Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1954, Qupperneq 10
76G
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Clerverksmlðjan í
Reykjavík í smíðum
straumur undir. Með snarræði björg-
uðust mennirnir, en hrossið sogaðist
unq^r ísinn og hvarf (24.)
Lik fannst rekið á Oddeyri og reynd-
ist vera Jóhannes Sigurðsson, frá
Húsavík, ungur maður, sem hvarf á
Akureyri í sumar (25.)
BIFRFIÐASLYS
Öldruð kona varð fyrir bíl í Reykja-
vik og meiddist mikið (12.)
Ellefu ára drengur úr Hafnarfirði,
Björn Jóhann Karlsson, varð fyrir bíl
á Hafnarfjarðarvegi og beið bana (23.)
Bílaárekstur varð á Akureyri. Hent-
ist annar bíllinn fram af háum bakka
niður í fjöru, en hinn lafði á bakka-
brúninni. Báðir skemmdust mikið, en
menn sakaði ekki (25.)
Maður varð fyrir bíl á götu í Reykja-
vík og beið bana (30.)
ELDSVOÐAR
Kviknaði út frá rafmagni í húsi sem
er í smíðum í Hafnarfirði og urðu af
nokkrar skemmdir (3.)
Brann reykingahús og þurkhjallur á
Mel í Staðarsveit (9.)
Brann efri hæð húss í Seyðisfirði og
misstu ung hjón þar aleigu sína (11.)
Eldur kom upp í Bílaiðjunni í
Reykjavík. Voru þar 7 bílar inni, en
þeim tókst að bjarga. Húsið eyðilagðist.
(13.)
Brann gamalt timburhús í Keflavík.
Bjargaðist fólk nauðulega og þrír
slösuðust. Litlu varð bjargað (16.)
Brann íbúðarhús að Hvallátrum í
Barðastrandarsýslu. Kona var ein
heima með barn og bjargaðist hún með
það út um glugga. Stórviðri var á og
brann húsið til kaldra kola (16.)
Eldur kom upp í verbúð í Keflavík
þar sem 7 menn voru í svefni. Tókst
að bjarga þeim úr eldinum. Skemmd-
ir á húsinu urðu allmiklar (26.)
VINNITDEILITR
Lögreglumenn í Keflavík lögðu niður
vinnu (5.) en samkomulag tókst brátt
aftur.
Strætisvagnastjórar í Reykjavík
sögðu upp samningum með boðun um
verkfall 1. des. ef þá hefði ekki náðst
samningar (5.)
Kjaradeila var milli Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur og kaup-
manna, en henni lauk með samkomu-
lagi (4.)
Lauk verkfalli verkfræðinga hjá
ríkinu, en það hafði staðið í sex mán-
uði (27.)
Iðja, félag verksmiðjufólks, sagði
upp samningum sínum við iðnrekend-
ur frá 1. des. en nýr samningur var
gerður (30.)
ÍÞRÓTTIR
Úrslit urðu kunn í norrænu sund-
keppninni, sem fram fór í sumar. Svíar
höfðu sigrað, en íslendingar gengu
þeim næstir (2.)
Símskák þreyttu ísfirðingar og
Stokkseyringar og sigruðu hinar síðar-
nefndu (11.)
Haustmót Taflfclags Rcykjavíkur var
háð. Gunnar Gunnarsson varð skák-
meistari (13.)
Friðrik Ólafsson varð Reykjavíkur-
meistari í hraðskák (19.)
SKALHGLT
Hafin var fjársöfnun um allt hið
foma Skálholtsbiskupsdæmi til endur-
reisnar staðarins. Er þetta gert fyrir
forgöngu Stúdentafélags Akraness
(16.)
Skálholtsnefnd, sem skipuð var s. 1.
vor, hefir skilað áliti. Leggur hún til
að reist verði krosskirkja úr steini í
Skálholti og taki hún 250 manns í sæti.
Ennfremur verði reist íbúðarhús
handa presti, eða biskupi, ef biskup
skyldi sitja þar, og annað fyrir bónda
eða ráðsmann. Hitaveita og vatnsveita
verði lögð í öll húsin, og heimreiðinni
og veginum til staðarins verði breytt.
Er ætlazt til þess að byggingar þessar
verði komnar upp árið 1956 (20.)
AFMÆLI OG GJAFIR
, Kristniboðsfélag kvenna átti 50 ára
afmæli. Bárust því margar gjafir, sam-
tals 28.300 kr. (9. og 27.)
H.f. Egill Vilhjálmsson átti 25 ára
afmæli og í tilefni af því gaf firmað
Dvalarheimili sjómanna 20.000 kr. (3.)
Önefndur maður gaf 5000 kr. í end-
urreisnarsjóð Skálholts (4.)
Þjóðkirkjan hefir ákveðið að gefa
4 smálestir af lýsi handa nauðstöddum
arabiskum börnum (20.)
Sigurjón Ólafsson myndhöggvari gaf
Dvalarheimili sjómanna myndastyttu
af sjómanni (10.)
Börn Sigurjóns Á. Ólafssonar fyrrv.
alþingismanns, gáfu Dvalarheimili sjó-