Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1959, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1959, Page 6
478 LESBÓK mobgunblaðsins lítrum af bensíni á hverjum 100 km. sem ekið er. En þeir eyða nú samt 15 lítrum til jafnaðar á þeirri vegarlengd. Menn vita ósköp vel hvernig á þessu stendur. Þegar bílstjórarnir eru ekki á ferð með embættismenn, þá taka þeir akst- ursmælirinn úr sambandi og aka svo fram og aftur með farþega sem borga. Þannig drýgja bílstjórarnir tekjur sínar. Pólverjar eru leiknir í slíkum brögðum. En samt sem áður dast þeir þó mjög að heiðarleik vest- rænna þjóða í viðskiptum og óllu því sem vestrænt er. Ungir menn og ungar konur reyna að klæðast eftir vestrænni tízku. Þar er þó ekki hægt um vik, því að í stjórn- arbúðunum eru auðvitað ekki seldar vestrænar vörur. En þá fara menn yfir Vislu til útborgarinnar Praga. Þar fást vörurnar á svört- um markaði, og þó seldar opinber- lega án þess að yfirvöldin skipti sér af því. Þar fæst amerísk sápa, franskur klæðnaður og ensk rak- vélablöð. Pólverjar lesa mikið. Fyrst eftir stríðið kom þangað flóð af ódýr- um bókum, og vegna þess að ann- að var varla fáanlegt, keyptu menn bækur og lásu. Og sá siður hefir haldizt. Mest lesnu höfundar þar eru Graham Greene, Sartre, Arnold Zweig, Francoise Sagan, Shakes- peare, Dickens, Gogol og Balzac. Skáld sín dá Pólverjar mjög og af Ijóðabókum þeirra Antoni Slon- inski og Wladylaw Broninski selj- ast 50.000 eintök. Endurbygging Varsjár hefir nú staðið í 13 ár, en miðar lítt áfram og enn er þar mikill húsnæðisskort- ur. Eitt af leikritum skáldsins Marek Hlasko er mjög vinsælt. Það fjallar um unga elskendur, sem aldrei geta verið saman, vegna þecs að hvorugt þeirra hefir herbergi út af fyrir sig. Og svo rennur upp ör- lagastundin þegar stúlkan hittir Russar hafa reynt að það er dýrt að trufla útvarpssendingar ÞAÐ var þegar eftir seinni heims- styrjöldina, að Bretar og Banda- ríkjamenn hófu sérstakt útvarp til Rússlands og leppríkja þess, í því skyni að láta þangað berast sann- ar fregnir af því, sem er að gerast á Vesturlöndum. Þetta þoldi rúss- neska stjórnin ekki. Rússneska þjóðin mátti ekki fá að heyra nein- ar aðrar fréttir en þær, sem henni voru skammtaðar. Og hér þurfti bráðra aðgerða. Rússneska stjórnin greip til þess ráðs, að reyna að trufla allar útvarpssendingar frá „Rödd Bandaríkjanna“ („Voice of America) og brezku útvarðsstöð- inni (British Broadcasting). En þetta var enginn hægðarleikur. Bandaríkjamenn fjölguðu senai- stöðvum sínum þangað til þær voru orðnar 85, og sendu út á 16 bylgjulengdum. Rússar urðu að reisa margar stöðvar til þess að þagga niður í hverri þeirra, og nú er svo komið, að þeir reka 2500 truflunarstöðvar víðs vegar um Rússland og leppríkin. Pólska stjórnin byrjaði einnig á því að trufla útvarpssendingar, en hún gafst upp á því fyrir nokkrum árum, vegna þess hvað þetta var dýrt. Á móti hverjum dollar, sem Rödd Bandaríkjanna lagði fram til þeirra stöðva, er útvörpuðu á pólsku, varð pólska stjórnin af með 1000 dollara í rekstrarkostnað truflstöðvanna. Menn vita ekki nákvæmlega hvað truflstöðvarnar eru dýrar í rekstri hjá Rússum, en gizkað er á að kostnaðurinn verði aldrei undir 100 milljónum dollara á ári. annan pilt, sem hefir sitt eigið her- bergi. Einn daginn fór pólskur stúdent með mér til að sýna mér „Menn- ingar- og vísindahöll Varsjár“. Það er stærsta, ljótasta og dýrasta bygging sem til er milli Moskvu og járntjaldsins. Þetta er 34 hæða bákn, sem Rússar gáfu Pólverjum. Það gnæfir yfir borgina og sést — eða öllu heldur, menn komast ekki hjá að sjá það, eins og Pólverjar mundu vilja orða það — hvar sem maður er staddur í borginni. Það minnir Pólverja stöðugt á gefand- ann — og til þess mun hafa venð ætlazt. Þetta ferlíki er um 750 fet á hæð og turnspíra upp af því. Pólskur stúdent sagði mér, að hann hefði skömm á byggingunni, en þaðan væri gott útsýni yfir borgina. Við keyptum því að- göngumiða og fórum með lyftu upp á efsta pall. Þar var hvasst, napur vindur næddi frá Eystrasalti og sólin var föl á grámóðuþöktum himni. Og hér blasti við eymd borgarinnar, stórir ruslhaugar milli útkjálkakofanna, þar sem öreigarnir eiga heima. Hér var ekki að sjá hinn ljósgráa lit nýbygginga, heldur hinn ömurlega gráa lit auðnar og örbirgðar. Stúdentinn hafði oft horft á þetta og annað verra áður, svo að það hafði eng- in áhrif á hann. En það var eins og hrifningarglampi í hinum döklcu augum hans, er hann sneri sér að mér og sagði: „Finnst þér borgin ekki fögur?“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.