Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Síða 22

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Síða 22
138 * LESBÓK MORGUNBLAÐSINS fæðu, takmarkaðri vökvaneyzlu og, ef allt þetta brygðist, þá að nema burt tárakirtlana með skurðað- gerð. TILFINNINGARNAR RÁÐA Við skulum ganga út frá því að tilfinningarnar séu hið ráðandi afl og kirtlarnir séu þjónar þeirra en ekki öfugt. „Við getum hlegið og skolfið," skrifaði Canon prófessor við Harward háskóla, „en kulda- hlátur skapar enga hamingju, upp- gerðargrátur gerir engan mann hryggan og kuldaskjálfti veldur hvorki reiði né ótta. Wittkower er ágæt heimild. Hann dáleiddi sjúkl- ing og í dáleiðslunni vakti hann hjá honum gleði, sorg, kvíða og gremju. Gallvökvi sjúklingsins var tekinn og látinn í tilraunaglös og það kom í ljós, að gleði og sorg og kvíði uku gallrennslið en gremj- an dró úr því. Og — það sem ekki síður styður okkar málstað, er það að s\ >. breytingin breytti sam- set" gallsins. Vit c " ga getur skammtur af eitri eða kirtilvökva haft áhrif á hegðunina. Það þarf ekki annað en minnast á áfengið og verkanir þess. Og ýmsar þær ytri aðstæður geta verið fyrir hendi, sem sjúklingur- inn hefur engin áhrif á. Þær verka óeðlilega á kirtlastarfsemina og hún veldur breytingu á skapgerð- inni. Ef svo er, þarf sá sem fyrir því verður oft sérstaka læknismeð- ferð. Til eru siðferðilegar veilur, sem orsakast af líkamlegum sjúk- dómum. En af því má ekki draga það, að normal maður sé algjör- lega háður kirtlastarfseminni í lík- ama sínum. Hann er frjáls gerða sinna innan vissra takamrka. Til- finningar hans ráða kirtlastarf- semi hans en ekki öfugt og trú hans er það sem mest mótar tilíinning- ar hans. Kristindómurinn leysir úr læðingi kærleika, hugrekki og traust þar sem áður var e. t. v. hatur, afbrýði, hlédrægni, ótti og áhyggjur. Sannur kristindómur er fagnaðarerindi og hver og einn ætti að hafa það í huga að fleira fólk er veikt af því að það er óhamingju- samt heldur en það sem er óham- ingjusamt af því að það er veikt. GETA FYSISKAR LÆKNISAÐGERÐIR BREYTT SKAPGERÐ MANNSINS? Nú kem ég að því hvort líkam- legar læknisaðgerðir, t. d. á heila, geti breytt skapgerð mannsins og sannað þá fullyrðingu efnishyggju- mannanna að efnið sé alls ráðandi og andinn háður því. Hvað er það sem skeður þegar raflost er notað til lækninga? Við skulum gera okkur mynd af því án þess þó að geta fullyrt hvort sú mynd sé rétt. Við getum hugsað okkur að fyrir raflostið fari hugs- anastraumarnir eftir vissum braut- um í hinum smæstu eindum heil- ans. Rafstraumurinn raðar efnis- eindum heilans á ný, þannig að hugsanastraumarnir fara nú eftir öðrum leiðum, sneiða hjá öllum stöðum þunglyndis og örvinglun- ar. — En svo framarlega sem hinni upprunalegu (andlegu) orsök hefur ekki verið eytt, mun fljótlega sækja í sama horfið þrátt fyrir raf- lostið. Sé það aftur á móti gert, getur „shockið“ komið að fullu gagni. Til að skýra þetta má taka mann, sem á leið sinni heim fer fram hjá tjörn, sem er við veginn. Setjum nú svo, að einhvern tíma á örvænt- ingarskeiði ævinnar hafi hann ætl- að að kasta sér í vatnið. í hvert sinn, sem hann á leið fram hjá tjörninni vaknar minningin um þetta atvik í huga hans og vekur þetta áform á ný. Þessi maður mundi haga sér skynsamlega með því að velja aðra leið, þar sem tjórnin væri ekki á vegi hans. Með raflostinu er gömlum sálarlegum áhrifum þannig beint úr sínum gamla farvegi, sem minna á fyrri hryggð og þunglyndi og þau þving- uð til að nota aðrar leiðir, þær sem liggja fjarri angri og sorg. Og þá hverfur það af sjálfu sér. ÁHRIFIN ATHUGUÐ Ég hef fylgzt með þessum a"ð- gerðum (lost-lækningunum) bæði í Englandi og vestan hafs. Aldrei hef ég vitað þær verða til miska, en persónulega þekki ég marga, sem fengið hafa varanlega bót. En þetta gerir ekki efnið að „yfir- manni“ andans neitt frekar en eðli manns breytist við það að flytja úr fátækrahverfi á fallegt sveita- setur, enda þótt hann yrði sjálfsagt hrifinn og glaður yfir þeim um- skiftum. Það sem með þessu er gert, er ekki annað en það að and- anum, sálinni, eru boðin betri skil- yrði þar sem hann getur notið sín betur og sýnt sitt rétta eðli. Þeir, sem hafa fylgzt með þeim sjúk- lingum sem gengið hafa undir upp- skurð þar sem framheilinn eða hlutar hans hafa verið teknir úr sambandi, hafa tekið eftir breyt- ingum á venjum þeirra og geðs- lagi þeirra. Hér er vandamál, sem við verðum að taka afstöðu til. — Þessi sjúklingur var svona og svona, en eftir uppskurðinn er hann orðinn öðru vísi. Hann er ekki eins eigingjarn og áður, hann segir það sem honum býr í brjósti án þess að taka tillit til annarra, o. s. frv. Með öðrum orðum per- sónuleikanum er hægt að breyta með vissum aðgerðum á heilanum. Það liggur við að sumir materíal- istarnir þykist geta sannað það, að það fari aðeins eftir þeirri til- viljun hvernig heilasellunum er raðað niður hvort maðurinn er syndari eða dýrðlingur. En þessi röksemdafærsla þeirra er bæði róng og veikbyggð. Við skuluxn

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.