Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.1957, Síða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
183
vér komum hingað fyrst, aðeins
veitingahús. En þótt nú sé komið
þar ofurlítið gistihús, þá er betra
fyrir konur að fá sér gistingu á
heimilum, eins og vér gerðum.
Þeir sögðu oss að vér skyldum
borða í spítalanum. Þetta fannst
oss allkynlegt. En þetta er alveg
einstakur spítali, þar eru haldnar
veizlur og dansleikar og þar er
ágætur matreiðslumaður, sem get-
ur tekið á móti mörgum gestum.
Þarna voru aðeins fjórir sjúkling-
ar um þetta leyti, en ef um smit-
andi sjúkdóma er að ræða, þá eru
sjúklingarnir fluttir í eyðihús inn-
an við víkina. Enskur maður, sem
eg hitti í spítalanum, sagði mér
að hann hefði skömm á borgum
yfirleitt, en hvað sér líka betur við
Reykjavík en nokkra aðra borg,
líklega vegna þess að hún var eins
lítil og nokkur borg getur verið.
Hér er skemmtilegt en takmarkað
samkvæmislíf, látlaust á yfirborði,
en þó með menningarbrag og
ströngum siðum. —
Það er ekkert að sjá í Reykja-
vík, og oss þótti í aðra röndina
vænt um að þurfa ekki að þeytast
þar fram og aftur eins og í öðrum
borgum. Þar er að vísu lítill vísir
að fornminjasafni, og var þá geymt
uppi á kirkjulofti, en Danir hafa
fyrir löngu látið greipar sópa um
alla merkustu fomgripi. Það er
heldur varla til gamalt handrit í
landinu, allt hefir verið flutt á
brott.
Hin eina listgrein, sem þróast
þarna er málmsmíði. Frá upphafi
hafa íslendingar verið ágætir
smiðir á járn og silfur. Gömlu
fyrirmyndirnar eru mjög góðar, og
menn eru vandvirkir. Margar kon-
ur eru snillingar í útsaumi og bald-
íringum á þjóðbúninginn. Margir
karlmenn eru oddhagir og á löng-
um vetrarkvöldum skera þeir út
aska, kistla og kistur með sama
skrauti og er á fornum rúnastein-
um og krossum.-----------
Reykjavík er í sannleika sagt
miður íslenzk en nokkur annar
staður á landinu. Þar gætir áhrifa
Dana mjög og þar er meiri stéttar-
skipting. Þar eru eins og í öðrum
borgum, skuggalegir menn niður
við höfn og svipast eftir „selum í
landi“. Stundum hafa ferðamenn
dæmt aðra íslendinga eftir þeim,
en það væri ósköp líkt eins og vér
værum dæmd eftir ræflunum sem
eru að flækjast við hafnirnar 1
Oban og Brooieclaw. Það er sagt að
mönnum hætti við að verða að úlf-
um í borgunum, og það er sérstök
tegund manna sem eltir ferðamenn
eins og illfiskur eltir síld. Þeir eru
í Sviss, þeir eru í Hálöndunum hjá
oss, og þeir eru ekki óþekktir í
hafnarborgum Noregs, þótt þeir sé
þar ekki inni í landi. Reykjavík
er ekki borg, og eg held að hún
hafi ekki eignast neinn útfarinn
úlf enn. En þar er mér úlfs von er
á eyru sér, og það er farið að bera
á því, svo vera má að svo fari, að
ferðamenn verði taldir bráð, í stað
þess að vera góðir gestir. Eitthvað
í þá áttina er óumflýjanlegt, en eg
treysti því að eðlisfar og gott upp-
eldi muni halda íslendingum ó-
spilltum yfirleitt, gestrisnum og
heiðarlegum.
FRÚ ALF.C HARLEY TWEEDIE
ferðaðist hér 1890. Þá er Reykja-
vík orðin stór bær með 4000
íbúa, en ekki er hún hrifin af
byggingunum í baenum.
Reykjavík er höfuðborg íslands.
Þar eru 4000 íbúar og borgin stend-
ur á fallegum stað og þar er ágæt
höfn. Við höfðum kastað akkerum
hér um nótt en er við komum á
fætur um morguninn sýndist okk-
ur bærinn mjög tilkomumikill í
samanburði við hina smærri staði.
(Hún hafði ferðast um Norður-
landj. Aðalbyggingaxnar exu —
og engin þeirra falleg — dóm-
kirkjan, Alþingishúsið og spítalinn.
Svo er líka eitt hús enn, tugthúsið,
en þar er sjaldan nokkur maður.
Á grasvelli fyrir framan dóm-
kirkjuna er líkneskja Alberts
Thorvaldsens, sem var af íslenzku
bergi brotinn. í Reykjavík #r líka
forngripasafn, sem geymt er í Al-
þingishúsinu, þótt undarlegt megi
virðast, og þar er gott almennings
bókasafn, geymt á dómkirkjuloft-
inu og í því um 45 þús. bindi. Þar
sáum við fyrstu biblíuna, sem
prentuð var á íslandi, á Hólum, ,
1584.
Tvö veitingahús eru í borginni,
þar er klúbbur, pósthús og versl-
anir, lyfsali, ljósmyndasmiður og
tveir eða þrír silfursmiðir. Helzti
leiðsögumaður útlendinga er Þor-
grímur Gudmundsen. Þarna eru
engin farartæki á hjólum og
kyrrðin á götunum minnti helzt á
Feneyar.
Við náðum í snoturt blað, sem
gefið er út í borginni, en því miður
gat ekkert okkar lesið það. Það
var prentað eftir að „Camoens"
kom og í því voru einu fréttirnar,
sem íslendingar höfðu fengið um
hálfsmánaðar skeið. ísland hefir
ekki símasamband við umheiminn
og þekkir ekkert til þeirrar dá-
samlegu uppgötvunar, sem nú ber
fréttir með eldingarhraða um all-
an heim.------
Hún fór til Þingvalla og Geysis
og þegar til Reykjavíkur er komið
aftur segir hún:
Við byrjuðum á því að leita að
þvottinum, sem við höfðum skilið
eftir, og við hittum þvottakonuna
í litlu húsi utan við bæinn. Hún
tók okkur brosandi og setti upp
3 shillinga, en það hefði áreiðan-
lega kostað 30 shillinga í Englandi.
Þegar við komum um borð, sáum
við að þvotturinn hafði verið ágæt-
lega þveginn og svo vel frá honum
gengið sem hæfði bezta þvottahúsi.