Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1959, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1959, Qupperneq 11
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 483 Munnl Gullborgarhellis. um er svo greinilegt og stásslegt. Svo er það Vegghellir. í honum er veggur, sennilega gerður af mönn- um til varnar, og enn annar hellir, sem í eru skeljar og bein, svo að þar hefur líklega verið mannabú- staður, og þeir eru fleiri hellarnir og trúlega ekki allir fundnir enn, eins og Aronshellir, sem menn gera sér vonir um að finna. Gullborgarhellir blasir við. Mikill munni í dálítilli gjá eða stórri gjótu. Við klöngrumst niður í gjána. Hellisgangan hefst; ekki rétt skemmtileg. Mjög stórgrýttur framhellirinn og svartasta svarta myrkur. Maður er hins vegar svo önnum kafinn við að halda jafn- væginu, að ekkert tóm gefst til þess að láta setjast að sér hroll eða óhugnað. Við höfum ágæt ljós, en einhvern veginn yfirbugar myrkr- ið þessi ljós, svo þau verða rétt að gagni við að fóta sig á steinum og eftir troðningi. Þau fjara út og hverfa í hellislofti og veggjum, Þar ræður myrkrið algerlega ríkj- um. Drengurinn fótar sig örugg- lega eins og kind í klettum. — Nú fer þetta að lagast, segir hann. Bráðum erum við hálfnaðir, og þá verður rennslið slétt, en þá verðið þið að ganga varlega, því að þar koma dropsteinarnir. — Hann bregður Ijósi á gljáandi steinhellur í gangveginum. Þetta eru steinbrot úr loftinu, og þau megið þið hirða. Við tökum steinflísar upp, hand- leikum þær og skoðum. Þetta eru dropsteinsafbrigði, undirlagið frauðkennt, en yfirborðið glerung- ur. Allt hellisloftið er klætt sep- um og öldum af þessari gerð. Þetta er skrautleg og íburðarmikil inn- rétting. Nú koma kertin. Þetta er hreint alveg ótrúlegt. Dropsteinarnir standa upp úr hellisgólfinu í ótal stærðum og kynlegum formum, sumir a. m. k. hálfur metri á hæð. Þeir er hnúðaðir, með brumum, örmum, öngum og blöðum. Flestir þó einna líkastir stærðar kaktusum. Þessa dropsteina myndi ég vilja kalla Gullborgar-steinblóm. Til viðbótar þessu er svo loftskrautið. Það eru þunnir, sívalir steinþræð- ir, sem sumir hverjir ná úr lofti eða vegg og nema við steinblóm- in úti við hellisveggina, en þræð- irnir eru spunnir niður af syllum eða úr miðjum veggjum. Fyiir hellisbotninum skipa steinblómin sér í heilt beð. Það er undurfurðu- leg sýn að sjá ljósgeislana frá lukt- unum okkar brotna í þessum kyn- lega skrúðgarði undirheimanna. Það eru vissulega viturleg fvr- irmæli að vernda þessi furðuverk náttúrunnar með lögum, og enn þá betra er þó að hafa svo dyggan leið- sögumann til þess að gæta gersem- anna. Hilmar hefur gætur á þeim, sem freistarinn er á tali við, og ger- ir mönnum úrlausn með smá brota- gulli, sem hrunið hefur niður. Gangan til baka er greið og ein- hvern veginn hefur kunningsskap- ur leiðsögumanns og ferðafólks orð- ið nánari, þegar allir eru orðnir holdvotir og hafa paufazt saman heilan kílómetra undir jarðskorp- unni. Á stífri göngu og úr svartri þoku rekur hver spurningin aðra. Hvaðan ertu? Úr Keflavík, en hefi verið hér fjögur síðustu árin, segir Hilmar. Kannt við sveitamennsk- una? Gaman á sumrin, en stund- um leiðinlegt á veturna. — Her- urðu nokkurn tíma séð erni hérna? spyr sá, sem mikinn áhuga hefur fyrir þeim sjaldséða tignarfugli. Já, ég sá tvo síðast í vor. Þe;r komu fljúgandi hingað upp eftir heim undir bæinn. Verpa þeir hérna? Nei, en það var einu stnni gamall örn hérna, sem var svo spakur, að hann var oft úti á engj- um í ekki meira en svo sem 10 m. fjarlægð frá fólkinu, þegar það var í heyjum. Ég hugsa, að þessir í vor hafi komið neðan úr Eldborg. — Fálkar, jú, það er talsvert af þeim hérna. Það á einn hreiður þarna uppi í hnúknum. Það verpir þar líka hrafn. Ég náði hrafnsunga í hitteðfyrra og tamdi hann, en svo missti ég hann í vetur. Hann sat alltaf á hendinni á mér eða hausn- um á mér. Svo var hann með bíla- dellu, settist á alla bíla og lét þá keyra sig, og þjófóttur eins og and- skotinn. Stal hring og hálsmeni af

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.