Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.1956, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.1956, Qupperneq 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Næturgestur staulast nú um ein- stígið ofan af fjallinu. Undir er fögnuður álfa og vætta. Á nýárs- nótt leysist allt úr læðingi: „stein- ar tala og allt hvað er.“------ Veðri er svo háttað, að nú er ný- uppstytt eftir snjóhríðarveður. — Vetrarríki er hér óvanalega mikið í ársbyrjun. Veðrið er unaðslegra en orð fá lýst — stjörnubjart, brag- andi norðurljós og tungl í fyll- ingu. — Algjörlega tilgangslaust að ætla með orðum að lýsa þeim tak- markalausu töfrum er næturgest- urinn nýtur einn í þessum undra- heimi. Glys og prjál allra höfuð- borga heims, flugeldar og flangs, er auðvirðilegasta hræsni, hjóm og hégómi hjá þeirri óumræðilegu upphiminsdýrð er augað lítur og andinn nýtur nú, — hér uppi í öræfatign almáttugs skapara him- ins og jarðar. Næturgesturinn leitar náðar drottins og helgar sig honum um leið og hann staulast ofan einstíg- ið inn í rökkurkjamann við rætur hamraveggjanna undir háfjallinu. Og vetrarbraut í vafurlogans hjúp hann vefjast sá og hverfa í næturdjúp.----- Og rökkurtjaldið rís — skugga- höttur hangir. Fjallið breytist! Er nú næturgestur bergnuminn? Það var eins og hann hefði skyndilega komizt undir einhver álög, þegar hann fór undan stjörnubjörtum himni með fullum mána og flögr- andi norðurljósum, inn í rökkrið undir þykkum hamraveggjum bergkastalans. Honum varð innan- brjósts eins og væri hann kominn í einhvern annarlegan ævintýra- heim. Þegar augu gestsins höfðu vanizt því dularfulla Ijósi er lýsti sem eimyrja inn í sjálfum dumb- rauðum rökkurkjamanum, undir og allt um kring í flughömrum hengibrettunnar, sá hann að raun- verulega var hann staddur í galdraveröld þar sem flug tímans var f jötrað, nú augnabliksins bund- ið og komið í kyrrð, en öll fram- þróun umliðinna eilífða áttu þau víðerni og þær veraldir er birtust í berginu sem mannkynjaðar myndir, fjörvifullar, með lifnaðar- háttum liðinna tíma.-------- Fjallið opnast! Og í gegnum forsali og súlna- göng er gestinum ekið í einhverj- um undravagni, dregnum af dýr- um, er einna helzt líktust risa- stórum fannhvítum köttum Á fleygiferð er ekið fram hjá heilum hópum af glaðværu og góðlegu skrautbúnu fólki, sem heilsar gest- inum og hyllir hann. Flest var fólkið í bláum og rauð- um klæðum, alsettum glitrandi perlum og gimsteinum. Margar konur báru á höfðum eitthvað er líktist fagurlega gerðum tágakörf- um á hvolfi, alsettum perlum elleg- ar ópölum. Salir allir ummálsmiklir með súlum, svölum og hvolfþökum. Staðnæmzt er í stórum sal, þétt- skipuðum skrautbúnu fólki. Leit .næturgesturinn þá á sjálfan sig og sá, sér til undrunar, að hann er klæddur og kominn í skósíða skikkju, bláa, gullbrydda og al- setta glitrandi perlum, með kostu- legan hatt á höfði, en á fótum skó af rauðu flosi. Hvar hann hefur fengið þennan skrúða og hvemig komizt í hann, er honum hulið. Næst sér næturgesturinn að um hann hafa verið slegnir þrír fólk- hringar; hann sjálfur er orðinn eins og miðdepill innan í þreföld- um hring af konum og kðrlum. f innsta hringnum eru átján yngis- menn og átján vngismeyar og er hvert par sérskilið. piltur og stúlka í pari og snúa bökum saman, en hliðinni inn í hringinn til gestsins, er myndar míðdepilinn. Næsti hringur er nákvæmlega á ™ Í9 sama hátt skipaður konum og körlum, jafnmörgum áf hvoru kyni og hagar sér að ðllu levti eins og innsti hringurinft, nema þar er fólk allt nær miðaldra að sjá. Loks er yzti hringnrinn eins skipaður, nema þar eru aldraðar konur og öldungar, silfurhært og frábærlega frítt og góðlegt fólk. eins og allt hinna, og bauð áf sér góðvild, traust og þakka. Þá koma svífandi inn í salinn, líkt og í lausu lofti, fjöldi drvkkj- arhorna, fagurformaðra og skraut- búinna, fyllt gullnu, freyðandi víni og staðnæmizt fyrir framan hvern og einn, mann og konu, og eitt horn undrafagurt fyrir framan gestinn; en hver og einft, í öllum þrem hringunum, lvfta horfti sfnu og hylla gestinn. Þá opnast svalir eins og sjónar- svið og birtast þar í hásæti, dýrð og veldi, konungur og drottning bergvættanna ásamt risavöxnum varðmönnum til beggja handa, skrauti búnum í blátt og rautt. En allur skarinn umhverfis gestinn, og eins hann sjálfur, lyfta homum sínum með syngjandi árnaðarópi og hylla konungshjón bergvætt- anna; en konungur og drottning aðhafast eins, lyfta homum sín- um og bjóða alla velkomna, gesti og gangandi, heima og heimán. — Konungur bergvættanna mæltist máls, ræmdist mjúkt og hlýtt, og þó styrmisterkt, í og með eigin hrvnjanda og eðlisskifting: jörð, vatn, loft, eldur, ljósvaki, hugur, mannvitund og sérvitundr — allt í hreyfing orðanna. Var sem jmndr- uð hátalara bvldu bergveggtan, þó með þýlyndi, eins og súgandi hljóð farkostar er Uuggengur sjáv- arsval. (En hula féll fyrir sviðið og gerði sjálfan hann og sveit hane ógén*): ..Rís upp! Vak! Vaknið!. ÁÍlix þér undir stjðrnum himinsjns. er eifið merki eðalsteinanna: itjörnuópal-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.