Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.1961, Qupperneq 14
66
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Paparnir á Bessastöðum
F R Á góðum vini, listamanni í
Reykjavík, fengum við hjónin
jólakort, eitt af mörgum. Það er
augnayndi, mynd af glerglugga í
myndum, lituðum fagurlega. Und-
ir myndinni stendur:
Frá Bessastaðakirkju: Paparnir,
fyrstu kristnir menn á íslandi.
Skip Papanna nálgast mjög land-
ið. Þrír menn „standa upp í
stafni“ og horfa til strandar og
fjalla, ber einn þeirra hæst og
heldur hann krossi fyrir sér. Er
helgibragur mikill yfir mönnun-
um, enda stórt í efni, nýtt land,
mikilfenglegt, rétt fyrir stafni, —
þar skal lenda og lifa.
Saga Papanna á landi voru, er
oss harla lítið kunn, því er nú
miður. Eg er einn af þeim sem
trúa því fastlega, að hún hafi ver-
ið meiri og merkari heldur en
sögur herma. Aldrei fór eg svo
með útlendum gestum um Suður-
landsundirlendið að eg kæmi ekki
við á Ægisíðu, ef þess var nokkur
kostur, og sýndi þeim hellana þar.
Þá tel eg eitt af því allra merk-
asta sem fróðleiksfúsum gestum
verður sýnt á íslandi. Mætti gera
meira að því en gert er, að geta
þessara fornmenja þegar útlend-
ingar eru fræddir um land vort
og þjóð. En meðal annarra orða,
eru hellarnir á Ægisíðu friðaðir
sem fornmenjar? Eg spyr ekki
sökum þess, að ekki sé vel fyrir
séð meðan þeir húsbændur ráða
húsum og búi á Ægisíðu, sem nú
gera garðinn frægan, en allur er
varinn góður. Og því ekki að
mæla hellana betur, ljósmynda þá
og kvikmynda, þótt raunar séu til,
fáum handbærar, mælingar
norska verkfræðingsins Setermo-
en, sem mældi hellana fyrir Einar
Benediktsson, svo sem lesa má og
sjá í bók hans Thules Beboere. —
En nú er eg kominn út fyrir efn-
ið. —
Út við borðstokkinn, að baki
Pöpunum, má sjá tvær geitur á
myndinni. Þær horfa líka vonar-
augum til strandar, búnar að fá
nóg af sjóferðinni. — Og það eru
þessar geitur sem mér verður
starsýnast á af öllu á hinni fögru
og „forvitnilegu“ mynd. Harla
gaman og girnilegt til fróðleiks,
að listamaður sá er gerði mynd-
ina lætur hina írsku munka, Pap-
ana, sem leita einverunnar á
ströndum Sóleyjar, hafa með sér
yfir hafið geitur til búsnytja. En
auðvitað er ekkert sjálfsagðara —
nema eitt — að þeir hafi haft með
sér sauðfé. Sauðkindin gat engu
síður en geitin verið hinn með-
færilegi og tryggi förunautur
þessara guðsmanna. Þannig verð-
ur jólakortið með myndinni af
kirkjuglugganum í Bessastaða-
kirkju til þess að rifja upp fyrir
mér þá kenningu, sem eg hefi
tekið fóstri við, að Paparnir hafi
flutt með sér út til lands vors
sauðfé og búið við það. Og sem
sjálfsagða afleiðing þess, að hér
hafi verið villifé þegar hinir
fyrstu norrænu menn settust að á
landinu. — Og villiféð varð mörg-
um landnámsmanni bætir í búi,
svo að um munaði. Getur ekki ver-
ið, að þannig hafi Paparnir grund-
vallað að nokkru búfjárrækt þá —
sauðfjárræktina — sem um allar
aldir hefir verið burðarásinn í ís-
lenzkum búskap?
Þökk sé þeim sem orti geiturn-
ar í gluggann í Bessastaðakirkju,
þótt fremur hefði eg kosið 2—3
sauðkindur. — En aftur að geit-
unum og Papabyggðinni miklu á
Ægisíðu. Eitt merkasta geita-ör-
nefni sem til er á landinu er
Geitasandur, ekki allfjarri Ægi-
síðu. Vel getur verið að þar hafi
verið villtur eða hálfvilltur geit-
fénaður þegar Ketill Hængr sett-
ist að á Hofi. Gott hefir landið
verið geitpeningi, eftir því sem
verið gat á láglendi, kjarrskóga-
belti með ánum, skjólskógur, og
sennilega kjarrhólmar hér og þar
um sandinn, en hann þurr vel og
hlýr. Að baki söndunum tók við
hraunaland Heklu, eigi lakara
slíkum fénaði, til útigöngu, allt
upp og austur 1 Tröllaskóga.
En um annað hefir glugga-
skáldinu miður farist. Á myndinni
má sjá Papana koma að landi á
langskipi miklu, norrænu að gerð
og lagi, með háreistum stafni. Það
hygg eg se sögulegur misskiln-
ingur, engar líkur til að farkostur
þeirra væri slíkur. Sanni nær að
þeir hafi siglt og róið hafið á húð-
keipum miklum, merkilegum skip-
um að sönnu og haglega gerðum,
en sem að útliti hljóta að hafa
verið gjörólík skipum Norðmanna,
sem þá gerðust forustuþjóð um
skipasmíðar, á Norðurlöndum, og
þótt víðar væri leitað. — En hvað
um það, glugginn gleður, Guðs-
mennirnir þrír, með geiturnar sín-
ar tvær, — „sem fyrstir gistu
landið í stjörnusænum“, — eins
og Davíð segir fagurlega í Dögun-
ar-ljóðum sínum.
Jaðri, 20. janúar 1961
Árni G. Eylands.
Einlægur vinur segir þér sannleik-
ann upp í eyrun í stað þess að segja
hann á bak.
i
t