Lesbók Morgunblaðsins - 17.08.1957, Side 6
410
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Notie Dame
ELDINGAR YFIR PARÍS
Eftir Jóhannes Helga
LA SLAVIA stendur á sóltjöldum veit-
ingahúsanna og undir þeim glasa-
glaumur og ys frá fólki, sem drekkur
bjór og horfir letilega á götulifið; lipr-
ir þjónar á þönum, sumir með gylta
borða eins og aðmírálar og borðinn er
hættumerki: dýrir staðir — og þá þarf
landinn að forðast.
Sól yfir borginni, 35 stiga hitabylgja
lónar um hana, vasaklútar tíðum á
lofti og þungur dynur frá hröðum
akstri á haglega samsettu hnullunga-
grjóti breiðgötunnar.
Hér mætir okkur hottentotti. síðan
þokkagyðja indversk, búin á vísu síns
lands og þarna slangrar illa haldið
Arabagrey, þá Malaji — og fjörlegt
par fylgir fast á eftir, hún hvít sem
xnjöll, hann svartur sem kol. Þau hald-
ast í hendur fyrir aftan bak eins og
eiður er elskenda hér. Svo kyssast þau
allt í einu á göngunni, heit og móð,
og svo glaður er negrinn yfir þessu
óllu, stúlkunni hvítu og tilverunni, að
hann ræður ekki almennilega við lapp-
írnar á sér, sem sagt mjög svo fjöl-
íkrúðugt götulíf.
Frönsk börn eru mikið augnagaman
cg nú mætir okkur skóladrengur,
virðulegur í fasi, franskur þokki, létt-
leiki og styrkur, í hverri hreyfingu —
og er ekki annað að sjá en að hann
haldi á töskunni á visindalegan hátt.
Svo brosir hann vegna myndatökunn-
ar, það er eins og kveikt sé á lamba,
stutt prúðmannleg uppljómun — og
hann er að baki.
Hér förum við svo niður, sláumst
í hóp með hraðstígu fólki á leið niður
gangana til neðanjarðarlestanna — og
þarna kemur okkar upplýst og hvæs-
andi út úr myrkum göngunum. Þær
fáu sekúndur sem lestin stendur við
bregður lestarstjórinn á glens við stúlk-
una með miðagatarann, og það eru
fyrstu kynni okkar af anda hversdags-
lífsins franska, húmor frá morgni til
kvölds og áreynslulaus kurteisi og
góðvild. Svo þjóta stöðvarnar hjá: Le
Peletier, Opéra, Piramides og við
styttum okkur stund með því að lesa
aðvaranir írá virðulegri lækna-
akademíu þess eínis, að vin sé óhollt