Lesbók Morgunblaðsins - 01.10.1961, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 01.10.1961, Blaðsíða 6
426 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Kartöfluuppskera með einni af hinum stórvirku vélum Og nú er ólíkt um að litast í Þykkvabæ og var á öldinni sem leið og allt fram til 1923. Þar sem áður voru beljandi vötn og líkt og hafsjór, eru nú sléttar grundir. Sandurinn, sem vötnin báru fram, er að gróa upp og mýrarnar að þorna. Þar hefir mannshöndin hjálpað hinni sískapandi náttúru. Fram að seinustu aldamótum voru eingöngu torfbæir í Þykkva- bæ. En svo er farið að reisa timburhús og steinhús, og seinasti torfbærinn hvarf Alþingishátíðar- árið 1930. Of þá fer að hefjast alhliða viðreisn. Fyr gat það ekki orðið, því að fram að þeim tíma höfðu bændur verið að greiða þann kostnað, er kom í þeirra hlut vegna Djúpóss-stíflunnar. Nú var kominn tími til þess að hefja nýar framkvæmdir, og þá voru líka hendur látnar standa fram úr ermum. Þykkbæingar byrjuðu á því að kaupa þann hluta Safamýrar, sem þeir áttu ekki, og einnig mikið beitiland. Safamýri er nú orðin breytt frá því sem áður var. Þegar áin hætti að flæða yfir hana, breyttist allur gróður þar. Hin risavaxna stör hvarf að mestu. En síðan hafa Þykkbæing- ar unnið að því á hverju ári að gera stórkostlega framræsluskurði óg áveituskurði um mýrina. Og aú er hún öll orðin véltæk og er gott engi þótt gróður sé þar ekki jafn stórkostlegur og fyrrum. Tún sín hafa Þykkbæingar einnig fært út, svo að þau eru nú margföld að stærð við það sem áður var. Vegna þessara jarðabóta hafa þeir getað aukið bústofn sinn margfallt og eiga nú fjölda kúa og mergð sauðfjár. Sauðféð reka þeir ekki á fjall, heldur hafa þeir girt hagalönd þau, er þeir keyptu, og .hafa kindurnar þar á sumrin. Mjólkina senda þeir daglega í Mjólkurbú Flóamanna. Þeim varð þó brátt ljóst, að vegna landþrengsla var ekki hægt að treysta eingöngu á kvikfjár- rækt. Það gæti ekki orðið annað en baslarabúskapur hjá svo mörg- um bændum. Og þá var það að þeir réðust í kartöfluræktina, sem þeir hafa orðið frægir fyrir. Hvergi á íslandi er kartöflurækt- un rekin í stærri stíl, og hvergi hefir hún blessast betur. Þess eru dæmi, að þarna hefir fengizt tví- tugfpld uppskera. Kartöfluakrarnir eru víðlendir. Hver bóndi á 2—5 hektara kart- öfluakur, en samtals munu akr- arnir vera um 120 hektarar. Og í meðalári er uppskeran um 20.000 tunnur. Þessar miklu framkvæmdir eru því að þakka, að þarna er þétt- býli og menn hjálpast að. Sam- hjálpin er Þykkbæingum enn í blóð borin, enda þótt hún sé ekki jafn alhliða og áður var. Hver bóndi keppir að því að vera sem sjálfstæðastur. Þess vegna á nú hver bóndi sína dráttarvél, og sumir tvær. Hver bóndi á líka sína sléttuvél og aðrar heyskapar- vélar. Jarðrækt verður ekki leng- ur stunduð með hagnaði, ef véla- afl er ekki notað sem allra mest. En stundum geta vinnuvélar verið svo dýrar, að þær sé ofviða litlu búi. Svo er um upptökuvélar fyr- ir kartöflur, enda eru þær of mannfrekar fyrir einyrkja. Þá slá menn sér saman um slíkar vélar. Og eins verða menn að s'íá sér saman um úðunarvélar þær, sem notaðar eru til þess að úða

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.