Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Síða 23

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Síða 23
139 hafa í huga, að sálin, hið óefnis- kennda sjálf, sem býr í líkaman- um þarfnast hans til þess að lifa í efnisheiminum. Tökum dæmi: Ég get ekki séð án augna, og á sama hátt get ég ekki án vissra hluta heilans látið í ljós vissar tilfinning- ar enda þótt sjálf mitt óski að gefa þær til kynna, alveg á sama hátt og blindur maður óskar gjarna að vera sjáandi. Maður sem verður blindur af slysi breytist ekki í eðli sínu í mann sem aldrei langar fram -ar til að sjá fjöll og blóm o. s. frv. — hann hefur bara engin tæki til þess að sjá þau með. Við skulum ímynda ökkur mann, sem er blindur og dumbur og dauf- ur. En hann er samt góður fiðlu- leikari. Við skulum hugsa okkur að hann geti sparkað með fótunum og leikið á fiðluna með höndum, og með ágætum hljóðfæraleik vinnur hann hvers manns hjarta. Setjum svo að einhver taki fiðluna hans og brjóti hana og hann hafi engin tök á að fá sér aðra. Nú get- ur hann bara sparkað og barið með boganum út í loftið. En er eðli hans breytt? Nei, vissulega ekki. Hann langar að spila á hljóðfærið, sem hann lék áður á; nú er það ónýtt og honum gagnslaust. Áður- nefndur heilaskurður gerir óvirka vissa hluta heilans, sem notaðir eru til að láta í ljós vissar tilfinningar, en með þessu er vitanlega ekki sagt að persónuleikinn hafi sjálfur breytzt. Þetta segir okkur aðeins það, að meðan hann á heima í þessum líkama sé hann rændur því tæki, sem hann áður notaði til þess að láta í ljós vissar tilfinningar. Allir vitnisburðir materíalistanna um það, að efnið sé ráðandi yfir andanum virðast mér einkis virði, þegar maður fer að athuga þá nán- ar.. Satt >að segja væri það næsta skrítið ef náttúran stritast víð.'að skapa hið dásamlegasta fyrirbrigði, öllu æðra — huga mannsins, og \ LESBÓK MORGUNBLAÐSINS setti hann þvínæst algjörlega á vald hins grófa efnis — seldi hið æðra undir vald hins lægra. Guð einn veit með hve miklum þunga líkamleg veikindi geta lagzt á oss — og hversu alvarlega eru ekki sum af okkur leikin af erfiðum skapsmunum. — En einhverntíma kemur að því að lausnin fæst, ann- aðhvort hérna megin grafar eða handan hennar. í hjarta okkar vit- um við, að sálin ræður yfir líkam- anum og að Guð í drottni Jesú Kristi er tryggingin fyrir endur- lausn okkar — að Guði verður ekki fullnægt fyrr en við erum orðin það, sem hann getur gert okkur og hann mun ekki vænta annars eða meira af okkur heldur en lík- ami og sál okkar eru fær um að uppfylla og að sá sem byrjaði í okkur góða verkið mun fullkomna það til dags Jesú Krists. (Séra Gísli Brynjólfsson þýddi). Blaðaleysi STARFSMENN sex stórblaða í New York gerðu verkfall í nóvembermán- uði, og kom þá fyrst í ljós hve illa fer, ef blöð geta ekki komið út. Þessi blöð höfðu haft 5 milljónir kaupanda, og fyrstu viðbrigðin voru að missa auglýs- ingarnar. Atvinnulausir menn vissu nú ekki hvert þeir áttu að snúa sér, því að nú gátu þeir ekki séð hvar vinna var í boði, og vinnuveitendur gátu ekki feng- ið starfsfólk. Jólaaðsókn var byrjuð að leikhúsunum, en nú tók fyrir hana, þegar auglýsingarnar voru ekki. Eins var jólaösin nýbyrjuð í hinum stóru verslunum, og nú tók fyrir hana á sama hátt, svo að kaupmenn biðu stórtjón. Járnbrautirnar urðu af sínum daglega blaðaflutningi, og blaðsalar misstu at- vinnu sína þúsundum saman um allt land. En öldur verkfallsins náðu lengra heldur en til Bandaríkjanna, þær náðu norður í frumskóga Kanada og til Fmniands, þar sem timbur er feilt og selt til pappírs framleiðslu. Skipafélög misstu spón úr askinum sínum þegar tók fyrir flutning á pappír, og pappírs- verksmiðjurnar voru í öngum sínum. Og blaðalesendur voru að ganga af göflunum. Þeir fundu nú fyrst hvað þeir höfðu átt, og útvarpið gat alls ekki bætt þeim það upp. Þegar verkfallinu lauk laust fyrir miðjan desember, höfðu blöðin misst auglýsingar fyrir 10 milljónir dollara. Þau ætluðu að vinna það upp að nokkru leyti þegar fyrsta sunnudaginn. — Þá voru gefin út stærri blöð en nokkru sinni áður. New York Times átti þá metið. Það kom út í 1.300.000 eintökum og hvert blað vóg 5 pund. Þetta eina blað eyddi 3297 tonnum af pappír, eða sem svarar hávöxnum skógi á 396 ekr- um lands. Imhverfis [ördin«i SKÁLDSAGA Jules Verne „Umhverfis jörðina á 80 dögum“ vakti mikla at- hygli þegar hún kom út, og hefur víst flestum fundizt að það væri ekki annað en öfgar og skáldagrillur, að hægt væri að ferðast umhverfis jörðina á svo skömmum tíma. Það kom því mörgum á óvart er Nellie Bly ferðaðist um- hverfis hnöttinn árið 1889 á skemmri tíma heldur en söguhetja Vernes, eða á 72 dögum. Nú þykir þetta ekki mikið, enda hafa allar samgöngur gjörbreytzt með til- komu flugvélanna. Nú geta menn kom- izt umhverfis hnöttinn á nokkrum dög- um, með því að sæta venjulegum áætl- unarferðum flugvélanna. Metið í þessu efni setti Pamela Martin í desember s.l., fór umhverfis hnöttinn á 94 klukku- stundum 59 mínútum, og tafðist þó í ýmsum stöðum þegar skifta þurfti um flugvél. Með rákettuflugvélum verður hægt að fljúga umhverfis hnöttinn á miklu skemmri tíma, þegar þær eru orðnar svo fullkomnar að þær geta haldizt á lofti tímunum saman. Nýasta rákettu- flugvél Bell Aircraft Co., sem nefnd er X-IA, hefur náð hraða er svara mundi til 2560 km á klukkustund, og ef slík vél hefði nægilegt eldsneyti, mundi hún geta flcgið umhverfis jörðina við mrð- jarðarlínu á 15 kiukkustundum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.