Lesbók Morgunblaðsins - 01.10.1961, Blaðsíða 2
422
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Kirkjan í Þykkvabæ (Hábæarkirkja).
hafi verið margir og staðið þykkt.
Önnur óráðin gáta er það,
hvernig á því hafi staðið, að þessi
þétta byggð var sett þarna, því
að á þeim dögum var Safamýri
ekki til og landkostir ekki nema
í meðallagi. Verður það naumast
skýrt á annan hátt en þann, að
útræði hafi verið hjá Rangárósi,
en svo kallaðist ósinn þá, og er
þess á nokkrum stöðum getið í
fomum heimildum, að skip kæmi
í Rangárós. Þá hefir þar verið
höfn í sjálfum ósnum. Þess vegna
getur verið að útræði hafi hafizt
þar mjög snemma og fyrst í stað
risið þar upp margar sjóbúðir.
Eitt af býlunum í Þykkvabæ heit-
ir enn Búð, og gæti það nafnver-
ið komið frá þessum tíma.
Brátt hafa búðirnar orðið að
föstum bústöðum, og þeir, sem
þar settust að, hafa fengið skika
úr jörðinni. Búðimar hafa breyzt
í grasbýli. Jörðin er öll að fornu
mati 60 hundruð, en þegar Jarða-
bókin var gerð 1709, þá hefir jörð-
in verið brytjuð öll niður í smá-
býli 2Vz—5 hundmð að mati.
Þessi smábýli eru þá í eigu hinna
og annara manna um land allt.
Seinna var brytjað smærra, allt
niður í 130 alnir, og gengu þessir
bútar kaupum og sölum. Nú eiga
bændurnir í Þykkvabæ öll býlin
sjálfir.
Þykkvibær kemur hvergi við
sögur, en fróðlegt mundi núþykja
ef vér ættum sögu þessa eina
sveitarþorps á íslandi frá upphafi
og vissum hvemig á því stóð að
byggðin helzt þarna þrátt fyrir
það að útræði í Rangárósi tókst
af. Brynjólfur frá Minna Núpi
getur þess, að sandur úr Kötlu-
hlaupi hafi borizt þangað vestur
og stíflað ósinn. Hefir það þá
líklega gerzt á 17. öld. Hólsá
hljóp þá vestur alla sanda fyrir
ofan sjávarkambinn óg komst
alla leið vestur í Þjórsá. Og þeg-
ar Jarðabókin var gerð, virðist
svo sem Þykkbæingum hafi ver-
ið allar bjargir bannað«ar af sjó.
Samt helzt byggðin við. Sjósókn
hafa þeir að vísu stundað áfram,
en þá í öðrum útróðrastöðum, svo
sem austur í Landeyum og úti á
Loftsstöðum. En það sem þá hefir
aðallega bjargað var að hver
hjálpaði öðrum. Ef einhver þurfti
að reisa sér bæ, þá komu allir
hinir bændurnir og hjálpuðu hon-
um, kúnna gættu þeir til skiptis,
heyskap hafa þeir að nokkru
stundað í félagi og léð hvor öðr-
um hesta, reipi og reiðinga, og
veiðiskap hafa þeir stundað í fé-
lagi í Bæarvatni og Fiskivatni, en
...... II llllll' .......... .........
Prestsetrið Kirkjuhvoii
/
i i/