Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1963, Qupperneq 11
Upphaf landnámssögu V-íslendinga i Saskatchewan X
Þorsteinn Þorsteinsson
Eftir Pál Guðmundsson
orsteinn hélt kyrru fyrir á
hæðunum fyrir vestan
Foam Lake vatn þar til nokkru eft-
ir aldamótin, að hann festi sér
heimilisréttarland, fjórar mílur suð-
austur af Leslie. Nam Guðbjörg
kerling, móðir hans þá land annað
sinn þar rétt hjá. Hún hafði alltaf
verið á hans snærum síðan er hún
brá búi og flutti austur úr Horna-
firði og þar andaðist hún að heimili
hans árið 1908.
Þorsteinn bætti við sig löndum þar
umhverfis og hafði fjögur lönd, 640
ekrur, og var snoturt heimili á öðru
landinu, sem hann keypti.
au Þorsteinn og kona hans eign-
uðust ellefu börn. Þau heita 1. Jónína
Guðbjörg, gift Karli Klark, 2. Stefanía,
gift Jack Overstone. Einn af sonum
þeirra er veiðieftirlitsmaður. 3. Signý,
gift Elmwoold Armur. Sonur þeirra, E.
D. Armur, dvelst í Frakklandi, háttsett-
ur embættismaður, Group Captain í
flugher Kanada. 4. Ketilbjörg. Maður
hennar heitir Magnús Pálsson, Magnús-
sonai af Akureyri og konu hans, Guð-
nýjar Friðbjörnsdóttur, Steinssonar af
Akureyri. Þau hjón eignuðust fjögur
börn. Þau heita Svava, gift Bandaríkja-
rnanni, Guðný, einnig gift manni af
bandarískum ættum, Margrét, ógift, og
Páll, kvæntur konu af hérlendum ætt-
um. Þessi systkini hafa mannazt sér-
staklega vel og skipa háar stöður hér
og í Bandaríkjunum. Er ættarnafnið
Magnússon. 5. Jónína Guðrún, gift
Daníel Þorsteinssyni, Þorlákssonar frá
Stóru-Tjörnum.í Ljósavatnsskarði. Son-
ur þeirra Páll er stóriðjuhöldur í
Detioit, Miss., USA. Er ættarnafnið Þor-
láksson. 6. Þorsteinn nam land í þessari
byggð, gekk í Kanadaherinn og féll í
Frakklandi í fyrri heimsstyrjöldinni. 7.
Jóhannes Torfi, kvæntur konu af hér-
lendum ættum. Heitir hún Mamie;
þeirra börn, Aldís og Árni. Jóhannes
var lengi kornkaupmaður í Leslie fyrir
landnema kornhlöðufélagsins og síðar
kornhlöðueftirlitsmaður hjá sama fé-
lagi. 8. Einar, kvæntur Beatrice, systur
Daníels, sem áður var getið. Eiga þau
hjón fjögur börn á skólaaldri. 9. Bjarn- *
ína Guðfríður, gift Jóni Þórarinssyni,
Sigfússonar af Fljótsdalshéraði. Þeirra
son Bryan, fasteignasali í Foam Lake,
og dóttir, Audrey, gift Jóni Vigfússyni,
Sveinssotiar, Árnasonar. Búa í Outlook,
Sask. Ætarnafnið Anderson. 10. Ágústa,
ígift manni af hérlendum ættum, búa í
Winnipeg. 11. Guðný, ógift.
egar aldurinn færðist yfir Þor-
stein gaf hann frá sér, búskapinn að
mestu leyti og leigði Einari, syni sín-
um, og Daníel Þ. Þorlákssyni, tengda-
sym sínum, akrana fyrir ákveðinn hluta
af uppskerunni. Lét þeim eftir heimilið,
en flutti sjálfur á heimili það sem hann
hafði keypt og áður var getið. Hafði þá
lítið umleikis, tvær kýr eða svo og
Hokkrar kindur.
Eftir fá ár skildu þeir Einar og Daníel
félagið, fór Daníel suður í Detroit, Miss.,
i bílaverkstæði Henry Fords og hefur
verið þar síðan við góða líðan, en í
hans stað tók Einar í félag við sig ann-
•n tengdabróður sinn, Jón Þórarinsson,
kallar sig Bjarnason; var hans getið hér
að framan. Eftir fá ár brugðu þeir þessu
ráði, leigðu jarðir sínar dönskum
mönnum, en Þorsteinn keypti hús í
Leslie og fluttu þeir Einar í það. Starf-
rækti Einar verkfærasölu og benzínstöð
í Leslie, en Jón leigði hús í öðrum stað
og gerðist kornkaupmaður fyrir sama
félagið og Jóhann tengdabróðir hans og
var hann í umdæmi hans.
Um eða skömmu eftir 1940 kvæntist
Einar Þorsteinsson, sem fyrr var sagt.
Létu gömlu hjónin honum þá eftir húsið
í Leslie og fluttu til Gimli í Manitoba,
hugðust eyða þar elliárunum í samfé-
| VATNSBÖL
Framh. af bls. 4
gerðust hinar daglegu ferðir margar,
þar sem heimili voru stór. — Sæist
karlmaður létta undir við vatnsburð-
inn með einhverri stúlkunni, ótilkvadd-
ur, fór fólk þegar að stinga saman nefj-
um um samdrátt þeirra — og þóttist
tala þar um af reynslu.
Nýju brunnarnir bættu mikið úr, en
þeir voru fæstir stórir og þraut í lang-
vinnum þurrkum, einkum á útmánuð-
um. Þeir, sem stærri brunna höfðu,
miðluðu þá hinum, unz þeirra brunnar
þornuðu einnig upp. Hófst þá sama
gamla sagan: vatnssókn í hina fornu
almenningsbrunna, Póstana, í Vilpu og
í Herjólfsdal — og sama fyrirbrigðið
og áður: útiþvottar við vatnsbólin, fólk
á stígum og vegum með vatnsskjólur
í grindum eða með vatnsok á herðum
— og þá barinn lómurinn yfir því dæma-
fáa erfiði, sem menn hefðu við vatns-
burðinn sýknt og heilagt, enda þótt fólk
sparaði hvern vatnsdropa til hins
ýtrasta.
- ★ -
E n vert er að taka það fram, að
þótt fólk sparaði vatnið, þurfti ekki að
kvíða því, að það nægði ekki til brýn-
ustu nauðsynja. — Kaupskipin, sem
gengu til Eyja, tóku þar vatn, og er-
lend fiskiskip, af ýmsum þjóðum,
leituðu þangað eigi sjaldan til þess
að afla sér vatnsforða. — Fyrir
þessum þörfum var séð með því
að safna vatni á bergruna eða smá-
vatnsrás í Heimakletti, undir svokall-
aðri Löngu. Mun þannig hafa verið
frá fornu fari. Stór ker voru sett undir
bergrunann eða seitlið úr berginu, sem
að vísu var lítið — en „safnast, þegar
saman kemur“. — Þessi ker stóðu fram
yfir aldamót, græn af slýi utan og inn-
an. Upp frá þessu var hætt að sækja í
kerin, og þau dröfnuðu niður. Stundum
sótti þó heimafólk þangað vatn á bát-
um yfii sundið og þvoði þar ull og stór-
þvotta. Algengt var, að konur færu með
vinnuföt, sokka og slorplögg og sjó-
vettlinga og þvoðu og klöppuðu upp úr
sjávarlónum — til þess að spara vatn.
Gall úr þorski þótti henta vel, í sápu
stað, við slikan þvott.
Þegar farið var í úteyjar til viðlegu,
var vatnsankerið eða kúturinn oftast
með til drýginda, en unnt var að afla
vatns eða ná í seytl á bergruna og leiða
það á ofur einfaldan hátt eftir fjalar-
stúf og setja tunnu undir lekann og gat
orðið drjúgt sem draup, þótt lítið væri
rennslið — og vissulega enginn bunu-
lækur. í Elliðaey var vatn í Vatnshelli,
í Yztakletti undir Hendinni, í einni
eynni í Vatnsgili og þannig mætti víðar
telja.
lagi við gamla íslendinga, sem þar var
helzt von. Voru nokkrir kunningjar
þeirra frá Leslie komnir þangað áður.
Þau voru á Gimli hálft annað ár, þá
andaðist kona Þorsteins, Anna Ingibjörg
6. janúar 1943, f. 20. apríl 1868 á Gríms-
stöðum í Hjaltastaðaþinghá. Hún var
forstands og dugnaðarkona og vinsæl í
sínu umhverfi. Kom Þorsteinn þá aftur
til baka og dvaldist hjá Einari syni
sínum og konu hans hér í Leslie til
æviloka.
Þ
orsteinn heimsótti fsland sumar-
Lundamenn í Suðurey kvörtuðu oft
undan vatnsskortinum. Þar var ekki
vatn uppi á eynni, sem er stór um sig
og grasgefin mjög, en vatnsrás vai
neðst í þverhnýptum berghamri, þar
sem kallað var „á Vatni“, alveg niður
undir sjó, og varð að gera langt sig í
hvert skipti, er sótt var vatn eða taka
það á báti af sjó. Hvergi annars staðar
hefi ég heyrt þess getið, að safnað hafi
verið dögg eða daggardropum af grasi
til þess að fá vatn á ketilinn. Þetta
sögðust Suðureyjamenn hafa leikið og
voru hreyknir af daggarkaffinu sínu,
sem engir höfðu bragðað aðrir en þeir.
Fyrrum, áður en almennt Var farið
(um aldamót) að nota tjöld, eða menn
fóru að koma sér upp veiðikofum eða
húsum, höfðust viðlegumenn í úteyjum
við í hellum og skútum og undir brík-
um — og var þá hlaðið að. Voru þetta
kölluð legúból. Þetta forna orð mun nú
fallið í gleymsku. Það finnst ekki í
orðabókum.
Fullkomin vatnsveita
ur landi ?
E kki hafa farið sögur af því, að
óheilnæmi hafi stafað af vatninu í Eyj-
um. Á Vilpu (en þar var vatnið oft
gruggugt) lágu þau áhrínsorð frá
fornu, að engum skyldi verða meint af
vatninu úr henni — og þótti það ræt-
ast. —
O-Á-O
Fyrir nokkrum árum var grafinn
brunnur á sömu slóðum og Andrésar-
brunnarnir voru — og síðar „Gamli-
Póstur“ — en ofar við brekkuna, og
fékkst þar mikið og gott vatn. Þarna
skammt frá var reistur vatnsgeymir og
vatninu veitt í fiskiðjuverin og á bryggj-
urnar. Sjóveita er og í Vestmannaeyj-
um, og er hún talsvert notuð til hrein-
lætis í húsum.
Víð-a hefur verið grafið og borað eftir
vatni, en án verulegs árangurs. — Nú
mun mönnum efst í huga að fá vatns-
leiðslu til Eyja af landi og koma á full-
komnu vatnsveitukerfi með leiðslum í
húsin. Með því væri loks sigrazt að
fullu á erfiðleikunum og þeim frum-
stæðu háttum, að ýmsu leyti, sem af
vatnsskortinum hefir leitt og Eyjamenn
hafa alla tíð átt við að búa — eins og
framan er lýst að nokkru. — Mun ugg-
ur sá, er skapazt hefir af því, að einhver
hætta kunni að vera á ferðum vegna
vaxandi áhrifa geislavirkra efna á regn-
vatnið, sennilega ýta verulega undir það,
að vatnsveitunni verði sem fyrst kom-
ið á.
Sigfús M. Johnsen,
frv. bæjarfógeti.
ið 1912 og hafði mikla ánægju af þvi
ferðalagi. Hann a ndaðist í spítala í
Foam Lake 4. janúar 1946 og var jarð-
aður í Leslie-grafreit.
Þorsteinn var maður í hærra lagi og
gildvaxinn, fríður í andliti og karl-
mannlegur, gekk jafnan þokkalega
klæddur, þrifinn um heimili sitt, gest-
risinn og veitull, höfðingjakær og hélt
sér til virðinga, artarlegur við börn sín,
hafði gott vit á skepnum og fór vel með
þær, séður í kaupum og hafði jafnan
peningaráð, tapaði þó miklu í útlánum
og lét sér margt vel fara.
| SMÁSAGAN |
Framh. af bls. 3
gráta og skjálfa meira en nokkru sinni
fyrr, meðan öll börnin skellihlógu. Loks
gáfu þau honum örlítið á diskinn. Með-
an hann borðaði fyrstu skeiðarnar af
búðingnum gaf hann frá sér spaugilegt
og græðgislegt hljóð og hreyfði háls-
inn líkast önd, sem hefur gleypt of stór-
an bita. Að því búnu tók hann að stappa
í gólfið, með fótunum til merkis um það,
að hann vildi meira .
E g sárvorkenndi gamla mannin*
um og gat því ekki stillt mig um að
segja: „O, ætlið þið ekki að gefa hon-
um örlítið meira af búðingnum?“
En Simon svaraði: „Nei, kæri vinur.
Það getur verið hættulegt fyrir svona
gamlan mann að borða of mikið".
Ég þagði og hugsaði um þessi örð.
Ó, siðfræði! Ó, rökfræði! Ó, vizka! Svona
gamla menn! Svo að þau svipta hann
ánægjunni ‘hans, vegna heilsunnar.
Heilsunnar! Hvað gagn hafði hann af
henni, svona sljótt og titrandi gamal-
menni? Þau voru að vanda líf hans,
sögðu þau. Lif hans? Hve marga daga?
Tíu, tuttugu, fimmtíu eða hundrað?
Hvers vegna? Vegna hans sjálfs? Eða
til að geta notið lengur þess gamans að
sjá hina magnvana græðgi hans?
Það var ekkert eftir fyrir hann að
gera í þessu lífi, alls ekkert. Hann átti
eina einustu ósk eftir, eina ánægju,
hvers vegna mátti ekki leyfa honum að
njóta þeirrar ánægju, þangað til hann
dæi?
E ftir að hafa spilað lengi á spil,
fór ég upp í herbergið mitt og háttaði.
Ég var dapur og í þungu skapi. Ég
settist við gluggann, en ég heyrði ekk-
ert nema hinn fallega söng fugla í tré
einlhvers staðar í fjarska. Eflaust var
fuglinn að syngja svona lágt, til þess
að skemmta maka sínum, sem lá á eggj-
unum. Og mér varð hugsað til hinna
fimm barna aumingja vinar míns og
ég sá hann fyrir mér í huganum, þar
sem 'hann hraut við hlið hinnar ófpíðu
konu sinnar ...
Lausn á bridgeþraut
SAGNHAFI drepur hjarta útspilið með
laufa 7. Næst lætur hann út tígul og
drepur í borði með drottningunni og
lætur úr borði hjarta 5, sem trompað er
heima með laufa 8. Enn er tígull látinn
út og drepið með ásnum i borði og tígul
2 látinn úr borði og trompaður heima
með laufa 10. Nú tekur sagnhafi ás,
kóng og gosa í trompi og lætur síðan út
laufa 2 og vestur verður að drepa og
fær þann slag.
Vestur verður nú að láta út hjarta (!
borði er D 9) og sagnhafi tekur 2 slagi
á hjarta, en þá er austur kominn í
vandræði. Ef hann kastar tígulgosa, þá
verður tígul 7 í borði gott, og kasti hann
spaða fær sagnhafi slag á spaða 8.
4. tolublað 1963
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS H