Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Page 13

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Page 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS fr 129 og vistlegra. Það getur líka verið að það eyði hinum illa þef, sem fljótlega kemur í arnarhreiður eftir að ungarnir eru skriðnir úr eggi. Svo fór hún að skyggnast um, upp í loftið og niður í gljúfrin. Hún var að gá að bónda sínum, sem var væntanlegur heim með veiði. Og þarna kom hann „og dró arn- súg í flugnum“. Hann settist við hliðina á konu sinni, og þarna náði ég myndum af þeim báðum og hreiðrinu með unganum, hvítum og kafloðnum. Bóndi hafði komið færandi hendi, var með kanínu í klónum. Hann er talsvert minni en kvenfuglinn, augun heldur ljósari, en engu síður frán og hvöss. Hann gaf skýlinu illt auga og flaug svo burt, en húsfreya tók að gera til kanínuna. Unginn vaknaði nú og skrækti og hún fór að bita kjötið ofan í hann eins og áður, með sömu nákvæmni og umhyggju, sem unun er að horfa á. Þegar unginn hafði fengið nægju sína, hámaði móðirin í sig allt innvolsið úr kanínunni og það sem af gekk. Eftir það stóð hún grafkyrr á hreiðrinu í hálfa klukku -stund til þess að láta matinn sjatna í sér. - íW - Ég frétti af öðru hreiðri, sem betra var að komast að en þessu, því að þar mátti fara eftir sprungu ofan frá brún niður í það. Ernir höfðu orpið þarna árið áður, en þá var steypt undan þeim. Nú höfðu þeir aftur orpið á sama stað, en það var farið hljótt með það, svo að ekki yrði steypt undan þeim aftur. Skógarvörðurinn, sem Neil heitir, fylgdi mér þangað. Klettarnir, sem hreiðrið er í, eru um 200 fet á hæð. Þegar við komum upp að þeim benti Neil mér á ræfla af tveimur kindum, sem þar lágu, og sagði mér þessa sögu: „Fyrir eitthvað mánuði sat ég á hlíðinni þarna fyrir handan og tók þa eftix þvx, að eitthvað óvenjulegt var að gerast í arnarhreiðrinu. Ég greip sjónauka minn og sá þá ein- kennilega sjón. Kind, sem hafði verið á beit uppi á fjallbrúninni, hafði tekið upp á því að klöngrast niður bergskoruna, sem liggur að hreiðrinu. Hafði hún svo komið eins og af hendi send niður í hreiðr- ið, þar sem assa lá á eggjum sínum. Assa rauk upp og lamdi kindina með vængjunum, en hún hörfaði undan fram á brúnina. Henni var ekki undankomu auðið. Fyrir fram- an var gínandi bergið og assa var á milli hennar og skorunnar. Þessu lauk með því að kindin fór of tæpt og hrapaði fram af, en áður hafði hún stigið ofan á annað eggið og brotið það. Fáum dögum seinna fann ég svo hinn kindarræfilinn hér. Sú kind hefur líka farið n>ður skoruna og hrapað fram af“. Við fórum upp á fjallið og klöngr uðumst niður skoruna. Þar lá ung- inn í hreiðrinu, stór og brattur. Ég fór að svipast um hvar ég gaeti komið mér fyrir með myndavél, en það var ekki um neinn annan stað að ræða en bjargbrúnina, þar sem kindurnar höfðu verið hraktar fram af. Mér leizt satt að segja ekki á að vera þar, ef assa skyldi koma, en tók þó myndir af ungan- um og lét Neil halda vörð á meðan. Ernir verpa venjulega tveimur eggjum, en það er sjaldgæft að þeir komi nema öðrum unganum upp. Ef ungarnir eru karlkyns og kven- kyns, þá vex kvenfuglinn miklu hraðar og er aðsúgsmeiri, og þegar hann stálpast ræðst hann á bróður sinn og gengur af honum dauðum, því að hann hefur ekki dug til að verja sig. Stundum etur breddan bróður sinn. Afleiðingin af þessu er sú, að kvenfuglar eru fleiri en karlfuglar. Nú er það vitað að arna- hjón halda ævinlegri tryggð hvort við annað, og ekkert nema dauðinn getur aðskilið þau. En fari nú svo, að assan sé drepin um varptímann, þa nær ornma ser fljott í aðra konu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.