Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1959, Síða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1959, Síða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS bergsins leikið púpuna illa, þegar því var kippt upp. En þeir athug- uðu hana nákvæmlega og komust að raun um að maginn á henni var úttroðinn af mauralirfum. Þetta fannst þeim stórmerkilegt. Gátan var þó ekki leyst með þessu. Hvernig hafði púpan kom- izt í maurabúið? Og helt hún þar kyrru fyrir þangað til hún varð að fiðrildi? Nú tóku tveir aðrir náttúrufræð- ingar að sér að athuga þetta bet- ur. Annar þeirra var kapteinn Purefoy, en hinn L. W. New- man, sem frægur er fyrir stofnun fiðrildabús, sem nú er rekið af syni hans, L. Hugh Newman, sem einnig er kunnur náttúrufræðingur. Þeir þóttust þegar vita, að eitt- hvert samband væri milli Blá- fiðrilda og mauranna. Og til þess að komast að því hvernig því mundi farið, gerðu þeir maurabú í kassa, settu þangað mauradrottn- ingu, tvær tylftir af vinnumaurum. nokkuð af mauraeggjum og mold. í sama kassa settu þeir einnig blóð- bergsskúf og þrjú Bláfiðrildi. Maurarnir sættu sig fljótt við hinn nýa bústað, og voru þeir ald- ir á sykurvatni og hunangi. Fiðr- ildin urpu eggjum sínum á blóð- bergsblöðin og úr þeim komu svo lirfur, sem fæddust við blöðin. Og nú var þess beðið með mikilli eft- irvæntingu hvað verða vildi, er lirfurnar hefði haft hamskipti þrisvar sinnum. Eftir þrjár vikur hafði sú fyrsta hamskipti í þriðja sinn. Og þá fór henni eins og þeim, sem áður höfðu verið í búrum, að hún vildi ekki líta við blóðberginu, en skreið eirðarlaus um kassann. Það var þó ekki lengi, því að þá bar þarna að maur og hann fekk þegar mikinti áhuga fyrir lirfunni. Hann byrjaðí að strjúka hana, og var þá eins og lirfuna kitlaði og út úr henni kom einhver kvoða, eins og svita- dropar. En maurinn sleikti þessa dropa með áfergju. Á þessu gekk í rúma klukkustund, en þá fór lirf- an að brölta. Og það var eins og maurinn skildi hvað hún vildi. Hann tók í hnakkadrembið á henni og bar hana inn í maura- búið. Fáum dögum seinna var skyggnzt gætilega í maurabúið. Þar lá þá lirfan bústin og makráð, og naut gestrisnu húsráðenda. Þeir báru í hana egg sín og lirfur, í staðinn fyrir það að fá að sleikja kvoð- una, sem seitlaði út úr líkama lirfunnar. Allan veturinn helt lirfan kyrru fyrir í maurabúinu, og lá í dvala köldustu mánuðina. Um vorið vaknaði hún og fór að eta aftur. Eftir eitthvað hálfan mánuð breyttist hún svo í púpu. Og nokkru seinna var ljóm- andi fallegt Bláfiðrildi komið i kassann, hekk þar og þurkaði á sér vængina. Með þessu var leyst gátan um hin mismunandi lífsskeið Bláfiðr- ildisins. Framtíðarspár ÞESSAR spár um geimferðir eru komnar frá sérfræðinganefnd í geimflugi: Á þessu ári mun maður ferðast í gervihnetti umhverfis jörðina. Árið 1965 mun mönnum takast að lenda á tunglinu, og þremur ár- um seinna mun verða flogið til Marz og Venus. Áður en 10 ár eru liðin, verður farið að senda póst með rákettum þvert yfir Atlantshaf, frá New York til Parísar, og svar getur ver- ið komið aftur innan stundar. Eftir 10 ár verður komið á al- heims sjónvarp. Eftir 40 ár munu menn geta ferð- ast með hraða, sem nálgast mjög ljóshraðann. m Ætt Bjarna Eyólfssonar EINAR Bjarnason ættfræðingur hefir sent Lesbók eftirfarandi leið- réttingu: Síðast í greininni um áletrun Bjarna Eyólfssonar í Lesbókinni 18. þ. m. er ruglað saman tvennum Eyólfum Jónssonum. Eyólfur sá, sem Sigurður J. Ár- ness er talinn hafa ættfært son Jóns á Stafnesi Gíslasonar, er ekki Ey- ólfur lögréttumaður á Brunna- stöðum. Eyólfur, sonur Jóns Gíslasonar, býr 1703 á Hópi í Grindavík og hann var ekki lögréttumaður. Son- ur hans var Egill, forfaðir Bjarna Sæmundssonar. Eyólfur lögréttumaður á Brunna- stöðum gæti vel hafa verið faðir Bjarna, sem sjáanlega hefir verið í röð heldri bænda, en engar heim- ildir eru mér vitanlega til um það. Sólarorka ISRAEL á hvorki kolanámur né olíu- námur, og þar eru heldur engin vatns- föll. Vegna þessa skorts á orkulindum, kom mönnum til hugar hvort ekki mundi hægt að færa sér sólarorkuna í nyt. Var svo ísraelskum vísindamönn- um falið að gera tilraunir í því skyni. Byrjuðu þeir á því að koma upp hrað- frystistöð, rekna með sólarorku, og tókst það ágætlega. Og nú hafa þeir komið upp áburðarverksmiðju hjá Beersheba, og leggur sólin verksmiðj- unni til 80% af allri þeirri orku, er hún þarf. Nú fara fram miklar tilraunir þar í landi um að hagnýta sólarorkuna til rafmagnsframleiðslu, og jafnframt fara fram tilraunir um hvernig sólarorkan verði bezt nýtt. Hafa þær borið svo góðan árangur, að menn fullyrða nú að sólin verði í framtíðinni orkulind fyrir margar þjóðir í heitu löndunum, sem dregizt hafa aftur úr síðan iðn- væðingin kom til sögunnar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.