Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.1953, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.1953, Side 1
Carsten Nielsen ritstjóri: Þrír íslenzkir listmálarar á 18. öld og verk þeirra í Þjóðminjasafni NOKKRAR íslenzkar altaristöflur, sem nú eru til sýnis í Þjóff- minjasafninu vöktu sérstaka athygli danska blaðamannsins Car- stens Nielsen, er hann kom hingað til stuttrar dvalar í sumar sem leið. Ritaði hann grein í blað sitt um töflurnar og höfunda þeirra, um leið og hann lýsti Iandinu og áhrifum þeim sem hann naut hér. Jón Hallgrímsson: Altaristafla S U M A R IÐ ber margar unaðs- stundir í skauti sér og í ár er ísland meðal þeirra, sem þess njóta í rík- ustum mæli. Sólin hefur hellt geislum sínum yfir hið norðlæga eyland og sunnanvindarnir sveipað það andvara sínum. Uppskeran hefur sjaldan verið svo gnægtarík, segja bændurnir og síldveiðin úti fyrir ströndunum gefur óvenju góðan afla í aðra hönd. Á daginn skyggir sólin blátt himinhvolfið og að næturþeli staf- ar hún regnbogalitum geislum sín- um á merlaðan hafflötinn. Sumarið færir íslandi efnalega velsæld og eykur að auki náttúrufegurð þess og tign, svo ferðamaðurinn fellur í stafi af þögulli aðdáun. ísland er land ljóssins, ekki sök- um hinna miklu raforkuvera, sem þar hafa verið byggð, heldur sök- um hinna longu, ljósu nátta. Fjöllin liggja fögur í hyllingum, böðuð í geislum hinna björtu sum- ardaga og unaðslegu sólnátta. Það er sem þau bregði á dans undir samspili hinna ægifögru litbrigða sem um þau leika, er sól Norður- hafa sígur að sævarborði og stafar á þau síðasta bjarma sínum. Það er freistandi að ímynda sér ísland í líki litskrúðugs fiðrildis, sem sest á kálhöfuð. Landið er lít- ið, jarðvegurinn þunnur en um það leikur einstök náttúrufegurð og skrúðlegur jarðargróði. — Jafnvel

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.