Lesbók Morgunblaðsins - 01.04.1962, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 01.04.1962, Side 12
-NÝHÖFN Frainhald af bls. 6 hvort hafði hann áður náð haldi á lóð- inni næst fyrir austan Baagöe, eða hann komst nú yfir hana. En svo mik- ið er víst, að þarna reisti hann gríðar- mikið geymsluhús, tjargað og kolsvart, rétt við verzlunarhús Baagöes, og skyggði alveg á það. Var talið í bæn- um, að þetta hefði verið gert af hrekk og húsið því kallað „Drillenborg“. (Seinna keyptu Frakkar það og var það þá kallað franska húsið). Baagöe þóttist nú illa settur. En þeg- ar Wejl & Gerson urðu gjaldþrota, mun hann hafa leigt verzlunarhús Jacobæusar. Sölubúðin mun þá hafa verið orðin léleg, svo að Baagöe reif hana og flutti sitt hús þangað, er hún hafði staðið. Er þetta haft eftir Geir Zoéga útgerðarmanni. E kki er víst að Baagöe hafi verzlað þarna fyrir sjálfan sig, miklu fremur er svo að sjá sem Knudtzon hafi átt verzlunina. Árið 1838 keypti Knudtzon verzlunarhús Jacobæusar, og er þá víst að Baagöe var verzlunar- stjóri hjá honum þar og bjó í Gísla- húsi. En nú gerðist mikill úlfaþytur meðal annarra kaupmanna út af því að Knudtzon rak nú tvær stórar verzlanir í bænum. Héldu menn að hann mundi ætla að leggja alla verzlun í Reykja- vík undir sig. Þá tilhugsun gátu kaup- menn ekki þolað og leituðu því á náð- ir stjórnarinnar, en hún úrskurðaði að enginn kaupmaður mætti eiga fleiri verzlanir en eina í hverjum stað. Út af þessu var það, að Knudtzon seldi verzlunarhúsin og var kaupand- inn Jón Jónsson frá Ármóti. Átti hann þau í nokkur ár, en seldi þau síðan. Keypti Sigurður Melsted prestaskóla- kennari Gíslahús og bjó þar síðan, og var húsið jafnan kallað Melsteðshús upp frá því. Þar stendur nú nýbygg- ing Útvegsbankans, en bæði hús bank- ans eru reist á lóð þeirri, er Jacobæus fékk upphaflega. En verzlimarhúsin lceypti Martin Smith, skozkur kaup- maður, er hér hafði verið nokkur ár og bjó þá í gömlu biskupsstofunni (Aðalstræti 10), hafði fengið þá íbúð er ekkja Geirs Vídalíns biskups dó. Smith var kvæntur Ragnheiði Bogadóttur Benediktssonar á Staðarfelli. Keypti hann seinna hús Stefáns Gunnlaugs- sonar bæarfógeta í Ingólfsbrekku og átti þar heima til dauðadags. Hann var hollenzkur konsúll, annar maðurinn hér á landi sem fékk konsúlstitil. S kömmu eftir að Smith eignaðist verzlunarhúsin í Hafnarstræti, lét hann sameina sölubúðina og geymsluhúsið og síðan setja sameiginlegt þak á öll þrjú húsin með kvistum. Má enn sjá utan á norðurhlið hússins samskeytin, ef vel er að gáð. Þarna verzlaði Smith svo um mörg ár og efnaðist vel. Hafði hann auk þess mikla kolaverzlun og keypti fisk í stórum stíl. Hann dvald- ist oftast erlendis, en hafði hér verzl- unarstjóra, fyrst Þorvald Stephensen bæjarfulltrúa og síðan Jón Otta Jóns- son. Það var eigi aðeins að Smith. lét gera breytingu á húsunum að utan heldur einnig að innan, og þar setti hann á fót fyrstu sérverzlun hér í bænum, sem kölluð var „dömubúð“. Jón Helgason biskup var afgreiðslu- maður í Smithsbúð í fjögur sumur og hann segir svo um hana: „Smithsbúð var lengi ein af fínni verzlunum bæj- arins. Þar var sérstök „dömubúð“, sem svo var kallað, inn af aöalsölubúðinni, þar sem ekki var annað selt en það, er laut að kvenlegum hannyrðum. Þótti jafnan gott að eiga viðskipti við Smiths verzlun, enda var þar einatt mikil verzlun". Segir hann og að sér sé „sér- staklega minnisstæð húsbóndahollusta utanbúðarstarfsmanna verzlunarinnar og hve annt þeir létu sér um það verkafólk, sem þar hafði atvinnu að sumrinu og þá líka hélt tryggð við þessa verzlun fjölda ára“. Smith andaðist 1885. Þá eignaðist Jón Otti Jónsson verzlunina og húsin, en andaðist fjórum árum seinna. Var verzlunin þá í skuldum og tók verzl- unarfélagið B. Muus & Co í Kaup- mannahöfn hana undir sig. Var þá breytt um nafn á henni og hún kölluð Nýhöfn, og hélzt það nafn furðu lengi við húsið. E m aldamótin keypti Ditlev Thomsen hús og verzlun og sameinaði verzlun sinni. Var þá nýlenduvöru- \ erzlun í austurendanum, um miðbik hússins tóbaksbúð og klæðskerabúð í vesturendanum. Eftir að Thomsensverzlun hætti, rak Guðmundur Kr. Guðmundsson ný- lenduvöruverzlun um nokkurt skeið, en síðan Emil Strand og hafði þar jafn- framt skipamiðlun á seinustu árum fyrri heimsstyrjaldarinnar og eftir hana. Nú um langt skeið hafa hinir og aðrir verzlað í húsinu og haft þar skrifstofur. Er húsið nokkuð farið að láta á sjá. En ekki mun ókunnuga gruna, að þetta séu þrjú hús, misjafn- <S>-------------------------------------- lega gömul Elzt er miðbik hússins og veit nú enginn hve gamalt það «r. Það var flutt hingað frá Keflavík fyrir 162 árum, en hafði áður verið fiskhús þar, hver veit hve lengi? Vesturendinn var reistur fyrir 144 árum, en austurend- inn er verzlunarhús Baagöe, sem upp- haflega var reist í Austurstræti fyrir hér um bil 130 árum. OLIVIER LEIKHIJSSTJOR3 Hinn 3. júLí næstbomandi mun Sir Laurence Olivier taka við embætti forstjóra hins splunkunýja, sex- strenda „Festival Theatre" í Chich- ester — milli Brighton og Ports- mouth — en það er byggt eins og hringleikahús með 1360 sætum. Kostnaður við byggingu þess nem- ur kringum 13 milljón krónum. Fyrsta leiktímabilið stendur yfir í 10 vikur, og verða þá m.a. flutt tvö tiltölulega lítið þekkt leikrit frá tím- um Shakespeares, ,,The Chances" eft ir John Fletcher og „The Broken Heart“ eftir John Ford. Ennfremur verður hið kunna leikrit Tsékovs, „Vanja frændi“, sýnt. Meðal leik- ara eru Sir Laurence sjálfur ásamt konu sinni, Joan Plowright, hin kunnu hjón Dame Sybil Thörndike og Sir Lewis Casson, og ýmisar þekkt ar „stjörnur“, svo sem Fay Compton, Sir Michael Redgrave, Joan Green- wood og John Neville. EFTIRLÆTI FJÖLSKYL! Hann byrjar daginn með Eftirlætis morgunverður fjölskyldunnar er Corn Flakes. Vegna þess að það er efnaríkt, staðgott, handhægt og ódýrt Inniheldur öll nauðsynleg vitamin. — Handhægasta máitíðin hvenær dags sem er. (Það eina sem þarf að gera er að láta það á diskinn og helía mjólk út á). Corn Flakes á hverju heimili Fæst í næstu matvoruverzlun. Céoyiþb CORN FLAK LESBOK MORGUNBLAÐSINS 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.