sjerrjettinda aðstöðu sinni af hversdagslegu fólki, sem ekki hefur svo sjerlega mikinn áhuga á bví að stofna þúsundáraríkið. Þess- ir nýu menn álíta það helsta hlut- verk sitt að halda fast í voldín, en þó ekki sem meðal til að skapa paradís á jörðu. Og svo verður það. sem eitt sinn var meðal, sjálfur til- gangurinn: hið upprunalega tak- mark hverfur í handraðann, og er aðeins sótt þangað við hátíðleg tækifæri. Þetta er gömul saga, sem hverjum áetti að vera kunnug, en samt hafa Lenin og aðdáendur hans látið undir höfuð leggjast að draga hina siðferðilegu ályktun af henni. Auk þess eru heimspekileg mis- tök með í leiknum. í hinni löngu sögu mannlegrar fíflsku má finna óteljandi kennisetningar, sem seinna reyndust vera rangar, en sem menn einu sinni trúðu svo fast, að þeir álitu sig hafa rjett til þess að ofsækja sjerhvern, sem ef- aðist Menn voru sannfærðir um að f jölkyngi, kukl og svarti galdur væru framin, enda þótt slíkt værí brotlegt. Óteljandi fómarlömb urðu að deya kvalafullum dauð- daga vegna þess að þau voru álit- in sek um þessar syndir. Spönsk stúlka var lögð á kvalabekkinn vegná þess að hún hafði farið í hrein föt á laugardegi og auk þess látið þau orð falla, að hún gæti ekki þolað flesk, — það nægði til þess, að rannsóknardómstóllinn skoðaði hana Gyðing. Kvekarar voru ofsóttir, af því að þeir trúðu á nýa testamentið, og fríhyggju- menn, af því að þeir trúðu ekki á það. Allar þessar ómannlegu fjar- stæður fóru minkandi á 18. öld og hurfu í rauninni algerlega á 19. öld. En á okkar dögum hafa þær verið endurlífgaðar. Trúarsetning- ar hinnar rökrænu efnishyggju eru nákvæmlega eins furðulegar og þær, sem ríktu í Konstantinópel á 6. öld (en eins og kunnugt er hlaut Justitianus keisari að áliti samtíð- ar sinnar að hafna í helvíti sem „aphtardoket“, þ. e. hann trúði því, að líkami Krists væri óeyðandi). Og refsingin fyrir villutrú í Rúss- landi nútímans er eins ströng og á nokkru öðru ofsóknartímabili. Og alt þetta — ó, hámark mótsagn- anna! — í nafni hins „vísindalega sósíalisma." Oft er rökrætt á þennan hátt: við verðum að breyta eftir sann- færingu okkar. Ágætt, en hvernig eigum við að breyta, ef sannfær- ingar okkar eru vafa undirorpnar? Við þessu eru tvö svör. í fyrsta lagi eru til mörg stig af óvissu, og vaf- inn er í mörgum tilfellum sama og núll. í öðru lagi valda sumar gjörð- ir litlum skaða, enda þótt sú sann- færing, sem á bak við þær Iiggur, sje röng, þar sem aftur á móti aðr- ar valda miklu tjóni, ef viðkom- andi sannfæring er ekki alveg rjett. Þegar einhver er tekinn af lífi eða brendur á báli, vegna þess að hann er ekki sammála yfirvöldunum í einhverju smáatriði í kenningunm, þá á sjer eingöngu ranglæti stað, — ef til vill með þeim fyrirvara, að yfirvöldin hafa að sínum dómi ekki aðeins á rjettu að standa, held- ur eru þau einnig skyldug að álíta, að mistök viðkomandi í þessu efni gætu haft örlagaríkar afleiðingar. En ef einhver tekur sjer regnhlíf, af því að hann heldur, að það muni rigna, en svo reynist veðrið gott áfram, þá er enginn meiri háttar skaði skeður. Hin kommúnistíska kenning varðandi einræðið telur, að lokasigurinn sje öruggur, — svo öruggur að hann rjettlæti a. m. k. í ema kynslóð fátækt, þrældóm, hat- ur, innbyrðis kærur, þvingunar- vinnu, kúgun aílrar frjálsrar hugs- unar og alþjóðlega þverúðsku- pólitík gagnvart öllum ríkjum,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.