Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.1956, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.1956, Blaðsíða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 571 Saga Stjarnorkunnar og hvernig menn náðu tökum á henni ESSI saga er löng. Hún hefst ' þegar hjá Forngrikkjum. Þeir brutu heilan um margt, og Demo- krit var að velta því fyrir sér hvernig fara mundi ef efnið væri brotið í stöðugt smærri eindir. Hann hélt að svo mundi fara að seinast yrði eftir öreind, sem ekki væri hægt að smækka. Og hann gaf þessari öreind nafn og nefndi atom, eða ódeili. Hugmynd hans lá niðri um mörg hundruð ára, svo að menn skeyttu ekki um hana. En undir lok seinustu aldar komust eðlisfræð- ingarnir að því, að allt efni mundi byggt upp af ótal smáum frum- eindum. Timbur og grjót, vatn og bik — öll efni mátti brjóta upp í frumeindir, en þær væri með öllu ósamsettar. Járn, ildi, blý, brenni- steinn og rúmlega 80 önnur efni væri ekki samsett af neinu nema sínum eigin frumefnum. Nú virtist náttúran vera furðu- lega einföld. Allt efni var skapað af hér um bil 90 frumefnum. Þessi frumefni voru alls staðar, matur og drykkur, klæði og líkami — allt var skapað af frumeindum. En svo gerðu menn þetta enn einfaldara. Um 1870 gátu þeir Mey- er og Mendelejeff skipað frumefn- unum í flokka. Þeir drógu t. d. sam- an þau frumefni er líktust kopar, silfri og gulli og öll þau efni voru svipaðs eðlis. Það benti til þess að öll frumefnin mundu vera lík. Þá réði sú skoðun, að frumeindin væri ódeilanleg, og þar var komið ódeili Demokrits. En hvað vissu menn þá um ódeilið, eða atómið? Það eru ekki nema svo sem 60 ár síðan menn fór að gruna, að atómið væri ekki ódeili. Sú minnsta frum- eind efnis, sem menn höfðu hugsað sér, var deilanleg. Atómin hafa alltaf deilt sér, og meðal annars er það þess vegna að sólin skín. Og saga þessara svokölluðu frum- eindarannsókna, sem aðallega hefst fyrir rúmum 60 árum, hefir nú gjörsamlega kollvarpað heims- skoðun vísindamanna á fyrri öld. 1895 Þetta varð merkisár í sögu nátt- úruvísindanna. Og upp úr því verða stórbyltingar í eðlisfræðinni. Menn höfðu þá um nokkurt skeið haldið, að rafmagnið leiddist eftir keðju af svonefndum rafatómum. Mönnum hafði tekizt að leiða raf- magn eftir loftlausri glerpípu og kölluðu það „kaþóðugeisla". Röntg- en fann upp á því að setja málm- þynnu í pípuna miðja. Þá skeði merkur fyrirburður. Af málminum lagði nýa geisla út í gegn um píp- una. Þeir voru ósýnilegir, en þeir komu fram á spjaldi með sinksulfid -húð. Röntgen setti hendina þar á milli. Geislarnir fóru þvert í gegn um höndina, og skuggamynd af henni kom fram á spjaldinu. Þann- ig fundust Röntgengeislarnir. Það kom í ljós að þessir geislar höfðu þúsund sinnum styttri bylgjulengd heldur en ið sýnilega ljós. Og þeir komu frá málmatómunum, sem urðu fyrir kaþóðugeislum. 189« Henri Becquerel hafði hjá sér nokkur úranblönduð efni, geymd í skúffu, þar sem einnig voru ljós- myndaplötur. Þegar hann ætlaði að nota plöturnar, reyndust þær ó- nýtar. Einhver birta hafði komizt að þeim og gert þær ónýtar. Þá komst Becquerel að raun um, að úranefnið stafaði frá sér geislum, er gátu farið í gegn um fast efni. Þessa geislun var ekki hægt að hindra og ekki heldur hægt að hleypa henni á stað. Hún var sjálf- virk. Hér var útgeislanin fundin. Frá úranatómunum lagði röntgen- geisla (gamma-geisla), sem nokkuð líktust kaþóðugeislum (beta-geisl- um) og í þeim var einnig helium- gas (alfa-geislar). 1897 J. J. Thomson uppgötvaði að kaþóðugeislar, rafmagnsatóm og beta-geislar frá úran, eru eitt og ið sama. Þetta eru rafeindir, eða frá- hverfar rafmagns öreindir. Og þeg- ar þær losna úr úran mynda þær samfeldan rafmagnsstraum. 1898 Pierre og Marie Curie fóru að leita að öðrum geislavirkum efn- um, og þau fundu það efni er fræg- ast hefir orðið: radíum. 1900 Max Planck kom fram með þessa kenningu: Úr því að allt efni er samsett úr öreindum, mun þá ekki öll orka líka vera samsett á líkan hátt, að hún sé ekki annað en milljónir milljóna af smárykkjum? Með þessu kom upp in svokallaða „kvanta“-kenning, sem hafði stór- kostlega þýðingu síðar meir. :302 Nú höfðu menn kynnst ýmsum geislavirkum frumefnum og þau voru sett á sinn stað í keðju frum- efnanna 92, er þá höfðu fundizt, því að frumefnunum er skipað niður

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.