Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1960, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1960, Qupperneq 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 189 fornum brúðum, aðrir nútímabrúð- um og þeir þriðju brúðum frá ein- hverju sérstöku landi. Enn aðrir safna brúðum, sem gerðar eru úr óv,enjulegu efni, svo sem bývaxi, brauðmolum, berki, fuglsnefjum, postulíni, plasti o. s. frv. Enn aðrir safna brúðum sem eiga að tákna heilaga menn, söguhetjur eða per- sónur úr barnasögum. Safn mitt má kallast alþjóðlegt. í því eru nú 2500 brúður, sem bæði geta rakið ættir sínar langt aftur í aldir og eru um leið fulltrúar flestra landa. Eg lít á brúðurnar mínar sem lifandi verur. Oft er það, er eg hitti ókunnuga, að þeir minna mig þeg- ar á brúður í safni mínu. Hver brúða hefir sinn persónuleika, og stundum virðast mér þær gæddar mannlegu eðli. Eg minntist einu sinni á þetta við konu, sem á brúðusafn, en þá sagði hún: „Þegar svo er komið að þær hneigja sig og bjóða þér góða nótt, þá er kominn tími til þess fyrir þig að fara á Hljóðíæraleikarar og patríarki á dögum Tyrkjasoldáns legt safn af brúðum. Þar voru dansmeyar frá Síam, geisha-stúlk- ur frá Japan, indverskir furstar, kínverskir hlauparar, ungverskir sígaunar, Indíánar frá Perú, rúss- neskir aðalsmenn o. s. frv., o. s. frv. Við komum safninu fyrir í dag- stofu okkar, og þar hefir það verið síðan. Þegar eg fór að athuga brúðiirn- ar betur, komst eg að raun um að þær sýndu þjóðhætti og menningu, þótt í smáum stíl væri. Og þá greip mig löngun til þess að eignast safn þar sem væri brúður frá öllum löndum heims. Jörðin fer síminnkandi og með hinum greiðu samgöngum berast áhrif frá einni þjóð til annarrar, og það verður til þess að þurrka út einkenni ýmissa þjóða. í Austur- löndum hafa menn nú víða til dæmis tekið upp klæðnað vest- rænna þjóða. Sá dagur er ef til vill ekki langt undan, er þjóðbúningar sjást hvergi nema á brúðum og í fornminjasöfnum. Eg þóttist því viss um að slíkt safn, sem eg hafði hugsað mér, gæti orðið leiðbeining Frönsk bóndahjón fyrir bandaríska æsku til þess að skilja annarra þjóða háttu. Mismunandi söfn Sumir hafa tekið upp sérgreinir 1 söfnun brúða. Nokkrir safna

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.