Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1957, Síða 14
154
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
„Agætur dagur
MEÐAN menn keppast hér við að tala og rita um aukna landkynn-
ingu og nauðsyn beri til þess að draga sem allra flesta útlendinga
hingað, er ísland orðið frægt að endemum af sögum þeim, sem erlendir
ferðamenn segja Eif drykkjuskap landsmanna. Væri fróðlegt og at-
hyglisvert ef safnað væri saman öllu því, sem birzt hefir A prenti er-
lendis um slíka landkynningu.
í marzhefti enska tímaritsins „The Wide World“ birtist grein um
kappreiðar á Skeiðvellinum hjá Elliðaánum og er eftir James Findlay.
Þetta er útdráttur úr henni:
Wales, Brazilíu, Malaya og á Nýa
Sjálandi. En með gróðrinum berst
það ofan í skepnur. Oftast nær
sezt það að í beinum þeirra. Seinna
eru beinin möluð og notuð seni
áburður, og þá berst hið geisla-
virka efni í akrana. Hjá kúm berst
það út í mjólkina, og með henni í
menn. Það berst einnig í menn
með allskonar ávöxtum, því að þar
safnast það helzt saman. Rann-
sóknir, sem gerðar voru á bauna-
tegund í Maryland í haust, sýndu
að 35 sinnum meira var af stronti-
um 90 í baununum sjálfum, held-
ur en baunagrasinu. Þannig berst
þetta hættulega efni í menn, og
enginn veit enn með vissu hvað
maðurinn þolir stóran skammt af
því, sér að ósekju. Líkur eru til
þess að börnum stafi þó mest hætta
af þessu, einkum með mjólkinni.
Nú er það svo, að strontium sezt
að í beinunum og getur orðið
hættulegast meðan beinin eru að
vaxa. Það dreifist ekki jafnt um
alla beinagrindina, heldur safnast
fyrir á vissum stöðum, og með
rannsóknum á dýrum hefir komið
í ljós, að einmitt á þeim stöðum
myndast krabbamein.
En strontium getur líka borizt á
ýmsan annan hátt. Sú saga er sögð,
að veiðimenn norður í Kanada
skutu villiendur og átu þær. Þeim
varð hastarlega illt af kjötinu, og
kom þá í ljós að geislavirk efni
fundust í því. Þessar villiandir
höfðu á leið sinni norður komið
við hjá Oak Ridge í Bandaríkjun-
um, þar sem er kjarnorkustöð. Þær
höfðu bitið gras hjá tjöm nokk-
urri, en í hana höfðu borizt geisla-
virk efni og úr henni í grasið og
með því í endurnar. Og svo sýktu
þær veiðimenn langt norður í
Kanada. Þannig getur hættan af
hinum geislavirku efnum borizt
víðs vegar eftir hinum furðuleg-
ustu leiðum.
Skammt frá Oak Ridge höfðust
VIÐ fórum fimm til kappreið-
anna í skínandi bíl — bókari, sem
hafði lært ensku í New York, öku-
maður, sem kunni aðeins íslenzku,
lögfræðingur og verkfræðingur
með heljar mikla tösku á hnján-
um, og eg sá fimmti. Verkfræðing-
urinn lét sér mjög umhugað um
töskuna og eg hugsaði að eitthvað
dýrmætt mundi vera í henni. Það
kom brátt í ljós.
einnig við moskusrottur. Þær
heldu til hjá læk nokkrum, sem
menn vissu að vísu að geislavirk
efni höfðu borizt í, en töldu þau
alveg skaðlaus. En geislavirka
efnið úr læknum barst í gróður-
inn sem þar var, og úr honum
í moskusrotturnar. Þegar farið var
að rannsaka þær kom í Ijós að
geislavirku efnin höfðu aðallega
sezt að í öðrum lærleggnum og
þar fundu læknar krabbamein. Á
þessu sézt að áhrif hinna geisla-
virku efna geta borizt víðar en
menn grunar.
í Oxford á Englandi fara nú fram
rannsóknir á kanínum, sem gef-
inn er mismunandi skammtur af
strontium. Það er kona, dr. Janet
Vaughan, sem stendur fyrir þess-
um rannsóknum. Hún hefir líka
komizt að þeirri niðustöðu, að
strontium safnast fyrir á vissum
Þegar við komum að Skeiðvell-
inum sagði bókarinn að við hefð-
um komið þangað of snemma, svo
við stigum út og virtum fyrir okk-
ur hestana, sem þeystu fram hjá
og þyrluðu upp miklum rykmekki.
En nú kom í ljós hvað verkfræð-
ingurinn var með í tösku sinni.
„Er ekki bezt að við tyllum okk-
ur niður?“ sagði hann. „Við verð-
um að gera eitthvað". Og svo tók
stöðum í beinunum, svo að geisla-
magn þess þar er 50 sinnum meira
heldur en annars staðar. Og hún
hefir líka komizt að því, að ein-
mitt á þessum stöðum hefir jafn-
framt verið byrjandi krabbamein.
Rökrétt ályktun af þessu er sú, að
þótt einhver líkami eigi að þola
ákveðinn skammt af geislavirku
efni, ef hann dreifist jafnt um
líkamann, er þessu ekki til að
dreifa úr því að hin geislavirku
efni safnast fyrir á vissum stöð-
um. Þess vegna eru nú margir vís-
indamenn vantrúaðir á fullyrðing-
ar ýmissa kjamorkufræðinga um
það að maðurinn þoli ákveðinn
skammt af geislavirkum efnum, án
þess að verða meint af þeim. Bent
er og á það, að þegar geislavirk
efni bætist við önnur efni, sem
talin eru orsök krabbameins, þá
sé hættan tvöföld. (Endursagt).