Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1953, Blaðsíða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
321
BAHÁTTAIM við krabbamein
ÞETTA er útdráttur úr grein eftir
John Pfeiffer, fyrverandi ritstjóra
„Scientific American“. Hefir hann
nýlega átt tal við fjölda vísinda-
manna, sem vinna að rannsóknum
á krabbameini og hvernig hægt
muni að lækna það. Eru þeir von-
góðir um að vísindin muni hafa
sigrast á krabbameininu innan 10
ára, ef heimstyröld skellur ekki á
og truflar allt.
Rannsóknir í líffræði eru nú
reknar af svo miklum áhuga og
atorku, að það jafnast á við þá
ákefð sem var í kjarnorku rann-
sóknum upp úr 1936. Einn þáttur-
inn í þessum rannsóknum er að
sigrast á krabbameininu.
Nú þegar má segja að um þrjár
meginaðferðir sé að ræða í barátt-
unni við krabbameinið: 1) að nota
til lækninga vírusa, sem voru ó-
þekktir fyrir nokkrum árum, 2) að
draga úr hormónaframleiðslu lík-
amans, þeirra hormóna, sem valda
æxlamyndun, 3) að leita að nýum
efnum, sem geta drepið krabba-
meinið, alveg eins og sum meðul
drepa sýkla. Hér með er þó ekki
allt sagt.
----o----
Ég kom í James Ewing spítalann
hjá „Memorial Center for Cancer
and Allied Diseases.“ Þar eru að-
eins rúm fyrir tíu sjúklinga. En
þetta er þó einhver merkasta stofn-
unin sem tekur þátt í baráttunni
við krabbameinið. Ég sá þar ósköp
algenga sjón: lækni, sem var að
gefa konu innspýtingu. En þetta
var þó engin venjuleg innspýting.
í sprautunni voru vírusar, ósýni-
legir og svo litlir að 25 milljónir
af þeim hefði komizt fyrir á títu-
prjónshausi. Þessir vírusar áttu
ekki að geta gert konunni neitt
tjón, en það var vitað að þeir
ráðast á krabba-frumurnar. Þetta
er ein aðferðin af mörgum við
lækningu krabbameins-
Það eru nú fjögur ár síðan að
Dr. Alice E. Moore, vírusasérfræð-
ingur Memorials, fór að leita að
vírusum, er kynni að geta eytt
krabbameini. Hún vissi þá alls ekki
hvort sh'kir vírusar væri til, en
hún vissi að hinir ýmsu vírusar
Ieggjast á sérstaka hluta líkamans;
sumir leggjast eingöngu á lungna-
vefinn, aðrir á heilann eða tauga-
kerfið. Og nú kom henni til hug-
ar að ske kynni að til væri vírusar,
sem sæktust eftir krabba-frumum.
Hún rannsakaði vírusa í lúsum
kvikfénaðar, óðum hundum og
flugum, sem veiddar voru í frum-
skógum Brazilíu og Afríku. Sum-
ir þeir vírusar, er hún fann, drógu
úr krabbameini í dýrum, en voru
gagnslausir við menn. Svo var það
fyrir hálfu öðru ári, að læknarnir
við Yale-háskólann voru að rann-
saka blóð úr 250 börnum, sem
heima eiga í þorpi nokkru nálægt
Kairó. f blóði tveggja ára barns,
sem var hið 101. í röðinni, fundu
þeir nýan vírus, sem þeir nefndu
, Egypt 101“, og sendu hann til Dr.
Moore. Það kom þegar í Ijós, að
þessi vírus eyddi krabbameini í
músum, og þá var farið að reyna
hann á mönnum.
Rúmlega 125 sjúklingar hafa nú
fengið innspýtingu af þessum vírus
og öðrum svipuðum. Tilraunirnar
hafa sýnt, að bráðabirgðabati fæst
á krabbameini í milti, lifur og inn-
ýflum. Þetta vírusmeðal hefir
stöðvað vöxt krabbameins í inn-
ýflum og í sumum tilfellum dreg-
ið úr krabbameini svo að það hef-
ir minnkað um þriðjung. En hér
fylgir böggull skammrifi. Sjúkl-
ingurinn verður fljótt ónæmur
fyrir vírusunum — líkaminn held-
ur að þeir sé til ills og byggir upp
varnir gegn þeim, svo að þeir
verða gagnslausir. Og nú er verið
að athuga með hverjum hætti sé
hægt að koma í veg fyrir þessa
misskildu sjálfsvörn líkamans.
----o-----
Þá hafa farið fram miklar rann-
sóknir á hormónum, til lækningar
krabbameini. í skýrslu frá Amer-
íska krabbameinsfélaginu (Amer-
ican Cancher Society) segir svo: Á
seinustu fimm árum hefir opnast
nýtt og vítt svið til notkunar á
hormónum karla og kvenna. Þeir
lækna að vísu ekki krabbamein, en
stöðva vöxt þess og þjáningar.
Hundruð manna og kvenna með
útvortis krabbamein, hafa fengið
svo mikla hjálp með hormónum,
að þeir virðast nokkurn veginn
heilbrigðir.-----
En Dr. Charles Huggins við há-
skólann í Chicago hefir fundið al-
veg nýa aðferð við skurðlækningu
á krabbameini. Áður hefir það
verið venjan að skera burt krabba-
meinið, en það gerir hann ekki,
heldur nemur hann á brott nýrna-
hetturnar, því að hann segir að
þær hafi mjög mikil áhrif á vöxt
krabbameinsins. Þetta, að nema
burt nýrnahetturnar, mundi hafa
riðið hverjum manni að fullu fyr-
ir nokkrum árum, því að þeir
hefði ekki getað verið án þeirra
hormóna, sem nýrnahetturnar
framleiða. En nú er hægt að bæta
úr þessu með því að gefa sjúkling-
unum „cortisone". — Einn af sjúkl-
ingum Huggins var 47 ára gömul
kona með krabbamein í brjósti.