Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Side 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 125 greindir menn. Nú sýnir reynslan okkur að hinn sjálfsagði mæli- kvarði á mannkosti er meðalmaður samfélagsins. Mælikvarðinn á manngildið er gerður á þann hátt að við merkjum t. d. tölustafinn 1 við hinn óþroskaðasta mann sam- félagsins og 100 við þann gáfaðasta og bezta. Allur þorri manna er ein- hverssstaðar þar á milli, flestir sennilega um 50. Af þessum or- sökum líta menn ósjálfrátt með vissri velþóknun á þrjótinn og kjánann, því slíkir menn láta aðra sýnast betri og vitrari. Komi aftur á móti fram á sjónarsviðið maður, sem ber af öllu því sem samfélag- ið hefur áður þekkt, hækkar sá maður sjálfan mælikvarðann þannig að gáfur og aðrir mannkost- ir allra hinna lækka á kvarðanum í samræmi við þessa hækkun. Af- burðamaðurinn verður þannig til þess að sá sem áður var t. d. 50 verður nú aðeins 49, þ. e. a. s. fyrir neðan meðallag! Vilji menn vinna sig upp í sitt fyrra sæti verða þeir að bæta sig og taka andlegum framförum. Slíkt kostar áreynslu, sem menn eru ekki alltaf reiðu- búnir til að leggja á sig. Þess vegna hrópa menn á öllum tím- um, þegar um eitthvað líkt þessu er að ræða: — „Heldur Barrabas“! Og afburðamaðurinn fer þá oft á bálköstinn eða krossinn eða þá að honum er réttur eiturbikarinn. Þetta að vera betri maður og vitr- ari en aðrir Aþeningar, fyrir hans dag, var hin fyrri „villa“ Sókra- tesar. — Hin síðari var að halda að þekking væri dyggð og dyggð- in þekking. Á vissan hátt var Sókrates efa- semdamaður. Hann hélt eins og Protagoras að manninum væri ekki unnt að þekkja veröldina réttilega. Hann áleit það mönnum tilgangslaust að vera að grufla út í innsta eðh tilverunnar, um upp- haf hennar og endi. Hvaða þýð- ingu hefur slíkt fyrir manninn? Eitt var þó sem Sókrates trúði að hægt væri að þekkja: — sjálfan sig. Og þar skilur með honum og öðrum Sófistum. Þeir höfðu ekki trú á að til væri neinn algildur sannleikur, né algild siðferðilögmál sem væru veruleiki í sál hvers manns. Engir tveir menn eru eins, sögðu þeir, og sannindi og siðferði- lögmál eru jafn breytileg og menn- irnir eru margir. Þannig lítur það út á yfirborð- inu, viðurkenndi Sókrates — en ef við skyggnumst dýpra sjáum við þá ekki manninn innst inni í eðli allra manna? Sjáum við ekki að baki þessara m'argbreytilegu sann- leiksbrota yfirborðsins hinn djúpa sannleika lífsins, sem birtist í ó- haggandi lögmálum veraldarinnar og í samvizku mannkynsins? Og sjáum við ekki að baki allra þess- ara hvata og tilfinninga djúpstæða eiginleika, sem eru innsta eðli allra manna, eiginleika eins og góðvild, fegurð, réttlæti og sann- leika. Allt þetta er í djúpi manns- ins þó það kunni að vera honum og öðrum hulið. Þess vegna biður Sókrates menn að þekkja sjálfa sig. Hlutverk alls uppeldis hlýtur að vera það að vekja hið innra eðli mannsins og laða þessa eig- inleika fram. Kjarninn í heimspeki Sókratesar verður þessvegna sá að fá menn til að þekkja sjálfan sig, því þeim mun meiri, sem sú þekking er, þeim mun betri mun breytni mannsins verða. Maðurinn er í eðli sínu góð- ur — hinu innsta og sanna eðli sínu. Hið illa í fari manna er sprott- ið af því að þeir þekkja ekki þetta eðli sitt og lífsins í kring um sig. M. ö. o. yfirsjónin og röng breytni stafa af vanþekkingu. Þess vegna segir Sókrates að þekkingin sé dyggð og dyggðin þekking. —★— Þessa kenningu Sókratesar um að hið illa væri vanþekking og yrði sigrað með þekkingu hafa margir greindir menn kallað aug- ljósa vanþekkingu á mannlegu eðli. Aðrir láta sér nægja að tala um bjartsýni Sókratesar á mann- lega náttúru, en þeir meina þó hið sama, — að þessi kenning sé villa. Þekkjum við ekki öll mý- mörg dæmi þess, að menn, sem afl- að hafa sér mikillar þekkingar og eru sagðir gáfaðir, breyta engu bet- ur en hinir „fáfróðu“? — Þekkjum við ekki lækna, sem vita gjörla um hin skaðlegu áhrif áfengis t. d., en gerast þó ofdrykkjumenn? Þekkj- um við ekki lögfræðinga, sem afla sér tekna með því að brjóta lög og rétt? Og þekkjum við ekki presta og spekinga sem hrasa auðveldlega á vegi siðferðisins? Er nú ekki aug- ljóst að hér hafi gamla manninum orðið á í messunni? Er yfirleitt nokkuð samband milli þekkingar og breytni? Lítum í kringum okk- ur og við munum finna gnótt „fá- fróðra“ manna, sem breyta betur, en margir þeir sem þekkingu hafa. Þessi skoðun Sókratesar að dyggðin sé þekking virðist svo aug- ljóslega röng, að það vekur hjá okkur grunsemdir: — Hvernig stendur á því, að sá, er véfréttin í Delfi kallaði vitrastan allra manna skyldi ekki sjá þetta sem við sjáum svo ljóslega, þetta að þó andinn sé reiðubúinn þá er holdið veikt? Hvernig þorði Sókrates sem átti í látlausum orðasennum við hina frægustu menn sjálírar Aþenu- borgar á blómaskeiði hellenskrar menningar að bera fram svo auð- hrakta skoðun. Hvers vegna gerir sjálfur Aristoteles, sem gagnrýnir svo skarplega alla hellenska heim- speki fyrir sinn dag, enga athuga- semd við þessa skoðun? Sumum dettur nú e. t. v. í hug að manns- andinn hafi þroskazt það mikið síð- astliðin 2300 ár að það sem við sjaum svo ljoslega í dag hafi verið

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.