Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1960, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1960, Page 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 191 Japanskur hermaður um 1200 sjúklingnum gengi, án þess að fá að skoða hann sjálfan. Japanskar brúður Sennilega er hvergi í heimi lögð jafnmikil rækt við að búa til brúð- ur og varðveita þær, eins og í Jap- an. Japanskar brúður eru listaverk og þær ganga í arf mann fram af , manni. Og þar í landi eru tveir brúðu-hátíðisdagar — hátíð telpna- brúðanna í marz, og hátíð drengja- brúðanna í maí. Á Hawaii-eyum er margt um Japana, og einu sinni er eg kom þar, var mér boðið á brúðuhátíð á japönsku heimili. Allar brúður heimasætunnar höfðu verið klædd- ar í viðeigandi búninga og raðað á hyllur, hverja upp af annarri. í efstu hyllunni voru brúður sem áttu að tákna keisarann og keisara- frúna. Neðar \joru ráðgjafar og hirðmenn, þar undir hljóðfæraleik- arar og neðst þjónustufólk. Þarna voru einnig húsgögn við brúðu- hæfi, forlátavel smíðuð. Þar var meðal annars bókaskápur með 10 ljóðabókum og voru hinar litlu blaðsíður þéttskrifaðar ljóðum með örsmárri skrift. Venjulegt er að húsráðendur haldi veizlu í sam- bandi við þessa brúðuhátíð, og er þá boðið vinum og vandamönnum, líkt og tíðkast á jólunum á Vestur- löndum. Eg á nú í safni mínu slíkar brúð- ur, allar klæddar í viðhafnarföt, sem eru að öllu leyti eins og þau föt, sem keisarahjónin og hirð þeirra gekk í. Einu sinni komu út- lendir stúdentar í heimsókn til okkar að skoða safnið. Þegar ung japönsk stúlka sá þessar brúður, notaði hún tækifærið til þess að lýsa brúðuhátíðunum fyrir hinum. Þá gall við indversk stúlka: „Heima hjá okkur eru líka slíkar brúðuhátíðir haldnar". Ein ung stúlka hrópaði upp af fögnuði, er hún gekk um safnið: „Þessi er frá Finnlandi. Hún er í þjóðbúningi okkar!“ Uppáhaldsbrúða konu minnar er frönsk tízkubrúða, sem flutt var til Bandaríkjanna 1879. Það var áður en tízkublöð komu, og þá voru slík- ar brúður sendar um allt til þess að sýna tízkuna. Svo mikils þótti um þær vert, að þær voru toll- frjálsar. í Þrælastríðinu voru þær því notaðar til þess að fela í þeim bannvarning og litlar stúlkur látn- ar bera þær í fanginu yfir hernað- arlínuna. Nokkuð af þeirri bómull, sem nú er ræktuð í Mississippi á kyn sitt að rekja til útsæðis, sem smyglað var í brúðumögum á þeim árum. Töfrabrúður Brúður urðu ekki algengar sem leikföng fyr en eftir 1850. Einka- leyfi var fengið 1824 fyrir brúður, sem gátu talað. Brúður, sem gátu opnað augu og lokað þeim, komu 1826. Nú eru til brúður, sem geta talað gengið, vætt sig, sungið. og jafnvel kysst þegar þær eru kreist- ar. En slíkar töfrabrúður voru líka til fyr á öldum. Mér hefur nýlega áskotnazt frönsk brúða frá 18. öld. Hún getur snúið höfðinu, deplað augunum, þanið út brjóstið og leikið á hörpu. Slíkar brúður voru metfé við hirð Lúðvíks 18., og þeir sem smíðuðu þær urðu oft vellríkir. Ein brúðan mín er sýnisbrúða úr vefnaðarvöruverslun í New York. Eg sá hana þar einu sinni í glugga. Hún var ímynd lítillar stúlku, svo sem 8 ára; hún teygði upp hend- urnar og munnurinn var galopinn af undrun. Slík viðbrögð hafði eg oft séð þegar litlar stúlkur komu að sjá safnið mitt. Eg bað því skrif- ara minn að kaupa hana, og hon- um tókst það. Skömmu seinna sá frú Eddie Eagan (kona fyrverandi hnefaleikameistara) hana hjá mér. Hún sagði þá: „Eg þekki stúlkuna, sem þessi mynd er gerð af“. Seinna kom hún með stúlkuna til mín. Hún er nú 14 ára og heitir Chris Norwood. Síðan kemur hún vana- lega til mín á hverjum laugardegi og hjálpar mér til þess að þurka rykið af brúðunum og raða þeim aftur. (Samuel F. Pryor).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.