Lesbók Morgunblaðsins - 01.04.1962, Side 8
ÞÆR ERU OFT SNJALLAR
- segir Scotland Yard
ScOTLAND Yard segist
æ oftar finna ótvíræð merki um
kvenlegar aðferðir í glæpa-
verkum undirheimanna.
Þegar lögreglan gerir atlögu,
taka karlmennirnir í flokknum
á sig alla ábyrgðina og hlífa
unnustunum, svo að mjög fáar
þeirra koma fyrir rétt.
Sumir afbrotamenn forðast
hjáip kvenna við atvinnu sína,
því að þeir vita að verði uppvíst
um þau, verða þeir að taka á
sig sökina einir. Aðrir hafa
gjarnan samvinnu við kven-
fólk, vegna þess, hve nytsamar
þær eru við afbrot.
Stúlfeur eru oft notaðar sem agn
við fjárkúgun, og verðir við ban/karán.
Þær eru líka ágsetar við ötflun upplýs-
inga, t. d. um verðmæta bílfanma.
Þær eru snjallar við að leiða athyglina
að sér á heppilegum augnablikum. Yfir-
lið er t. d. ágæt aðferð.
Ungar stúlkur flykkjast í raðir
glæpamannanna. Margar tilheyra
glæpaflokkum, en flestar vinna sjálf-
stætt sem búðarþjófar, innbrotsþjófar
og falsarar.
Yfirmenn Scotland Yard hafa þungar
áhyggjur af vaxandi fjölda kvenna, í
hópi afbrotamanna.
Þær eru sagðar lagnari, snjallari og
erfiðara að klófesta þær en karlmenn-
ina.
Hið kvenlega eðli hjálpar þeim til
að smjúga gegnum greipar laganna. Þær
eiga iíka auðveldara með margt en karl-
menn.
Eftirlýst kona getur skroppið inn á hár
greiðsiustofu og skipt um háralit á hálf-
um öðrum tíma.
Sé hún hávaxin getur hún klæðzt
lághæluðum skóm, og ef hún er grann-
vaxin getur hún þótzt vera tilvonandi
móðir með hjálp nokkurra púða.
Leynilögreglumonn eiga oft erfitt um
vik aö handtaka þessar konur. Þær leika
iðulega það bragð að æpa upp og þykj-
ast hafa orðið fyrir árás lögreglu-
mannsins, eða kvarta um að þær hafi
verið teknar vegna þess, að þær hafi
ekki viljað þýðast leynilögreglumann-
inn.
Sumar konur. sem staðnar eru að
verki, reyna að sleppa með þvi að segja
svo aumkunnarlegar og sorglegar sögur,
að gleraugu gætu tárazt við þær.
Og hvað fær þær til að snúa sér
að glæpaverkum á tímum, sem eru þeir
beztu i sögu Bretlands?
Ung fjögra barna móðir í London,
forhert afbrotakvendi, sem ocft er búið
að dæma fyrir búðaþjófnað og ávísana-
fölsun, segir svo:
„Allt er gert svú auðvelt fyrir olkkur
nú á dögum. Stóru vöruihúsin virðast
hvetja okkur til að taka út í reikning.
Þau taka við ávísunum frá hverjum
sem er. Þaö getur verið að þau fái 100
gildar ávísanir fyrir hverja falsaða. Mín
ar eru ekki gildar.
Hvernig á maður að standast slíkar
freistingar, ef eiginmaðurinn dregur
lítið í búið og maður verður að lifa af
brjóstvitinu“.
Eitt snjallasta glæpakvendi síð-
ustu ára er þekkt undir nafninu „The
Jellybabe". Hún er talin vera ung, lítil
og grannvaxin. Hún skriður inn í pen-
ingageymslur gegnum smágöt, sem em
sprengd í veggina og opnar peninga-
skápana með þjófalyklum.
Og hvaða lykla að hinu rétta heiti
hennar hefur lögreglan? Þann eina, að
hún notar sennilega skó nr. 34. Skór
af þeirri stærð hafa tvisvar fundizt á
staðnum eftir innbrot, sem hún hafði
tekið þátt í.
Mánuðum saman hafa tveir af snjöll-
ustu mönnum Scotland Yard verið að
reyna að grafast fyrir um hana í undir-
heimum borgarinnar, og „reyndar um
allt landið.
Lögreglan hefm ennþá á'huga á að
ná í ljóshærða 25 ára gamla stúlku,
sem ar bekkt undir nafninu „Getaway
Gert“, vegna þess, hve snjöll hún var
að 'sloppa undan lögreglunni í bíl sín-
um. Hún var ökumaður hjá laglegum
ungum gluggaþjóli Þau voru meira en
félagar, þau voru elskendur. Svo þegar
hann fór að vanrækja hana, sagði hún
til nans.
Annars er sjaldgæft að konur
„kjafti“ í lögregluna. Aðeins hatur, af-
brýðisemi eða hefnigirni í garð elskihuga
þeirra kemur þeim til þess.
Til dæmis um það má nefna unga
konu, en maður hcnnar var eftirlýstur
fyrir innbrot og liðhlaup.
Lögreglan brauzt inn í herbergi
hennar og fann hana, þar sem hún
lá í rúminu og virtist líða miklar kvalir.
Hún bað móður sína að hringja í lækni
og þingmanninn þeirra, því að lögregl-
an væri að ofsækja þær.
Leynilögreglumennirnir urðu ekki
neitt uppnumdir og tóku eftir hvítu
púðri sem hafði hrunið á koddann í
flýtinum. Þeir settust bara á rúmið
hjá henni og kveiktu sér í sígarettum
í rólegheitum.
Ailt í einu urðu heilmikil umibrot,
og höfuð á manm kom undan dýnunni
til fóta. Hann hafði legið á milli dýn-
unnar og fjaðranna, og heilar fimm
mínútur liðu, áður en hann náði and-
anum.
En kónan hans hellti úr sér flaumi
af orðum, sem hún hefði áreiðanlega
ekki kært sig um að láta þingmanninn
sinn heyra.
Oft flýja þær til þess herbergis, sem
karlmenn geta ekki elt þær inn í. Stór
kona, gift svindlara, var grunuð um
að selja útlendingum fölsuð fæðingar-
vottorð fyrir 100 pund styfckið.
Þegar mennirnir frá „The Yard“ komu
inn í húsið hljóp hún inn á salernið
Og setti bakið í hurðina og spyrnti
fótum í vegginn. Lögreglumennirnir
þorðu ekki að brjótast inn af ótta við
að meiða hana.
Og þeir urðu að standa fyrir utan
dyrnar, án þess að geta nokkuð aðhafzt,
meðan hún skolaði niður í salerninu
á tíu mínútna fresti.
Eftir nokkra stund kom hún út, sann-
færð um að öll sönnunargögn væru eyði
lögð. En lögreglumönnunum tólkst að
veiða hluta af vottorðunum upp úr frá-
rennslispípunni, og fengu hana dæmda,
Lögreglan er oft furðu lostin yfir
þeim brögðum. sem konur eiga til að
beita við afbrot, eða til hjálpar sam-
særismönnum sínum.
Þær eiga til að „falla í yfirlið“ inni
í skartgripaverzlun, meðan bakki með
hringum er gripinn, eða fleygja sér í
fangið á lögreglumanni á eftirlits-
göngu, meðan samverkamenn hennar
sleppa með bílfarm af loðskinnum.
Sn.iöll stúlka leikur heimska konu
á bíl, sem hefur týnt ráslyklinum.
Hún bíður utan við litla póststofu
rétt um lokunartíma til að spyrja póst-
manninn, hvort hann eigi lykil, sem
gangi að.
Á þeim örfáu sekúndum, sem hún
handfjatlar lyklana tekur hún mót a£
þeim í hnoðleir.
Ein slífc úthverfispóststofa var rænd
fjórum sinnum áður en afgreiðslumaður
inn játaði fyrir leynilögreglumönnum
að hafa lánað kvenbílstjóra í vand-
ræðum lyklana.
Og þessar konur eru eklki einu sinnl
meðal verstu glæpaikvenda í Bretlandi,
Afbrot þeirra eru aðeins minni háttar,
samanborið við afrek hinna harðsoðn-
ustu.
Að sjálfsögðu er sögð ný saga af
Michel Debré forsætisráðherra
Fxakka í hverri viiku. Hér er síðasta
, sagan sem gengur í Baris:
; — Hvað á maður eiginlega að
, gera til að afla sér vinsælda? spurði
Debré einn af vinum sínum.
— Farðu að dæmi Gagaríns, Titova
og Glenns. Farðu í geknferðalag.
— Já, en setjum nú svo, að ég
kæmi ebki aftur.
— Nú, þá eykurðu auðvitað vin-
sældir þínar um allan helming.
8 LESBOK MORGUNBLAÐSINS