Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1957, Blaðsíða 1
SnœbjÖrn Jónsson:
Aldarafmœli tveggja skálda
EINN er sá rithöfundur á alþjóð-
legum vettvangi að segja má að
um hann og verk hans hafi rignt
ritgerðum og bókum á þessu ári.
Sá maður er Joseph Conrad (d.
1924), pólskur að uppruna og hét
fullu nafni Theodor Josef Konrad
Korzeniowski, en tók sér bólfestu
á Englandi og ritaði öll sín rit á
enska tungu. Af þessum nýju bók-
um hefi eg enga séð, en mestu lofi
ljúka ritdómarar á eina þeirra:
„The Sea-Dreamer“, eftir Gerard
Jean-Aubry (Allen & Unwin 25s),
enda hafði sá höfundur aðgang að
miklu fleiri óprentuðum heimild-
um en nokkur annar. Heildarút-
gáfu af ritum Conrads, 21 bindi,
hafa J.M. Dent & Sons sent á mark-
aðinn, en um allt þetta mundu bók-
salar gefa fyllri upplýsingar en eg
hefi hér gert.
Ástæðan til þess að eg nefndi
Conrad að þessu sinni er sú, að
núna á þriðjudaginn á hann aldar-
afmæli, f. 3. des. 1857, og þá má
gera ráð fyrir að greinir um hann
birtist í flestum meiriháttar blöð-
um víðsvegar um heim, og um
þessar mundir þarf ekki að efa að
Úndína skáldkona
(Helga Baldvins-
dóttir).
rit hans muni seljast í tugum þús-
unda. Mér þótti hentugt að velja
hann til samanburðar við tvö ís-
lenzk skáld, er einnig fæddust