Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1950, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1950, Qupperneq 16
LESBÓK MORGUNBLAÐSÍNS f 580 NÝTT SIGLINGAT/EKI FARIÐ er að nota nýtt siglingatæki, sem nefnist „Decca", sem er í sambandi við þrjá eða fjóra radiosendara, og má nota það bæði i skipum og flugvjelum. Danir hafa tekið þetta siglingatæki i notkun og bygt fyrir það fjórar radio- sendistöðvar. Aðalstöðin er á Sámsey, en hjálparstöðvarnar eru á Mön, hjá Höjer og Hirtshals. Skip, eða flugvjel- ar, nota venjuleg sjókort, en á þau eru prentaðar boglínur, rauðar, grænar og fjólubláar. Decca-tækið er í sambandi við móttökutæki farkostsins og á því eru þrír mælar, sinn fyrir hvern „lit“, eða sinn fyrir hverja stöð. Með því að lesa á mæla þessa og bera tölurnar saman við línurnar á sjókortinu, má þegar sjá hvar menn eru staddir. Ef mælarnir sýna t. d. rautt A 15.14 og grænt F 33.9, þá er farkosturinn stadd- ur í þeim stað, þar sem þessar línur skerast i kortinu. Til skýringar er hjer kort af Dan- mörk og dönsku sundunum. Skip er statt úti í Kattegat. Stýrimaðurinn not- ar útsendingu aðalstöðvarinnar, en einnig „fjólubláu“ sendinguna frá Hirtshals og rauðu sendinguna frá Mön. Mælarnir á Decca-tæki hans sýna rautt D 9.60 og fjólublátt I 80.30, og með því að bera þetta saman við línurnar á sjókortinu, sjer hann að þessar línur skerast nokkuð fyrir norðan Anholt, og hann veit að skipið er statt þar, og að staðarákvörðuninni getur ekki skeik- að nema um nokkra metra. — Decca- tækið er sjálfvirkt og vísarnir á mæl- unum færast því sjálfkrafa eftir því sem skipinu miðar áfram, og altaf er hægt að fylgjast með því hvar það er statt 4/ 4/ 4/ ^ AGNES LINKLATER heitir kona, sem á heima á Bressay eyu, sem er ein af Hjaltlandseyum og rjett hjá Leirvik. Þessi kona varð nýlega 104 ára. Þá fóru blaðamenn á fund hennar og með- al annars vildu þeir fá að vita hvernig á því stæði að hún hefði náð þessum háa aldri. Kerlingu varð ekki fátt um svör. Hún sagði að það væri vegna þess að hún hefði altaf forðast menninguna.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.