Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.1952, Síða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.1952, Síða 14
^514 * W LESBÓK MORGUNBLADSINS w lliurik Sv. Björnsson, sonur fyr- Verandi forseta, var ráðinn forseta- ritari. 3Ir. Irwing Schell vísindamaður frá Woode Hole hafrannsóknastofnun i Bandaríkjunum, var hér á ferð. Hann lét þess getið, að ekki væri útiiokað að menn kæmist að ástæðunum til þess að hafísinn berst mismunandi langt suður á bóginn frá ári til árs, og þá yrði hægt að spá fyrir um hafís- ár á íslandi. Martinus, danskur heimspekingur, kom hingað á vegum Guðspekifélags- ins og hélt marga fyrirlestra við mikla aðsókn. Þorsteinn Hannesson óperusöngvari kom til landsins í sumarleyfi sínu og söng opinberlega í Siglufirði, á Akur- eyri og í Reykjavík við mikla hrifn- ingu áheyrenda. Soffía Pálsdóttir gift kona í Stykkis- hólmi, bjargaði með snarræði og ber- sýnilegum lífsháska 3 ára barni sinu, sem fallið hafði í sjóinn og bar frá . landi. Jón Leil's tók að sér forsetastörf Norræna tónskáldaráðsins, sem fer með sameiginleg málerni tónskálda á Norðurlöndum. Trausti Einarsson prófessor fór til Hollands og flytur þar fyrirlestra um íslenzka jarðfræði í ýmsum borgum. Vilhjálmur Þ. Gíslason skólastjóri fór vestur um haf í boði bandaríska utanríkisráðuneytisins, til þess að kynna sér skóla, leikhús, útvarp og sjónvarp þar í landi. Þorbergur Kristjánsson var kosinn lögmætri kosningu prestur í Bolunga- vík. Hann var eini umsækjandinn. Eirikur Þorsteinsson frambjóðundi Framsóknarflokksins, var kosinn þing- maður Vestur-ísafjarðarsýslu við aukakosningu er þar fór fram. 100 ára varð hinn 12. írú Margrét Björnsdóttir að Laufási við Hvamms- tanga. Mcnntaniálaráðhcrra lagði bann við að dansauglýsingar væri birtar í út- varpinu. Varð út af því þref milli hans og útvarpsráðs, cn þó liurfu duns- auglýsingar hinn 10. I'ræg rolla. Þegar niðurskurður fór fram á Rcykjanesskaga í íyrra, varð ein svört ær cftir í Hcrdísarvíkurlandi og náðist ekki hvernig sem reynt var. Nú voru lagðar 2000 krónur til höfuðs henni og féll liún þá fyrir byssuskoti eftir mikinn eltingaleik. Stjórn Síldarveksmiðja ríkisins ákvað að reisa stórt hraðfryslihús í Siglufirði til að bæta úr atvinnuerfið- leikum þar. Listaverk gcfið. Smjörlíkisgerðirnar gáfu Reykjavíkurbæ höggmynd Ás- mundar Sveinssonar „Kona að strokka'1, og mæltust til þess að henni yrði komið fyrir á einhverjum góð- um stað. Fegursti garður i Ilafnarfirði. — Fegrunarfélag Hafnarfjarðar veitti verðlaun fyrir fegursta garðinn þar og hlaut þau frú Herdís Jónsdóttir, Öldu- götu 11. Fjölmennur bindindismálafundur fyrir Suðurnes var haldinn í Kefla- vík fyrir forgöngu stúkunnar Frón í Reykjavík. Voru þar gerðar margar samþvkktir um úrbætur á því ástandi, sem nú er í áfengismálunum. Aðalfundur Prestafélags Suðurlands var haldinn í Grindavík. Stjórnin var endurkjörin, en hana skipa Hálfdán Helgason prófastur að Mosfelli, séra Sigurður Pálsson í Hraungerði og séra Garðar Svavarsson í Reykjavík. Flugvélasprengjur tvær fundust í Eyafirði, önnur í Hlíðarfjalli en hin hjá Skjaldarvík, og voru gcrðar ó- skaðlegar. Járnskipið. Dráttarbáturinn Oceanus missti flakið af járnskipinu aftan úr sér skamt frá Orkneyum og fann það ekki aftur. Nokkru seinna strandaði flakið í Skotlandi og verður ekki bjargað. Liggja þar um 2000 smálest- ir af járni frá íslandi. Húsmæðraskólinn að Laugalandi mintist 75 ára afmælis síns. Húsaleiguvísitalan var 210 stig. Vöruskiftajöfnuður varð hagstæður um nær 20 milljónir króna í þessum mánuði. Frá áramótum til scptembcr- loka varð 232 milljóna hulli á utan- ríkisversluninni. ★ ★ 3W ★ ★ — Læknir, viljið þér nú ekki segja mér hreinskilnislega hvað að mér gengur? — Þér etið of mikið, þér drekkið of mikið og þér eruð latur. — Viljið þér gera svo vel að gefa mér það skriflegt a latínu, því að þá fæ ég vikufrí hjá húsbóndanum. PENINGAR PENINGAR eru þrældómur, en þeir eru líka frelsi. Peningar eru sjúkdómur, þreyta og ótti. En þeir eru líka heilbrigði, hvíld og hug- rekki. Peningar eru hús, heimili, matur og hringurinn á fingri þín- um. Þeir eru tölur á pappír, prent- letur á verðbréfi, nafn þitt á skjali. En það, sem þú þarft fyrst og fremst að vita um peninga er þetta, að þeir eru ekki til. Ef þú heldur að peningar sé hið eftirsóknarverðasta í lífinu, þá er það hættulegur misskilningur og heimskulegur. Þú verður að bera virðingu fyrir þeim, því að annars fer illa fyrir þér, en það fer líka illa fyrir þér, ef þú hefur ekki and- styggð á þeim. Hvort sem þú ert eyðsluseggur eða nirfill, þá hef- urðu eyðilagt líf þitt. Þér getur ekki liðið vel, nema þú sért hvort tveggja. Haldið þið að þetta sé öfgar? Ónei, alls ekki. Peningar eru eins og tvíeggjað sverð, og það verður að fara varlega með þá. Ég skal segja ykkur sögu. Það var einu sinni gömul kona, sem ekki vissi neitt í fjármálum og skildi ekki hvað það var að eiga inni á banka. En hún hafði sína cigin aðferð við peninga, og sú uð- ferð dugði vel. Hún hafði sjö pcn- ingabuddur, eina handa húseig- anda, aðra handa mjóikurbúðinni, þriðju hancla matvörubúðinni o. s. frv. Ef 100 krónur voru í buddunni, sem merkt var húseiganda, þá vissi liún að hún gat staðið í skilum með húsafeiguna um næstu mánaðamót. En ef ekki voru hundrað krónur í buddunni vissi hún að hún varð að bæta við. Hún vissi alltaf hvað hún þurfti að gera og hvað hún gat gert. En hvernig hefði hún átt að vlta þuð, ef hún hefði lagt allt inn í sparisjóð? • ' i __ ,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.