Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.1952, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.1952, Qupperneq 11
sjálfu sér, en magnist birtan, slokkna ljósin. Það er því alltaf jafn bjart í salarkynnum þessa skóla. Hibbing er heitin eftir þýzkætt- uðum manni, sem lét mjög til sín taka um framkvæmdir í þorpinu, þegar það var að myndast. Og stendur myndastytta af honum í miðju bæarins. En Hibbingbær reis fyrst, vegna mikils timbur- iðnaðar þar, áður en farið var að vinna í járngrýtisnámunni. Olson ók nú með mig í attina til námunnar, sem er norðan við aðal- bæinn. Hann nam snöggvast stað- ar, þar sem mikið bar á gömlum húsgrunnum, og eru sumir alveg á námubarminum. Þessir gömlu húsgrunnar hafa þá merkilegu sögu að segja, að þegar vissa var fengin fyrir því, að á þessu svæði væri auðug náma, kom upp úr kafinu, að einn bezti hluti nám- unnar var undir aðalbænum. Ekki stóð það þó fyrir fram- kvæmdum, því að félagið, sem rek- ur námurnar, Oliver Iron Mining Company, keypti umrætt svæði og flutti Norður-Hibbing um set. Mátti þá margan dag og einnig um nætúr, sjá hús flutt á hjólum í heilu lagi og komið fyrir á grunn- um allmiklu sunnar. Sum húsin varð þó að byggja upp að nýu. Þess vegna er Hibbing svo nýlegur bær að sjá. Og hver veit, nema að enn verði að grípa til húsflutninga. En nú var Olson kominn með mig á brún námunnar, fyrir henni miðri að sunnan. Þetta er mikil kvos, enda talin stærsta opna járnnáma í heimi, og eru Hibbingbúar all-stoltir af. Námukvos þessi er óregluleg að lögun, rúman 5V2 km, þar sem hún er lengst, en 1—1,5 km á breidd og 150 metrar, þar sem hún er dýpst. Það hefur verið grafið úr námu þessari síðan árið 1894. Ruðning- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 511! urinn ofan að járngrýtinu er minnst 13 metrar að þykkt. Fyrstu árin var unnið í námunni með hökum, rekum og hestvögnum. En nú er unnið með stórvirkustu, ný- tízku tækjum. Þannig er nú notuð vélskófla, sem vegur sjálf yfir 25 smálestir, bílar, sem taka 35—50 smálestir, og færibelti, sem flytja um langan veg tugi smálesta all- an sólarhringinn, bæði ruðninginn og járngrýtið sjálft. Af ruðningnum hafa myndast stórir hólar og hæðir í nánd við námuna. En járngrýtinu er komið fyrir í vögnum, sem taka 70 smá- lestir hver. Það er ótrúlegt en samt satt. Járngrýtið er þungt í vigtinni. Ég tók til minja tvo mola á stærð við eldspýtnastokk, og voru þeir þungir sem blý. í námu þessari er unnið frá því í apríl ár hvert og þangað til í nóvember. Starfræksla námunnar miðast við það, hvenær ísa leysir af „Vötnunum miklu“ á vorin, og hvenær þau leggur á haustin. En járngrýtið er flutt eftir vötnunum í til þess gerðum, stórum flutn- ingaprömmum. í vor var ísinn að leysa af vötn- unum í byrjun apríl. Og þess vegna var dag þann, sem ég dvaldi í Hibbing, mikill viðbúnaður til að hefja vinnslu í námunni. Ver- ið var að koma vélum og færi- beltum á sinn stað, reyna tæki o. s. frv. Náman leit út eins og all- djúpur dalur með hallandi hlíðum, hvömmum og klettabeltum. Eftir brekkunum runnu smálækir, sum- ir með fallegum fossum. En kvos- in fyllist ekki, því að öllu vatni er dælt upp úr henni, jafnóðum. Járngrýtið, sem unnið er úr námu þessari, hefur minnst 50— 64% járn. Hitt er skilið eftir, en kann að verða unnið síðar, þegar ganga fer á hinn góða málm. Olson sagði, að eftir nokkra daga, myndi allt verða í fullum gangi í námu þessari. Það yrðl unnið í henni allan sólarhringinn. Járngrýtið verður að flytja jafn- óðum til hafna við Superior-vatn, t. d. Duluth, sem er um 100 km suð-austur af Hibbing og er borg með 105 þúsund íbúum. í hverri flutningalest eru, að jafnaði, um 180 vagnar, svo að hægt er að flytja um 13 þúsund smálestir af járngrýti í einu. Og lestin er svo löng, að lestarstjórinn, fremst í lestinni, og aðstoðarmaður hans í aftasta vagni hennar, talast við með hjálp stuttbylgju-talstöðvar. Frá Duluth-borg er járngrýtið svö flutt vatnaleiðina til Pittsburgh í Pennsylvaníu, og þar er unnið úí því járn og stál. Frá því að hafin var vinnsla f námu þessari og til þessa tíma, hafa 500 milljón smálestir af járn- grýti verið unnar úr námunni. Og sagði Olson mér, að hver smá- lest af járngrýti myndi kosta um 5,6 dollara, eða rúmlega kr. 91,00 íslenzka. ■( Frh. ; ★ ★ ★ ★ Veiztu þetta Fyrstu skórnir sem menn notuðU var leðurspjör, bundin undir ilj- ina með þvengjum. Slíkir skór. hafa fundizt í hellum þar sem' frumstæðir menn höfðu búið. 4 Þegar Spánverjar komu til Yuka- tan árið 1519 höfðu Indíánarnir þar þegar lært tóbaksnotkun og gerðu bæði að reykja og taka i Sólargeislarnir eru 400.000 sinnum bjartari en tunglsgeislarnir. ---o---- Á TUNGLINU er alltaf logn, þar rignir aldrei og þar er aldrei þoka né ský á lofti. jj

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.