Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Side 10
126 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS þessum heimspekingum óskiljan- legt. En bíðum við, e. t. v. er skyn- samlegt að vanmeta ekki um of getu hinna fornu spekinga til rök- réttrar hugsunar! —★— Sókrates segir að hið illa í mann- inum sé sprottið af vanþekkingu og að þeim mun meiri, sem þekk- ing mannsins sé þeim mun betri mun breytni hans verða. — En hvað er þetta sem Sókrates kall- ar þekkingu — og hvað er það sem við köllum þekkingu? hoVlrfn ci ól-£ov> cf** Or Vi'3T,r\1T1T1 tes 'r. En hvernig er hægt að öðlast slíka þekkingu? Margur kann að halda að þekk- ingu sé að finna á bókum og ræð- um viturra manna. Á þann hátt er að vísu hægt að læra boðorð um að menn eigi t. d. ekki að stela, að menn eigi að elska náunga sinn, og að rangt sé að valda þjáningu. En allt, sem þannig er lært úr bókum eða af viðræðum þarf ekki að vera annað en minni. Okkar kynslóð kann að halda að þetta minni sé sama og sönn þekking — siálfsbekking. En Sókrates og ~”cr’T' '■í'Hr fornir heimsneking- ar álitu að þessi skoðun væri of grunnfær til að ræða hana. Það mun ástæðan fyrir þögn Aristotel- esar. Sókrates hélt að sjálfsþekk- ing væri annað og meira en safn- haugur minnisins. í hans augum þýddi hún það, að hið innra eðli mannsins vaknaði og yxi fram sem veruleiki í lífi hans og breytni. Ef því einhver breytir illa á einhverju sviði, þá er það vegna þess að samsvarandi eðlisþáttur er for- myrkvaður og þessa formyrkun kallar Sókrates fáfræði. Við skul- um taka dæmi. Prófessor í lögum hefur lært utan að margar og þykkar bækur um hvað sé rétt- læti. Réttlæti, segir Sókrates, er einn af eðlisþáttum manna. Gerum nú ráð fyrir að einmitt þessi eðlis- þáttur lagaprófessorsins sé for- myrkvaður. Hefur þessi maður þá til að bera þekkingu á réttlætinu? Já, segja þeir sem halda að þekk- ing sé sama og minni. Nei, segir Sókrates. Þessi maður mundi vera fáfróður um réttlæti. Vegna þess að þessi eðlisþáttur hans er for- myrkvaður getur öll hin mikla bókstafsþekking hans ekki komið í veg fyrir tilhneigingu hans til að vera ranglátur ef hann hefur einhvern hagnaðaf aðvíkjafráréttu máli. Ef þessi prófessor hefur sanna bpkkínpn á réttlæti. bá er bað vegna þess að þessi eðlisþáttur hef- ur vaxið fram í lífi hans og starfi. Og ef svo er, þá .getur hann ekki hallað réttu máli, vegna þess að réttlætið er eðli hans. Þess vegna er hin sanna þekking hans dyggð og dyggðin þekking. — Prófessor í guðfræði hefur lesið og lært allar ritningagreinar kristindómsins um góðvild og mannkærleika. Góðvild, segir Sókrates, er einn af eðlisþátt- um manna. Hugsanlegt væri þrátt fyrir allt að einmitt þessi eðlisþátt- ur prófessorsins sé formyrkvaður. Hefur þessi maður þá til að bera þekkingu á mannkærleikanum? Já, segja þeir, sem halda að þekk- ing sé minni. Nei, segir Sókrates. Þessi maður mundi vera fáfróður um mannkærleika. Vegna þess að þessi eðlisþáttur hans er formyrkv- aður getur öll hin mikla bókstafs- þekking hans ekki komið í veg fyr- ir tilhneigingu hans til að vera drambsamur, viðskotaillur eða sérgóður. Ef þessi guðfræðiprófess- or hefur aftur á móti sanna þekk- ingu á kærleikanum, þá er það vegna þess að þessi eðlisþáttur hans hefur vaxið fram í lífi hans og starfi. Og ef svo er hlýtur allt dramb og öll síngirni að víkja, vegna þess að góðvildin er eðli hans. Þess vegna er hin sanna þekking hans dyggð og dyggðin þekking. Listskýrandi hefur lært utan að margar og þykkar bækur um sögu, þróun og tækni listarinnar. Feg- urðin, segir Sókrates, er einn eðlis- þáttur manna. Gerum nú ráð fyr- ir að einmitt þessi eðlisþáttur list- fræðingsins sé formyrkvaður. Hef- ur þá þessi maður til að bera þekk- ingu á fegurð listarinnar? Já, segja þeir sem halda að þekking sé minni. Sókrates aftur á móti taldi hann fáfróðan um fegurð. Vegna þess að þessi eðlisþáttur hans er formyrkv- aður getur öll hin mikla bókstafs- þekkiní? hans ekki komið í veg fyr- ir þá tilhneigingu hans að benda mönnum á fegurð í vanskapnaðin- um og vanskapnað í fegurðinni. Ef þessi listskýrandi hefur aftur á móti sanna þekkingu á fegurð, þá er það vegna þess að þessi eðlis- þáttur hefur vaxið fram í vitund hans, í lífi hans og starfi. Og ef svo er þá getur hann ekki séð feg- urð í vanskapnaðnum og van- skapnað í fegurðinni, vegna þess að fegurðin er þá eðli hans. Þess vegna er hin sanna þekking dyggð og dyggðin þekking. —★— Þetta voru aðeins dæmi tekin til skýringar og ef við nú sjáum fleiri slík dæmi í kring um okkur, menn sem við teljum gáfaða og marg- fróða, en breyta samt illa, þá er það vegna þess að þekking þeirra er ekki sönn þekking. Hún er að- eins safnhaugur minnisins, sem á sínum tíma kann að eyðast og hverfa og skilur þá manninn eftir eins og hann raunverulega var: fá- fróðan og án sjálfsþekkingar. Sókrates hélt því fram að hægt væri að kenna dyggðina. En hún verður ekki kennd með því einu að auka safnhrúgur minnisins, heldur með því að hjálpa nemandanum til að vekja sitt innra eðli: góðvildina, fegurðina, sannleikann og rétt- lætið. Slík var kenning Sókratesar,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.