Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1954, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1954, Blaðsíða 1
ARNI OLA: 4&. SAGA AF FRÆKILEGRI VÖRN ÍSLENZKS SKIPSTJÓRA S, É> ák £k £k ák ú ák ÁRIÐ 1855 kom fram á Alþingi beiðni frá útgerðarmönnum í Dunkirk, að Frökkum yrði veitt leyfi til þess að stofna fiskimanna nýlendu vestur í Dýrafirði. Sum- arið eftir kom svo Napoleon prins hingað með fríðu föruneyti til þess að vinna að framgangi þessa máls. En þetta sumar, rúmum hálfum mánuði áður en skip prinsins sigldi inn á Reykjavíkurhöfn, gerðist vestur í Dýrafirði sú saga, er nú skal sögð, og er hún tekin eftir dómabók ísafjarðarsýslu. á^. á^. Um þessar mundir var gert út til hákarlaveiða frá ísafirði þilskip, sem „Phenix“ hét. Skipstjóri á því var Bjarni Þórlaugarson, fæddur á Rafnseyri í Arnarfirði og þá 29 ára gamall. Skipið var að veiðum fyrir Vesturlandi. Hinn 9. júní hleypti það undan stormi inn á Dýrafjörð og lagðist fyrir akkerum á svokall- aðri Alviðrubót. Voru þar þá fyrir mörg skip, er einnig höfðu hleypt undan veðrinu. Meðal þeirra var „slúppurinn'* ísafjörður frá ísa- firði. Skipstjóri á honum var dansk -ur maður frá Kaupmannahöfn, Jakob Hansen að nafni, en stýri- maður hans hét Daniel Ólafsson, 27 ára að aldri, ættaður úr Dýra- firði. Svo voru þarna fimm hol- lenzk fiskiskip, sem Vestfirðingar nefndu „hukkortur“. Höfðu þau

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.