Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.1961, Síða 1
4. tbl.
l'óU
Sunnudagur 5. febrúar 1961 XXXVI. árg.
ÚR 5ÖGU REYKJAVIKUR:
FYRSTI KIRKJUCARÐURINN
i.
ÞEGAR um aldamótin seinustu
var Reykjavík orðin stór borg í
hugum flestra landsmanna. Þar
eiga þá heima 6680 menn, og
hefir tala bæarbúa rúmlega þre-
faldast á 30 árum. í Reykjavík
eiga heima allir helztu höfðingjar
landsins og menntamenn. Þar er
latínuskólinn og þar er alþing háð.
Þar eru regluleg borgarstræti og
stærstu og skrautlegustu hús
landsins. Þar eru götuljós, sem
vísa mönnum veg á myrkum
vetrarkvöldum, og þar eru skraut-
legustu sölubúðir landsins með
mislitt ljósletur í gluggum. Þar
er glaumur og gleði, og Gröndal
lýsti höfuðborginni svo:
Reykjavík í veraldarkrík
voldug ertu og fögur,
hvergi eru ríki heims þér lík,
herma það allar sögur.
Eftir einn vetur í skóla koma
busarnir heim sem forframaðir
menn. Reykjavík hefir sett á þá JirkjTgarðin-
einhvern mikilmennsku brag. — um
Heimaalningarnir öfunda þá og Aðalstræti.
j
V