Lesbók Morgunblaðsins - 18.06.1961, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
343
svo sem fullnægjandi uppeldi á
trjáplöntum og friðun og útvegun
á skógræktarlöndum.
Þegar breyting var gerð á
skógræktarlögunum árið 1940,
var Skógræktarfélag íslands gert
að sambandsfélagi. Við þetta
víkkaði starfsgrundvöllur félags-
ins auk þess, sem í þessu fólst
mikil viðurkenning á starfi þess.
Þetta ásamt vaxandi velmegun í
landinu varð til þess, að upp frá
þessu fór hagur félagsins að
vænkast. Æ fleiri skógræktarfé-
lög voru stofnuð út á landsbyggð-
inni og öll þeirra gerðust aðilar
að sambandsfélaginu.
Til marks um vöxt Skógrækt-
arfélags fslands má geta þess, að
árið 1940 eru héraðsfélögin 9 að
tölu með um 600 félaga, áratug
seinna eru þau orðin 25 með um
6100 félaga og í dag eru þau 30
að tölu með um 9000 félaga. Mun
Skógræktarfélag íslands vera því
eitt þeirra samtaka, sem fjöl-
mennust eru í landinu.
Oftast nær starfssvæði hvers
héraðsfélags yfir eina sýslu eða
lögsagnarumdæmi, en sums staðar
eru þó tvö félög starfandi innan
sömu sýslu Til þess að auðvelda
skógræktarstarfið á hverju félags-
svæði var fljótlega komið upp fé-
lagsdeildum innan héraðsfélag-
anna, og nær starfssvæði hverrar
ideildar oftast yfir eitt sveitarfélag.
Hefir þetta fyrirkomulag gefist
vel, og er það stefna sambands-
félagsins, að þessi skipan kom-
ist á í öllum héruðum landsins.
Nú skal vikið að framkvæmd-
um skógræktarfélaganna, en hér
verður aðeins drepið á þau atriði
í störfum þeirra, sem megin-máli
skipta.
Eins og að líkum lætur hefir
gróðursetning trjáplantna verið
það verkefni, sem félögin hafa
unnið mest að, en það hefur ver-
ið í stórum dráttum þetta: Frá
því að störf félaganna hófust og
fram til ársins 1940, gróðursettu
þau um 90 þúsundir trjáplantna.
Frá árinu 1941 til ársins 1950 um
500 þúsundir plantna og á síð-
ustu tíu árum um 4,6 milljónir
plantna. Frá upphafi munu því
alls hafa verið gróðursettar á veg-
um skógræktarfélaga um 5,2millj.
trjáplantna.
Sé reiknað með því, að 5 þús-
und trjáplöntur séu gróðursettar
að jafnaði á hvern hektara lands
samsvarar þessi plöntufjöldi því,
að nú sé lokið við að gróðursetja
í um 1 þúsund hektara eða rúm-
/