Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1953, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1953, Síða 6
316 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Þekktasti maður heimsins yfir dýrin og orðið þeim öllum vfir- sterkari þótt veikur sé að líkams- kröftum. Og frumkjarni þessa stór- brotna leiks á sér rætur aftur í þeim tímum, er maðurinn fór fyrst að verða var þeirra vfirburða, sem hugsunin veitti honum. Á háslétt- um Spánar voru miklar hjarðir villtra nauta fvrir ísöld. Þá áttu þar einnig heima hellisbúar, sem lærðu smám saman að veiða þessi hættu- legu og grimmu dýr til matar sér með því að ginna þau í gildrur. Seinna lærðist þeim svo að fara með boga og örvar og skjóta þessi dýr. Og enn síðar, er þeir höfðu tamið hestinn og gert sér spjót, riðu þeir að dýrunum á víðavangi og lögðu þau að velli. Þetta var hættulegt og margan manninn og hestinn hafa villinaut- in drepið. En afreksverkin geymd- ust í munnlegri frásögn og bárust frá manni til manns, kynslóð eftir kynslóð. Nautaatið er nokkurs kon- ar kvikmynd af þessari sögu. Hér koma fram í einu lagi allir kaflar hennar, allt frá manninum sem ginnir nautið í gildru, bogmannin- um og reiðmanninum með lensu sína. Og svo klykkir út með tíma riddaraskaparins, þar sem kjörorðið var hið sama og hjá Karli 12.: „Ekki nema einn á móti einum“, og aldrei að vega að þeim, sem ekki reynir að verja sig. Að baki nautaatsins liggur stór- kostleg saga, sagan um það hvernig hugsunin breikkar alltaf bilið milli mannsins og dýranna, og að hún er sterkasta aflið í þessari veröld- Árni Óla. ir Úr brúnkolum vinna Bandaríkja- menn nú rottueitur, sem er mikið notað. Hið alkunna skordýraeitur, DDT, er einnig unnið úr brúnkolum. + Sauðfjárræktin í Ástralíu byrjaði 1793. Þá voru fluttar þangað 30 kindur frá Indlandi og fáeinar frá írlandi. ÞAÐ þarf varla að fara í grafgötur um, hver sé þekktasti maður heimsins. Það er litli maðurinn með nasaskeggið, staf* prikið og stóru skóna — Charlie Chap- lin. Betur en nokkur annar hefir hann skemmt fólki, jafnt í stórborgum og smáþorpum, jafnt meðal menningar- þjóða og frumstæðra þióða. En yfir íor- tíð hans hefir iafnan grúft nokkur hula þangað til nú nvlega að komin er út ævisaga hans eftir ameríska rithöfund- inn Theodore Huffs. Hann er fæddur í London 16. april 1889. Faðir hans var af frönskum Júða- ættum, en hafði flutzt til Englands og var kunnur söngvari á fjölleikahúsum um 1880. Móðir hans hét Hannah og'var einnig af Júðaættum. en þó rann sDánskt og írskt blóð í æðum hennar. Er talið að hún hafi verið all gjálíf í æsku og 16 ára gömul strauk hún að heiman og lenti hjá fjölleikahúsi í London. Hún giftist snemma, en skildi við mann sinn. Áttu þau éinn son, Sidney, sem er kunnur kvikmynda- leikari. I æsku Charlie lifðu foreldrar hans við þröngan kost og ailtaf hallaði meir og meir undan fæti fyrir þeim. Konan var heilsulaus og maðurinn drykkfeld- ur. svo að sorglegt ástand var á heim- itinu. En það kom fljótt í ljós að Charlie litli var leikara hæfileikum gæddur og þriggja ára gamall var hann orðinn leikinn í allskonar listum og söng. Kom þá oft fyrir að hann var rifinn upp um miðja nótt, þegar sukk- samt var hjá foreldrum hans, til þess að sýna gestum þeirra hvað hann gæti. Hann var ekki nema fimm ára gamall þegar hann kom fram opinberlega. Þá var móðir hans veik og hann varð að koma í staðinn fyrir hana í fjölleika- húsinu. Lét faðir hans hann syngja gamlan grænmetissala-söng, sem kall- aður er „Jack Jones“. Fólkið hyllti hann ákaflega og smápeningum rigndi yfir hann að söngnum loknum. Þetta kveikti í honum og nú langaði hann mest til þess að verða leikari. Skömmu eftir þetta andaðist faðir hans á drykkjumannahæli. Móðir hans var þá orðin svo heilsulaus að hún gat ekki sýnt sig á leiksviði, en hún reyndi að hafa ofan af fyrir sér og drengjunum með saumaskap. En það blessaðist ekki Charlie Chaplin og hún neyddist til að senda drengina í munaðarleysingjahæli, sem gekk und- ir hinu glæsilega nafni „Hanwell Resi- dental School“. En hún tók þá þaðan aftur eins fljótt og hún sá sér fært. Það fór þó á sömu leið og áður, að hún gat ekki séð fyrir þeim. Og nú var Sidney sendur „til sjós“, en Charlie átti að reyna að hafa ofan af fyrir sér í fjöl- leikahúsum. Hann var þá sjö ára gamall. Fyrsta hlutverk hans var að dansa á tréskóm i sýningu, sem nefnd var „Lancashirestrákarnir átta“. — Þessi flokkur sýndi síðar látbragðsleik og þar lék Charlie litli hvolp og gelti og skrækti svo hlægilega að fólk hafði stórgaman að. í þessu var hann í hálft annað ár, en þá var hann sendur í Hern Boys College utan við London. Þetta var skóli, en lítið lærði Charlie þar. Að skólavistinni lokinni hvarf hann aftur heim til sin, en sótti þá svo að, að móðir hans var komin í sjúkra- hús. Nú varð hann að sjá um sig sjálfur og átti þá illa ævi. Hann söng á götun- um, seldi pappírsskip og þvoði þvott fyrir rakara nokkurn. En á hverri nóttu lá hann úti í einhverjum lystigarðinum. Þá bar svo við að Sidney hálfbróðir hans kom heim úr sjóferð til Ástralíu og átti dálitla peninga. Hann hjálpaði bróður sínum og kom honum að hjá

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.