Lesbók Morgunblaðsins - 20.11.1955, Page 4

Lesbók Morgunblaðsins - 20.11.1955, Page 4
646 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS J. M. Eggertsson: Peningar / ;■» l geymdir og grafnir í jörð Flestir hafa heyrt þjóðsöguna um „dalakútinn" í draumnum, er síðar fannst fullur af peningum. Hér er sönn saga um annan „dalakút" — ódreymdan og ófundinn enn _ ag öllum líkindum. ^RIÐ 1868, eða fyrir réttum 87 árum, var fvrsti sparisjóður stofnaður á íslandi. Þessi fyrsti ís- lenzki sparisjóður var stofnsettur á Seyðisfirði. Það var eigi fyrr en 17 árum síð- ar, að fyrsti viðskifta- og útlána- banki var stofnsettur á íslandi. Það var Landsbankinn í Revkiavík, stofnaður 18. september 1885. Fram að þeim tíma, eða allt fram á daga elztu núlifandi manna, höfðu menn aura sína í „handraða“ undir slá og lás, og lumuðu á þeim allaveea, sumir síhræddir um að missa þá í þinggjöld, eða þjófa. Hvorugur var kosturinn góður. Ráð var því að geyma aura sinna gætilega, og að sem allra fæstir vissu. Á beim dög- um voru flestir undarlega nasvísir um náungans auraráð. Og ef ein- bver var staðinn að Deningasöfnun, vitnaðist það og alræmdist furðu fljótt. En menri voru misiafnlega auðsælir þá eins og nú Og eitt má ennþá eiga víst: að meðan nening- ar eru í gangi manna í milli, verða einhverjir til að vilia eignast þá. Einn þessara umkomulausu, en auðsælu manna, er uppi var á und- an sparisjóðum og bönkum, og gróf því peninga sína og faldi þá í jörðu, var Zakarías Illugason, húsmaður á Hjöllum í Þorskafirði, dáinn 11. marz 1852. Við ið opinbera manntal um land allt árið 1850, er heimilisfólk á Hjöllum í Þorskafirði, sem hér segir: Ari Einarsson 34 ára, húsbóndi. Guðbjörg Guðmundsdóttir, 35 ára, kona hans. Börn þeirra: Kristjana, 5 ára. Jón, 2 ára. Björn Einarsson, 25 ára, bróðir bóndans, vinnumaður. Ingibjörg Jónsdóttir, 28 ára, vinnu- kona. Margrét Sveinsdóttir, 16 ára, léttastúlka. Björn Jónsson, 90 ára, ekkill, niðursetningur. Zakarías Illugason, 42 ára. og fædd- ur að Stað í Grindavík. Lifir á ferðalagi. Áðurnefndur Zakarías var þá eigandi Hialla í Þorskafirði og landsdrottinn Ara bónda, bótt bess sé ekki getið í manntalsskránni 1850. í prestþjónustubók Gufudals- sóknar, en þeirri sókn tilheyra Hiallar í Þorskafirði, stendur: Ár 1844: „Innkominn í Gufudalssókn, Zakarías Illugason, húsmaður að Hjöllum frá Hvítadal.“ AUÐUR VELDUR ÁHYGGJUM Zakarías Illugason var fæddur og uppalinn í fátækt, en græddist fljótt fé; enda hygginn og ráðdeild- arsamur. Hann fékkst við smá- skammtalækningar, skreiðarkaup og hestasölu og „lifði því mest á ferðalagi“, eins og segir í prest- þjónustubók Gufudalssóknar. Zak- aríasar er fyrst getið í Saurbæ í Dalasýslu, og þá strax í sambandi við peninga er hann geymdi í kistli nokkrum í búri á bæ þeim er hann taldist til heimilis. Munnmælin segja Zakarías vera upprunninn úr Eyrarsveit, en það er með öllu óvíst, en manntöl og kirkjubækur þegja að mestu um þennan mann, að undanteknu því fáa, sem ég hef fundið og hér er skráð. Óvíst er einnig um aldur hans og getur munað nokkrum árum. Við mann- talið 1850 er hann talinn 42 ára. En tæpum tveim árum síðar, 1852, er hann andast, talinn 48 ára í prestþjónustubók Gufudalssóknar. Zakarías hafði miklar áhyggjur af peningum sínum og var aldrei óhultur um þá. Þá var það meðan hann átti kistilinn, eina nótt, að Zakarías gat ekki sofið — Fannst honum þá sem einhver sæti um peninga sína. Fór hann ofan og fram í búr. Er þar þá þjófur kom- inn með lítið ljósker. Og liggjandi á moldargólfinu er hann að bauka við að draga botninn undan pen- ingakistli hans. Ekki þekkti Zak- arías þjófinn. Hann var með grímu fyrir andliti og þaut í burt þá að var komið. Eftir þetta fluttist Zakarías frá þessum bæ og þá að Hvítadal. Ekki vildi hann lengur eiga peninga sína í íláti, en setti þá í selsmaga og gróf þá undir hesthi^stalli í Hvítadal. Er nú kyrrt um sinn. Þá var það einu sinni sem oftar, að Zakarías fór suður með hesta til sölu og svo til skreiðarkaupa. Dreymdi hann þá í þeirri ferð, að því er hann sjálfur sagði, að hrófl- að mundi við peningum hans. Yfir- gaf hann því lestina og fekk mann

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.