Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1964, Síða 10
SÍMAVIÐTALIÐ
Mú opnar Á R B Æ R
— 60093.
— Árbær.
— Lesbók MorgunMaðsins —
er Lárus Sigurbjömsson við?
— Það er hann.
— Hvenær ætlið þið að opna
Árbæ nú í vor?
— Einhvern næstu daga. Vxð
höfum aldrei opnað fyrr en
um 20. júní — en nú opnum
við fyrr. Veðrið hefur verið
það gott og gróðurinn er orð-
inn mikill.
— Og þið eigið von á mörg-
um gestum?
— Já, ef að líkum lætur. í
fyrra komu ekki nema um tólf
þúsund hingað, en það var
veðrinu að kenna. Áður hafa
sumargestirnir komizt upp í
átján þúsund.
— Mest Reykvíkingar?
— Nei, Reykvíkingax í minni
Hver er
uppáhaldsmatur
eiginmánnsins
Þegar Lady Bird Johnson
var hér á ferðalagi s.l.
haust, birtum við uppskrift-
imar af uppóhaldsrétti eig-
inmanns hennar, Lyndons B.
Johnsons, núverandi forseta
Bandaríkjanna.
Að þessu sinni birtum við
nokkrar uppskriftir siem
Lady Bird kýs að hafa við
hátíðleg tækifæri. Hún ráð-
leggur konum að skreyta
alltaf borðið mieð ferskum
blómum; það auki matar-
lystina og setji hátíðlegan
svip á máltíðina.
Svínakjötsréttur
Magurt, reylct svínakjöt
borið á borð með uppfyHt-
um peruhelmingum. Setjið
kjötið í grunna ofnskúffu
fóðraða með aluminíumpapp
ír og hún látin á ofngrind-
ina.. Heilir negulna.glar eru
settir með þumlungs milli-
bili í kjötið. Penslið eftir-
farandi samblöndu yfir kjöt
ið:
3 msk púðursykur, 2 msk
fínt mulin brauðmylsna, 1
tsk rifið appelsínuhýði, 14
tsk þurr mustarður.
Hellið varlega yfir efsta
hluta kjötsins % bolla af
appelsínusafa. Bakið í ofni
við 175 C hita þar til kjöt-
ið er vel gegnum heitt. Ef
það verður dökkt efst, þá
er hsegt að gera tjald yfir
það með tvöföldum alum-
iníumpappír og þekja það
lauslega síðasta háliftímann.
Fyilið niðursoðna peruhelm-
inga með Chutney (eða
sveskjum), raðið þeim í
kringum kjötið og hitið þá
í ofninum um leið og kjöt-
ið.
Lima-haunir með ostasósu
Einn pk af frosnum lima-
baunurn, lítið eitt af smjöri,
1 msk hveiti, 14 b mjólk.
lítil dós af sveppum, % b af
rifnum osti.
Sjóðið frosnu baunimar
hluta. Mest aðkomufólk, útlend
ingar.
— Og þið eruð að lagfæra
hitt og þetta?
— Já, það tekur lengri tíma
núna en oft áður. Veðráttan
var þannig í vetur, að hér hof
ur skemmzt meira en venju-
íega. Þegar langvarandi frost-
leysa er yfir veturinn — og
loftið rakt, þá sér á einu ot'
öðru — leður myglar o.s.frv.
Annars förum við alltaf með
viðkvæmari hluti til geymslu
niðri í bæ yfir vetrarmánuðina.
— En hefur reksturinn geng
ið vel það ,sem af er — eruö
þið ánægðir?
— Já, fjárhagslega stóð safn-
ið undir rekstrinum í fyrra —
og við reynum að halda að-
gangseyri niðri eins lengi og
kostur er. Líka verðinu á veit-
ingum — og við erum með
söltu vatni sa.mkvæmt ráð-
leggingunum á pakkanum.
Látið vatnjð renna vel af
þeim. Setjið lítið eitt af
smjöri á pönnu og bræðið;
bætið við sveppunum og lát
ið þetta malla í 5 mínútur.
Bætið við hveiti og mjólk
og búið til þykka hvíta sósu.
Síðan er rifni osturinn sett-
ur í, hann látinn bráðna.
Limabaunirnar settar í síð-
ast. Berið fram heitt. (Ath.
ef limabaunir eru ekki fá-
anlegar má hafa í staðinn
venjulegar grænar baunir).
Spónbrau'ð
3 b sæt mjólk, 3 egg, 1 b
hvítt maismjöl, 1 tsk salt,
114 tsk smjör, 3 tsk lyfti-
duft.
Hrærið maismjölinu sam-
an við 2 bolla af mjólk og
látið blönduna sjóða svo
að úr þessu verði grautur.
Bætið við það sem eftir er
af mjólkinni og vel þeytt-
um eggjum. Bætið við salti.
lyftidufti og bræd.du smjöri.
Hrærið, Bakið í 30 mín. i
í ofni við 200 C ofnhita.
fyrsta flokks kaffi og kaffi-
brauð. Það vita allir, sem
drukku hér í fyrra.
— Sætast mörg hús við á
þessu ári?
— f rauninni bætist ekkert
við fyrr en í haust, við vinn-
um við þetta í sumar. Að vísu
verður tekin í notkun minja-
gripa- og miðasala við hliðið
— og verður mikil bót.
— En hvað bætist við síðar
á sumrinu?
— Brúðhjóna- eða skrúð-
hús, sem rís gegnt klukkna-
porti kirkjunnar. Skúli
Helgason reisir þetta hús
og- á allan veg og vanda
af því. Hann hefur m.ai
til fyrirmyndar brúðhjónahús,
sem var í Flóanum, að Arnar-
bseli, og hrundi í jarðskjálftun-
um 1896. Það var síðasta brúð-
hjónahúsið á íslandi. Með því
að koma þessu húsi upp létt-
um við svolítið á sjálfum Ár-
bæ, því þá þarf fólkið, sem
kernur til giftingar í kirkj-
unni, ekki að fara inn í bæjar-
húsið. Þá fær það afdrep í brúð
hjónahúsinu.
— Þeim fjölgar óðum, sem
gefin eru saman í hjónaband
í Árbæjarkirkju? *
— Já, brúðhjónin eru komin
yfir 60. Og ég get sagt þér
eitt skemmtilegt í sambancii
við þetta. Hver brúðhjón fá
minningarvottorð frá kirkj-
unni —og við það hangir inn-
sigli kirkjunnar. Þetta er víst
eina kirkjan á landinu sem
gefur út slík vígsluvotforð.
— Og hvað nafið þið svo
meira á prjónunum?
— Gamla Reykjavíkurapó-
tek, sem nú er verið að rífa
við Austurvöll. Það reisum við
hér efra, látum það halda sér
í upprunalegri mvnd hvað ytra
útlit snertir, en aö innan verð-
ur því breytt, veróur einn gein:
ur — notað sem sýningarsal
ur fyrir Árbæjarsafnið. Annars
vonum við, að hér rísi éirin
góðan veðurdag sýningarsalur,
því það er margt skemmtilegt.
sem við getum sýnt fólki —
margir gamlir munir, sem unga
fólkið hefði gagn og gaman af
að sjá.
— Og að hverju er stefnt
með safnið?
— Ja, æitlumn er, að fyrir
ofan bæinn, þa-5 er að segja
— sustur af sjálfum Arbæ,
verði reistur simákjarni, smó-
þo’p — sýnishorn af íslenzku
þorpi eins og þ&u voru upp
úr aldamótunum 1800. Þá not-
uðu menn torf og tjörguðu
timbur. Þessi kjarni á að byggj
ast umhverfis lítið torg, vera
heild út af fyrir sig. En enn
er engin heildaraætlun um
framkvæmd málsins. Uppdrát.t
ur hefur verið gerður af svæð
inu í sambandi við heildar-
skipulagninguna hér efra, en
ég veit ekki hvernig þetta verð
ur endanlega. Vona bara að
framhaldið verði gott.
m'ÝJ A a *
John Leyton: Tell Laura
I love her/The girl on the
floor above/Johnny rememb
er me/Wild wind.
John Leyton er enskur
leikari, sem fór að syngja
dæguríög árið 1960. Honum
var spáð miklum frama á
því sviði og sagði hann
nokkurn veginn skilið við
leiklistina, enda hafði ekki
verið feitan gölt að flá þar..
Fyrsta platan hans náði met
sölu og einnig sú næsta,
en skiifað var um það í
blöðunum að öll hugsanleg
hjálpartæki við hljóðritun
hljómplatna væru notuð til
að breiða yíir hina litlu
rödd er Leyton hefði. Var
rifizt mikið í brezkum blöð-
um á sínum tíma um mál
þessi.
En plötur Johns Leytons
seldust og vinsældir hans
uxu. Enn á ný var rifizt um
hann í blóðunum og að
þessu sinni vegna þess, að
hann lét hafa það eftir sér
í útvarpsþætti, að Frank
Sinatra væri búinn að vera
sem söngvari. En það er
gífurlega stór hópur manna
um heim allan, sem heldur
því fram að dægurlagasöngv
urum megi skipta í tvo
hópa, Frank Sinatra sé í
öðrum og siðan allir aðrir
dægurlagasöngvarar i hin-
um hópnum. Sinatra-aðdá-
endum líkaði ekki þessi um
mæli Leytons og brátt kom
að því að Leyton var búinn
að vera sem sóngvari. Fiest-
ar plötur hans síðustu tvö
árin hafa ekki náð mikilli
sölu. Á þessari hljómplötu
eru fjögur frægustu laga
hans, hið fyrsta hefur heyrzt
hér með amerískum söngv-
urum en hin eru öli upp-
runnin í Englandi og gerði
Leyton þau vinsæil. John
Leyton er al’s ekki sem
verstur söngveri og hann
fer nokkuð ve! með. rödd
hans er sérkennileg og auð-
vitað eru rokk’ög bans sér-
grein. Lögin á plötunni eru
eiginlega öll skemmtileg og
þessvegna er þetta tilvalin
plata fyrir þá sem vilja
kynnast John Leyton, því
varla syngur hann inn á
fleiri plötur sem metsölu ná
næstu mánuðina. Hafa um-
mæli hans um Sinatra ef
til vHl eitthvað að segja
þar og svo hitt, að nú eru
allir söngvarar í Englandi,
sem komu fram á sjónar-
sviðið fyrir 1963, orðnir gam
aldags og úreltir. Beatles,
Dave Clark og um tvö
hundruð aðnr ungmúsikant
ar hafa séð fyr.’r því.
essg.
ilimiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiitiiiiiiiimiiiiiiiuiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijiiiitji
10 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
20. tölublað 1964