Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.1957, Page 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
111
en sagði að Jón bóndi Benjamíns-
son á Syðra Lóni kannaðist vel við
skipið, því að það hefði verið að
veiðum í Þistilfirði sumarið áður.
Þau urðu erindislok hans, að
norski skipstjórinn lofaði að taka
við hrakningsmönnum og flytja þá
til Seyðisfjarðar, en þaðan gátu
þeir komist með póstskipinu eftir
fáa daga. Var svo ekki um annað
að gera en búa skipverja sem bezt
út og koma þeim um borð. Varð nú
að safna mönnum til þess að bera
þá ofan í bátinn, og urðu þeir 5
saman. Var Hannes þar með. Tókst
slysalaust að koma mönnunum um
borð í norska skipið og sigldi það
á stað með þá um kvöldið. Segir
svo ekki meira af þeim.
Þess má geta, að skipstjóri hafði
enga peninga til þess að greiða
fyrir dvöl þeirra á Brimnesi og
allt það umstang, sem koma þeirra
hafði valdið. En hann skrifaði seðil,
þar sem hann bað Ólaf að geyma
bátinn þangað til yfirvaldið kæmi,
og skila til sýslumanns ósk um að
báturinn yrði fluttur til Þórshafn-
ar, því að þar væri honum óhætt-
ara en á Brimnesi. Skipstjóri bað
og túlkinn að segja Ólafi, að félag-
ið, sem átti skipið, mundi senda
mann eða menn til þess að sækja
bátinn, og þá skyldi honum greidd-
ur allur kostneður hans og fyrir-
höfn.
Þegar Benedikt Sveinsson sýslu-
maður kom svo austur til þess að
taka skýrslu um hrakningana (en
það var seinustu dagana í júní)
gerði hann ráðstafanir til þess að
báturinn yrði fluttur til Þórshafn-
ar og falinn þar umsjá hreppstjóra.
í RAUFARHÖFN
Nú er að segja frá hraknings-
mönnum þeim, sem komust til
Raufarhafnar, og verður þá fyrst
farið eftir skýrslu frá Chr. G. P.
Lund. Hann segir svo frá:
— Hjá Ágúst Þorsteinssyni veit-
ingamanni fengu þeir rúm og ina
beztu aðhlynningu. Fætur þeirra
voru fyrst settir í kalt vatn og
síðan hafðir við þá kaldir bakstr-
ar. Þeim var gefið inn 1 glas af
Kronessens og 4 hráar eggjarauður.
Klukkan 2% um nóttina lét eg
son minn sækja hest, og skrifaði
bréf til Benedikts Sveinssonar
sýslumanns á Héðinsh'öfða um að
nauðsyn væri á læknishjálp. Var
svo sendur hraðboði með það, Sig-
mundur Gestsson á Möl við Rauf-
arhöfn, og átti að fara með það
til Ingimundar hreppstjóra Rafns-
sonar á Brekku í Núpasveit, og að
hann sendi það áfram. En sendi-
boði minn varð að fara alla leið
að Skógum í Axarfirði, vegna þess
að Ingimundur vildi ekki senda
hraðboða, heldur láta bréfið ganga
bæ frá bæ. Þegar er hraðboðinn
kom að Skógum, sendi Björn bóndi
Gunnlaugsson ríðandi mann með
bréfið til Árna bónda Björnssonar
1 Ámanesi í Kelduhverfi. En hann
sendi hraðboða með það til Sig-
fúsar Sigurðssonar bónda í Sult-
um, og skyldi hann fara með það
tafarlaust til sýslumanns, hvað
hann gerði þegar í stað.
Dagana 3.—8. júní fengu allir
mennirnir kalda bakstra á fætur,
en sátu stundum með fætur í köldu
vatni. Að kvöldi ins 7. var einn
þeirra mjög veikur og með óráði.
(Eg vitjaði þeirra oftast þrisvar á
da). Þá gaf eg honum inn Kína
og ofurlítið af Hoffmannsdropum.
Aðfaranótt 8. júní kl. 2, kom
Jón læknir Sigurðsson frá Húsa-
vík*) og fylgdi honum Sigfús í
Sultum. Þeir vöktu mig upp og
klæddi eg mig þegar. Læknirinn
fór svo að athuga fætur þeirra og
var eg honum til aðstoðar þegar
*) Jón læknir var sonur Sigurðar
Johnsen kaupmanns í Flatey og konu
hans Sigríðar Brynjólfsdóttur stúd.
Bogrsonar. Jón læknir fekk Húsavík-
urhérað 1882 og hélt til seviloka 1887.
>
hann skar, hreinsaði og batt um
þá. Sá, sem var veikastur, dó tæp-
um 1% tíma eftir að læknirinn
kom. Líkið var saumað innan í
hvítt léreft og kistulagt 2 dögum
seinna. Var það svo flutt sjóleiðis
til Ásmundarstaðakirkju af þeim
bræðrum Jóni og Áma Ámasonum
og 2 mönnum öðrum, fyrst á mín-
um báti út í Fuglavík og þaðan á
báti Áma Ámasonar til kirkjunn-
ar, þar sem maðurinn var grafinn.
Dagana 9. og 10. var læknirinn
að hreinsa sár þeirra og binda um
að nýu, og hjálpaði eg honum 2—3
tíma á dag.
Læknirinn fór 10. áleiðis til
Húsavíkur, til að sækja ýmislegt,
sem hann vantaði, og fól mér .að
búa um fætur þeirra á meðan.
Gerði eg það á hverjum degi þang-
að til læknirinn kom aftur þann
19. um miðnætti. Daginn eftir fór
eg um borð í „spekúlationsskipið“
A. J. Fog frá Rönne, og yfirgaf þá
Englendingana. Frá 3.—13. júní
fékk hver þeirra á hverju kvöldi
1 pott af nýmjólk. Auk þess keypti
eg handa þeim hjá Fog 6 krítar-
pípur og eldspýtur, sem eru á með-
fylgjandi reikningi, sem eg vona
að fá innskrifaðan hjá versluninni
á Raufarhöfn.--------
Hér með lýkur skýrslu Lunds.
En á öðrum skjölum má sjá, að
læknirinn hefir ekki búist við því
að mennimir væri eins illa komnir
og raun varð á, því að þegar eftir
komu hans er Hannes Þorsteins-
son stúdent sendur dagfari og nátt-
fari til Vopnafjarðar, að sækja
nauðsynleg meðul til Einars læknis
Guðjohnsens.
Hér mætti og skjóta því inn í,
vegna ummæla Lunds, að Ingi-
mundur á Brekku mun alls ekki
hafa gert sér grein fyrir því hva
mikið lá við að ná skjótt til læknis.
Það var honum ólíkt að bregðast
ekki vel við þegar nauðsyn kall-
aði. Hvorki læknirinn né hann
i