Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Page 24

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1954, Page 24
140 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS DÚFUNUM GEFIÐ — Það má með sanni segja að miklar breytingar hafa orðið til batnaðar hér í höfuðborg landsins á þessari öld, velmegun aukist og þrifnaður og húsakynni stórum batnað. En nú eru þó komnar ýmsar plágur, sem ekki þekktust áður. Hingað hafa borizt aliskonar skordýr, sem valda hin- um mestu spjöllum á gróðri. Þeim verður varla útrýmt, aðeins hægt að draga úr skaðsemi þeirra. En svo eru hér aðrar plágur, sem hægt væri að út- rýma. Það er villikattaplágan og villidúfnaplágan. Útrýming villikattanna gæti að nokkru leyti hjálpað til að draga úr skordýrapiágunni, því að um leið og þeir hverfa mundi fjölga mjög smáfuglum í görðum, en þeir eru öllum dug- legri að fækka skorkvikindum. Væri það og góð skifti að losna við kettina, en fá syngjandi smáfugia í staðinn. Sumum finnst dúfurnar aðeins vera til skemmtunar, og svo mun litlu stúlkunni hér á myndinni finnast. En þær valda sóðaskap hvar sem þær fara, skemma talsvert og eru engum að gagni. Og þrátt fyrir að ýmsir góðir menn leitast við að afstýra því að þær falli úr hor og hungri, þá eiga villidúfurnar illa æfi á vetrum og það væri miskunn- arverk að eyða þeim. SÆMUNDAREDDA Skinnbókin forna af Sæmundareddu, er Brvnjóifur biskup Sveinsson sendi konungi með Þormóði Torfasvni 1662 (Konungsbók), er nú talin dýrmætust allra handrita í öllum bókmenntum Norðurlanda. Bók þessi virðist vera úr hinu forna bókasafni klaustursins í Þykkvabæ í Veri. Bryniólfur biskup hefir kunnað að meta það réttileear en samtíðarmenn hans. eins og sést á þessum kafla úr bréfi hans til Þor- móðar 1663: — Um exemplar Eddu, sem þér frá mér út höfðuð í fyrra'til maiesteten, er yður það að skrifa, að þó til hans maiestet hafi borizt annað exemplar fegra og ásiálegra, þá eru þau tuttugu þó ekki verð við eitt það gamla exemplar, hvert þér úf höfðuð, því að bað hefur autoritet antiquitatis (forngildi) og er rétt stafað og skrifað. Meina ég það alleina eitt til vera í heiminum af þeim gömlu exemplari- bús. Hin öll eru eftir því skrifuð, sem til eru, og líka þetta fagra hvers þér getið. Það lét ég Jón heitinn í Oddgeirs- hólum skrifa. En öll eru þau miklu rengri og óréttari en það gamla, og komast ekki í kvist við það. Það vildi ég maisteten fengi að vita, svo því gamla sé ekki í burtu kastað. því aldrei fæst annað aftur rétt, þá það er burt. MÝ V ATN S SILUNGUR Árin 1913—14 gerði dr. Bjarni Sæ- mundsson ýmsár athuganir á fiski i Mývatni, bæði bleikju og urriða, og komst að þeirri merkilegu niðurs+öðu, að bleikjan er miklu stærri eftir aldri heldur en urriðinn, eða með öðrum orðum bráðþroskaðri en hann. Af bleikjunum, sem hann athugaði, voru flestar 4—6 vetra og var þvngd þeirra 500—1245 grömm, en urriðarnir voru flestir 6 vetra og vógu 385—530 grömm. GERÐU ÞETTA HÁLFU OFTAR Ásmundur blindi, sonur séra Ólafs Guðmundssonar sálmaskálds á Sauða- nesi, átti Hróðnýu dóttur Eiríks í Bót og bjuggu þau á Hrafnabjörgum. Þeg- ar þau voru að draga sig saman (um 1640) var Eiríki föður hennar það mjög á móti skapi, þvi að hann hafði ætlað henni prest. En svo fór að Hróð- ný varð barnshafandi. Einhvern veg- inn tókst að leyna því fyrir Eiríki þang- að til hún ól barnið. Þá varð hún að segja frá faðerninu og hafði Ásmund- ur fengið henni 4 potta kút af brenni- víni og sauðarfall hangið til að bliðka föður sinn. Eiríkur sefaðist, einkum við að sjá kútinn, og sagði: „Gerðu þetta bélfu oftar, Hróka mín“. Varð það síðan að orðtaki. VERÐLAG UM ALDAMÓT Sigurður Jónsson segir í „Minning- um frá Möðruvöllum" frá matarfélagi skólapilta og að þeir keyptu fé á fæti. „Messudag einn seint um haustið (1898) kom maður af næsta bæ til mín sem bryta og bað mig kaupa af sér þrevetran sauð, þá nýheimtan. Við ætluðum að slátra síðasta sláturfénu næsta dag. Ég færðist undan, sagði, að við sneiddum hjá að kaupa fé, sem færi í hámarksverð. En af því að mér skildist að manninum lægi á aurum, og hann sótti þetta fast, lét ég til leiðast. Sauðurinn var þunn- vaxinn og lítill, en leit þó ekki illa út, því að hartn var gæruprúður. Hann gerði 29 punda fall, fór í 12 aura verð og gerði með gæru, slátri og mör ögn á sjöundu krónu. Mér hefir oft orðið hugsað til þess, hver framleiðslu- reikningur þessa manns 'varð, eftir fóðurkostnað í þrjá vetur“.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.