Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1953, Blaðsíða 11
> LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
' 201
Þessi mynd er tekin úr kirkjuturni Ólafsvallakirkju. Fjallið í baksýn
er Hestfjall, en undir því rennur Hvítá og er þangað um 6 km leið, en
allt svæðið var einn hafsjór að sjá þegar flóðið var mest.
Bændur í Ólafsvallahverfi urðu að fara milli bæja á bátum. — Vatnið
var víðast 3—4 m á dýpt. Hvergi flaut þó inn í hús.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
hugur í málinu og var skorað á rík-
isstjórnina að beita sér af alefli fyr-
ir þvi að Danir skili sem fyrst hand-
ritum og skjölum úr dönskum
söfnum. —
VEÐRÁTTA
var framúrskarandi mild mestan
hluta mánaðarins, suðaustan vindur og
hlákur jafnaðarlega, en oft hvasst og
gæftir stopular. Fárviðri var í Vest-
manneyum 2. og stórviðri um allt land
hinn 9. Fuku þök af þremur hlöðum
í Fljótsdal, en 14 símastaurar á Stykk-
ishólmslínunni brotnuðu af ísingu og
hvassviðri. Snjólaust mátti heita um
allt land um miðjan mánuð og jafn-
vel á öræfum. Hiti var yfirleitt meiri
norðanlands en syðra og var 15 st.
hiti á Akureyri hinn 1. Skagfirðingar
höfðu þá ekki gefið nema svo sem
V4 af heyum á móts við það sem vant
er og svipað var um land allt. Tún
voru víða farin að grænka og í húsa-
görðum voru tré að byrja að laufgast.
Hinn 25. breytti um veðráttu og gerði
þá grenjandi stórhríð um Vesturland
og Austurland með mikilli veðurhæð.
Kyngdi þá niður svo miklum snjó, að
allar leiðir tepptust. Ófært varð bílum
um götur Akureyrar og varð að flytja
mjólk þangað á sleðum. Stóð þetta
veður nokkurn veginn í þrjá daga og
voru þá komnir IV2 mannhæðar háir
skaflar á Húsavík. Miklar símabilanir
urðu í þessu veðri og mátti svo heita
að sambandslaust væri um allt land
um hríð, en brátt tókst að gera við
skemmdirnar þegar birti og var sím-
inn kominn í lag um mánaðamót.
ELDINGAR, VATNSFLÓÐ
OG SNJÓFLÓÐ
Mikið þrumuveður gerði í Árnes-
sýslu hinn 4. Laust eldingu þá niður
í reykháf á íbúðarhúsinu að Stóru
Reykjum í Hraungerðishreppi, molað-
ist það sem upp úr þakinu stóð, en all-
ur rifnaði reykháfurinn og kom stórt
gat á hann niðri í kjallara. Fólk sak-
aði ekki. Sama dag brotnuðu fjórir
símastaurar hjá Ásgarði í Grímsnesi,
og var eldingu um kennt.
Miklir vatnavextir urðu í Borgar-
firði laust fyrir miðjan mánuð, trufl-
uðu samgöngur, en gerðu ekki annað
tjón. Litlu síðar kom stórvöxtur í
Hvítá eystri og flæddi hún yfir bakka
sína. Samtímis kom mikill vöxtur i ár
þær, er renna í Djúpós og fór flóðið
allt umhverfis Þykkvabæ, braut stór
skörð í veginn þangað svo að hverfið
mátti heita einangrað. Enn kom stór-
flóð í Hvítá hinn 25. og varð vatns-
borð hennar þá 3 metrum hærra en
vant er. Hljóp hún víða yfir og var
Ólafsvallahverfið á Skeiðum umflot-
ið vatni, en bærinn Útverk einangrað-
ist í marga daga. Flóð þetta sjatnaði
eftir tvo daga.
í áfellinu í lok mánaðarins fellu
snjóflóð mjög víða og ollu skemmdum
á símalínum. Þá fell snjóflóð á hita-
veitu Ólafsfjarðar og eyðilagði hita-
veitustokkinn á kafla. Snjóflóð fell á
v^rkfærahús að Kirkjubóli í Skutuls-
firði og sópaði því burtu ásamt því er
í var. Þá fell og snjóflóð á skíðaskála
ísfirðinga í Seljalandsdal og braut
hann að mestu í mola. Var það hend-
ing ein að skálinn var þá mannlaus.
ÚTGERÐIN
Vegna stórviðra og ógæfta gátu véiði-
skipin ekki stundað sjó í þessum mán-
uði að neinu ráði. Hefir gæftaleysið
áreiðanlega bakað bátaútveginum
milljónatjón. Þá sjaldan gaf á sjó var