Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1960, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1960, Blaðsíða 4
184 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS þó nægilegt tilefni þess, að tveir þeirra voru hengdir á alþingi árið 1703. Það voru reikningsskil þjóð- félagsins við fátæktina á þeim ár- um. Við höldum áfram á hægri ferð. í nánd við Litlu-Vatnsleysu, stór- bú Þorvaldar í Síld og fisk, sjáum við tvo smyrla að leik. Þeir eru trúlega farnir að para sig. Það er fyrsti forboði hins ókomna vors, þegar fuglarnir hefja ástarleik sinn. Baldur segist einmitt þessa dagana hafa séð krummana leika kúnstir tilhugalífsins yfir sjávar- máli Skerjafjarðarins. Hann sagði, að það hefði verið óborganleg sjón að sjá ástarleik hrafnanna. Karl- fuglinn hafi rennt sér á hlið og kúvent sér á bakið með alls þonar tilfæringum, hringsólandi í kring- um kvenfuglinn, ýmist fyrir ofan eða neðan, sýnandi dömunni ótrú- legustu kúnstir og flugfimi sína. — Baldur hefur einhverja sérstaka respekt fyrir hrafninum, svo að ég spyr hann: „Hefurðu aldrei skotið hrafn?“ Hann kveður nei við spurningunni. „Þú, sem hefur svo gaman af skytteríi og setur á alls konar endur og fallegar rjúpur, hvers vegna drepurðu ekki þann bölvaða gripfugl?“ spyr ég. Baldur verður hugsi og segir svo: „Ég veit ekki. Kannske er það bara vegna þess, að ég var svo hrifinn af að lesa um Eirík 1 Vogósum, þegar ég var strákur, en hann hafði svoddan dálæti á hröfnum. Kannske er það eitthvað annað. Ég get bara ekki fengið mig til þess“. Áfram höldum við ferðinni. Þarna rísa Njarðvíkur og Keflavík sólblikandi við azúrbláan Faxafló- ann, rétt eins og sólborgir Miðjarð- arhafs. Annars er litróf hafsins ó- endanlegt. Það getur verið blátt, þegar horft er ofan á það, silfrað undan sólu, grátt út í hafsauga, svart séð af flatneskju og svo auð- vitað í öllum hugsanlegum græn- um og bláum litablöndum. — Það er líka sól í Vogunum — jafnvel þar. Við nálgumst Stapann. Ein rolluskjáta stendur ein og yfirgefin í forsælu efst í Stapabrúninni. Kannske er þetta Stapadraugurinn. Hann er sagður hafa komið upp þarna handan úr víkinni, Stapa- draugurinn. Við erum senn komnir á vega- mót. Grindavík — 16 kílómetrar — stendur á vegvísinum. Við ökum beint upp í sól. Jafnvel stórgrýtis- urð og rauð moldarflög lifna í skæru ljósvarpi febrúarsólarinnar. Seltjörn er á ísi. Illahraun er á báð- ar hendur, hraunborgir, gjallfjöll, skuggatröll. Ég gæti trúað, að í svörtu skammdegi gæti mönnum s.tafað stuggur af þessum hraun- tröllum. í slíku umhverfi sækja hrollkenndar sögur frá váveifleg- um atburðum á dimmuborgir hug- ans. Það stendur heldur ekki á einni slíkri. „Þarna er Fagradalsfjall11, segir Baldur. „Ég held það hafi verið þar, sem hann fórst í stríðinu, hann Andrews yfirmaður alls loft- flota Bandaríkjamanna á Norður- höfum. Eða var það í Sandfelli? Hann var að koma hingað til landsins í liðskönnun, ætlaði að lenda í Keflavík. Þeir heyrðu í vél- inni alveg inn yfir landið, en svo þagnaði hún allt í einu. Það var brugðið við og farið að leita. Þeir fundu flakið brennandi. Ég held á hæðunum hér fyrir ofan Fagra- dalsfjall. Þetta var sjálfur yfir- hershöfðinginn, sem fór svona“. Það er áreiðanlega ekki allt hugn- anlegt, sem skeð hefur á slóðum Illahrauns. — Á vinstri hönd eru vörður, sem vísa leiðina í hellinn í hrauninu. Hann er sagður allstór. í Þorbiarnarfelli er fé að kroppa snögga lyngmóana. Heldur sýnist það harður kostur. Það er líka kuldagjóstur í Skarðinu. Við rennum við í Grindavík. Hestur í höm við gömlu versl- unarhúsin Þetta er ósvikið sjávarþorp. Hér standa bátar við hlið bíla fyrir húsdyrum. Það er hvíldardagur og fáir á stjái. Helzt er það fólk á ferð í bakaríið, sunnudagsklæddir krakkar vafstrandi með mjólk og vínarbrauð og bakkelsi í stærðar- pokum. Leiðin liggur samt fram á bryggju. Þarna standa þau enn gömlu verslunar- og útgerðar- húsin, Eyrarbakkaverslunarhúsin, Dúshúsin og hús Einars í Garðhús- um. Einhver hefur logið því að mér, að skúrinn sá arna hafi verið vínhjallur, og svo fylgdi það sög- unni, að eigandinn, karlinn, hafi átt þar jafnan tunnu á stokkunum, og þegar bátarnir voru að koma að, þá hafi hann selt þeim hnall af brennivíni fyrir stærsta þorskinn í kastinu. Svo sagði hann á loka- daginn, karlinn: „Þetta er hlutur- inn minn“. — Það var brennivíns- hluturinn, staflinn, sem hann fékk fyrir staupin. Hann sagði: „Jahá“, maðurinn, sem sagði mér þetta og saug vænan tóbakshrygg af hand- arbakinu langt upp í nefið og bætti

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.